

Mjólkurbikar karla
Umfjöllun um Mjólkurbikar karla í fótbolta.

„Þetta er svekkjandi“
Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar var svekktur eftir tapið í kvöld. Valsmenn voru töluvert betri þegar líða fór á leikinn og áttu Stjörnumenn fá svör við leik heimamanna.
Fréttir í tímaröð

„Vonbrigði að komast ekki í úrslitin í fyrra“
„Mér fannst við spila vel, við byrjuðum ekki vel en við náðum að koma okkur inn í leikinn. Eftir 20 mínútur vorum við betra liðið á vellinum og ég er ánægður með frammistöðuna okkar í dag.“

„Mitt persónulega markmið að kveikja í stuðningsmönnum Vals“
Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, var að vonum ánægður með sigur sinna manna gegn Stjörnunni í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í kvöld.

Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 4-2 | Mörkum í öllum regnbogans litum rigndi í Garðabæ
Stjarnan lagði Keflavík að velli 4-2 þegar liðin áttust við í feykilega fjörugum leik í átta liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld.

Vestramenn áfram í undanúrslit Mjólkurbikarsins
8-liða úrslit Mjólkurbikars karla hófst í dag á Ísafirði þar sem Vestri tók á móti Þór. Vestri vann leikinn 2-0 og eru því komnir áfram í undanúrslit en Þórsarar eru úr leik.

„Mætum einu besta liði landsins“
Sigurður Heiðar Höskuldsson og lærisveinar hans í Þór þurfa að finna leiðir til að stöðva „eitt besta lið landsins“ í dag þegar Þórsarar sækja Vestra heim í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Þróttur mætir bikarmeisturunum
Dregið var í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla og kvenna í fótbolta í dag. ÍBV, sem hefur þegar slegið Víking og KR út, mætir Val karlamegin en kvennamegin er stórleikurinn milli Vals og Þróttar. Þessi lið mættust í Bestu deildinni á dögunum og þá unnu Þróttarar á Hlíðarenda, 1-3.

„Ég hafði góða tilfinningu fyrir þessum leik“
Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins í kvöld þegar þeir lögðu Breiðablik af velli 1-2 á Kópavogsvelli. Daði Berg Jónsson skoraði sigurmark Vestra og lagði að auki upp fyrra markið.

Bikarævintýri Fram heldur áfram
Eftir að slá FH út í 32-liða úrslitum fór Fram til Akureyrar og lagði bikarmeistara KA. Fram er þar með komið í 8-liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu á meðan lánlaust lið KA er úr leik.

Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára í Akraneshöllinni
Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni til að slá 2. deildarlið Kára úr leik í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Þá vann Valur nauman 2-1 sigur á nágrönnum sínum í Þrótti Reykjavík.

Afturelding lagði ÍA á Akranesi og ÍBV hefndi sín
Þremur af leikjum kvöldsins í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla er nú lokið. Á Akranesi var Afturelding í heimsókn og fór það svo að gestirnir unnu 1-0 útisigur. Þá hefndi ÍBV fyrir tapið gegn KR á dögunum með frábærum 3-2 sigri í Laugardalnum.

Þór komið áfram eftir öruggan sigur á Suðurlandi
Þór Akureyri sótti Selfoss heim í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Það verður ekki sagt að gestirnir hafi lent í vandræðum en þeir unnu þægilegan 4-1 útisigur og eru komnir í átta liða úrslit.

Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta
Vængmaðurinn Luke Rae verður ekki með KR næstu vikurnar. Um er að ræða mikið högg fyrir Vesturbæjarliðið þar sem Luke hefur verið magnaður það sem af er sumri. Í sex leikjum í Bestu deild karla í knattspyrnu hefur hann skorað þrjú mörk og lagt upp þrjú til viðbótar.

Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusamband Íslands fundaði í dag. Þar voru tveir leikmenn úrskurðaðir í bann í næstu umferð Mjólkurbikars karla. Um er að ræða 16-liða úrslit og fara leikirnir fram 14. og 15. maí næstkomandi.

Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum
Það verða fjórir Bestu deildar slagir í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta en dregið var í hádeginu í dag.

Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum
Fram er komið í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Fram á heimavelli sínum í Úlfarsárdal. Þá er Þór Akureyri komið áfram eftir sigur á ÍR í alvöru Lengjudeildarslag.

Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val
Sigurður Breki Kárason, sem varð á dögunum yngsti leikmaður til að byrja leik í sögu efstu deildar karla í fótbolta á dögunum, skoraði eitt marka KR sem flaug áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Alexander Rafn Pálmason, yngsti leikmaður í sögu efstu deildar karla í fótbolta hér á landi, gerði sér lítið fyrir og skoraði tvennu í sama leik. Valsmenn komust einnig áfram, með sigri gegn Grindavík.

Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík
Stjarnan lenti í gríðarlegum vandræðum gegn Lengjudeildarliði Njarðvíkur í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta. Á endanum unnu Garðbæingar 5-3 sigur í framlengingu.

Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar
Íslandsmeistarar Breiðabliks lentu ekki í neinum vandræðum gegn Fjölni og eru komnir í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Á Húsavík var Lengjudeildarslagur og var það Þróttur Reykjavík sem fór með sigur af hólmi.

Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit
Bestu deildar lið ÍA og Lengjudeildarlið Selfoss komust í dag áfram í sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram
Víkingar fara ekki í úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir afhroð í Vestmannaeyjum. Undanfarin fimm ár hafa Víkingar komist alla leið í úrslit en þeir sáu ekki til sólar í Eyjum í dag.

„Maður er náttúrlega bara í pínu sjokki“
ÍBV gerðu sér lítið fyrir og slógu Víking Reykjavík úr leik í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í dag með sannfærandi 3-0 sigri þegar liðin mættust á Þórsvelli í Vestmannaeyjum.

Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik
Afturelding, Keflavík, Víkingur Ólafsvík og Kári tryggðu sér öll sæti sextán liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í dag.

Völsungur vann vítaspyrnukeppni á afmælisdeginum
Fótboltalið Völsungs fagnaði 98 ára félagsins með því að komast áfram í 32 liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur í vítaspyrnukeppni á útivelli gegn Tindastóli. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en 7-8 fyrir Völsung eftir vítaspyrnukeppnina.