Óðinn Þór með þrjú mörk í naumum sigri | Grétar Ari átti góðan leik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. nóvember 2020 21:45 Óðinn Þór Ríkharðsson átti góðan leik í kvöld. vísir/eyþór
Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélgar hans í Holstebro unnu góðan tveggja marka sigur á Frederica á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þá vann Nice góðan sjö marka sigur gegn Besancon í frönsku B-deildinni í kvöld. Grétar Ari Guðjónsson varði mark Nice í kvöld og var með 30 prósent markvörslu. Óðinn Þór og félagar í Holstebro voru þremur mörkum undir gegn Frederica í kvöld er flautað var til hálfleiks, staðan þá 18-15 heimamönnum í vil. Gestirnir í Holstebro bitu í skjaldarrendur í hálfleik og komu tvíefldir til leiks í þeim síðari. Fór það svo að þeir unnu tveggja marka sigur, lokatölur 35-33 Holstebro í vil. Óðinn Þór gerði þrjú mörk í leiknum. Holstebro þar af leiðandi komið upp í 3. sæti deildarinnar með 18 stig að loknum 13 leikjum. Þá átti Grétar Ari góðan leik í marki Nice í frönsku B-deildinni í kvöld. Grétar Ari varði tíu skot í öruggum sjö marka sigri, lokatölur 30-23. Var þetta aðeins annar sigur Nice á tímabilinu. Liðið er í 8. sæti með fimm stig að loknum sjö umferðum.
Handbolti Danski handboltinn Franski handboltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira