Viðskipti
127 128 129 130 131 132 133 134 135 … 223 ›
Olíuverð hækkar Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag. Fjárfestar bíða upplýsinga um olíubirgðastöðu í Bandaríkjunum en þær verða birtar síðar í dag. Búist er við að birgðirnar hafi dregist saman á milli vikna. Viðskipti erlent 13.9.2006 11:55
TM boðar til hluthafafundar Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) hefur ákveðið að boða til hluthafafundar þann 26. september næstkomandi til að fjalla um tillögu stjórnar TM um útgáfu nýrra hluta í félaginu. Viðskipti innlent 13.9.2006 11:45
Atvinnuleysi minnkar 1.948 mann voru á atvinnuleysisskrá í síðasta mánuði en það jafngildir 1,2 prósenta atvinnuleysi, að því er fram kemur í nýbirtum tölum Vinnumálastofnunar. Þetta er minna atvinnuleysi en gert var ráð fyrir. Viðskipti innlent 13.9.2006 11:32
Soros berst gegn fátækt Bandaríski auðkýfingurinn George Soros hefur ákveðið að veita Sameinuðu þjóðunum 50 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 3,5 milljarða íslenskra króna, á næstu fimm árum til að berjast gegn fátækt og útbreiðslu alnæmis í Afríku. Viðskipti erlent 13.9.2006 10:12
Margir án atvinnu í Bretlandi Atvinnuleysi mældist 5,5 prósent í Bretlandi á öðrum fjórðungi ársins en þetta jafngildir því að 1,7 milljónir manna hafa verið án atvinnu í landinu. Atvinnuleysi í Bretlandi hefur ekki verið meira í sex ár, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar. Viðskipti erlent 13.9.2006 09:49
Landsframleiðsla jókst umfram áætlanir Landsframleiðsla jókst að raungildi um 7,5 prósent á síðasta ári, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar yfir þjóðhagsreikninga á árinu. Í áætlun frá því í mars var gert ráð fyrir 5,5 prósenta hagvexti. Skýrist munurinn einkum af tekjum í útfluttri þjónustu en þær reyndust tæpum 10 milljörðum krónum meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Viðskipti innlent 13.9.2006 09:39
Ný ofurtölva tilbúin eftir tvö ár Eftir tvö ár lítur öflugasta tölva í heimi dagsins ljós en hún mun gera líkön í læknisrannsóknum. Leikjavísir 12.9.2006 17:18
Greitt undir fjölmiðlamógúl Bandaríska fjölmiðlasamsteypan News Corporation, sem er í eigu ástralska fjölmiðlakóngsins Ruperts Murdochs, er sögð greiða leigu fyrir íbúð hans í námunda við Central Park í New York í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 12.9.2006 17:17
Horfir til lækkunar Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í gær og fór í tæpa 66 dali á tunnu. Þar með lauk sex daga samfelldu lækkunarferli á olíuverðinu. Gengissveiflur krónunnar hamla dagsveiflum í olíuverði hér á landi. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:17
Brú II fjárfestir í netsímatækni Brú II Venture Capital Fund hefur keypt hlut í VoIP netsímafyrirtækinu SunRocket. SunRocket er ört vaxandi fyrirtæki á sviði VoIP símaþjónustu fyrir almenning. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og er í dag eitt stærsta VoIP símafyrirtækið í heiminum. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:17
Fjárfest í Matthew Williamson Baugur hefur eignast minnihluta í breska tískufyrirtækinu Matthew Williamson, með það að leiðarljósi að styrkja félagið til sóknar á erlendri grundu. Viðskipti erlent 12.9.2006 17:18
Risakauphöll góður kostur NASDAQ hefur sýnt OMX áhuga. Niðurstöðu að vænta úr sameiningarviðræðum Kauphallarinnar og OMX fyrir árslok. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Kjalar ehf. og Ker hf. sameinuð Unnið er að sameiningu Kers hf. og Kjalars ehf. hf. í eitt fjárfestingarfélag. Í tilkynningu kemur fram að við breytinguna verði Egla hf. dótturfélag í 100 prósenta eigu hins sameinaða félags. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:17
SPRON 40 milljarða virði Það eru ekki einvörðungu hlutabréf sem hafa hækkað skarpt á síðustu vikum því stofnfjárbréf í SPRON tóku við sér seinni hlutann í ágúst. Frá því í byrjun ágúst nemur hækkun bréfanna um fjórðungi og má sennilega ætla að gott sex mánaða uppgjör sparisjóðsins hafi ráðið þar miklu um. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Orkufyrirtækin færðu 20 milljarða skatt til tekna Skattainneign orkufyrirtækja myndast einkum vegna mismunar á bókfærðu virði eigna og skulda og skattalegu verði þeirra. LV átti 82 milljarða króna í ónotaðan skattalegan frádrátt. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Eitt númer í tveimur símum Og Vodafone hefur tekið í notkun þjónustu sem gerir GSM notendum kleift að hafa eitt símanúmer í tveimur símtækjum. Þjónustan nefnist Aukakort og hentar þeim sem eru með BlackBerry tæki fyrir tölvupóstsamskipti og GSM þjónustu í vinnu en vilja hafa léttari og smærri GSM síma utan vinnutíma. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:17
Verðbólga hefur náð hámarki Tólf mánaða verðbólga mælist 7,6 prósent og er undir spám bankanna. Styrkir vaxtastefnu Seðlabankans að mati sérfræðings. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Credit Suisse telur Actavis standa vel í samkeppni Alþjóðlegi bankinn Credit Suisse er fyrstur erlendra greiningaraðila til að fjalla um Actavis. Bankinn horfir til annarra þátta í verðmati fyrirtækisins en íslenskir bankar hafa gert. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:17
Meiri vandræði hjá Dell Bandaríski tölvuframleiðandinn Dell hefur frestað útgáfu á afkomutölum fyrirtæksins fyrir annan fjórðung ársins. Ástæðan er athugasemdir sem bandaríska fjármálaeftirlitið (SEC) gerði við bókhald fyrirtækisins síðastliðin fjögur ár. Viðskipti erlent 12.9.2006 17:18
Íranskur banki á svörtum lista Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur sett íranska ríkisbankann Saderat á svartan lista vestanhafs. Að sögn Stuarts Levey, yfirmanns deildar innan bandaríska fjármálaráðuneytisins sem sér um mál er tengjast hryðjuverkastarfsemi og fjármálanjósnum, er bankinn grunaður um að hafa millifært fjármuni til hryðjuverkasamtaka. Viðskipti erlent 12.9.2006 17:17
Excel Airways í fimmta sæti Excel Airways, sem er dótturfélag Avion Group, er orðin fimmta stærsta ferðaskrifstofa Bretlands, samkvæmt samantekt breskra flugmálayfirvalda. Tölurnar taka til seldra ferða 2005-6. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Aldrei minni afli Heildarafli fyrir fiskveiðiárið 2005/2006 nam tæpum 1,3 milljónum tonna. Þetta er 475 tonnum minna en á fyrra fiskveiðiári, samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Meðalafli síðastliðinn 14 ára nemur hins vegar rúmum 1,8 milljónum tonna og hefur aflinn því aldrei verið minni. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Leiðin vörðuð að miðstöð fjármála Nefnd forsætisráðherra sem skipuð var í nóvember í fyrra til að fjalla um forsendur alþjóðlegrar fjármálastarfsemi hér á landi og samkeppnishæfni er langt komin í störfum sínum. Þegar nefndin var skipuð var gert ráð fyrir að hún skilaði tillögum í vor, en samkvæmt heimilidum Markaðarins er allt útlit fyrir að þeim verði skilað í næsta mánuði. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Dagsbrún skipt upp í tvö rekstrarfélög Fjarskiptafélagið Teymi og fjölmiðlafélagið 365 verða skráð í Kauphöll Íslands. Dagsbrún selur fasteignir í sparnaðarskyni. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Gáfu út fyrir 18 milljarða króna Glitnir hefur gefið út víkjandi skuldabréf í Bandaríkjunum fyrir 250 milljónir dala, en það samsvarar um 18 milljörðum íslenskra króna. Kaupendur bréfanna voru að megninu til bandarískir fagfjárfestar. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Hrein eign Lífeyrissjóða rýrnar Hrein eign lífeyrissjóðanna nam um 1.350 milljörðum króna í lok júli síðastliðins og lækkaði um rúma 8,4 milljarða milli mánaða, samkvæmt tölum frá Seðlabankanum. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Spá lækkun á verði málma Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) greindi frá því í úttekt sinni á horfum í málmiðnaði í síðustu viku að verð á málmum hefði náð hámarki og líkur væru á að það lækkaði um allt að 60 prósent á næstu fimm árum. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Síldin fremur til bræðslu en manna Svo getur farið að hátt í 200 þúsund tonn af norsk-íslenskri síld fari til bræðslu í Noregi í haust og vetur í stað þess að senda hana í vinnslu til manneldis en fyrir það fæst hærra verð. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Skoða allt sem ekki er venjulegt Í fjármálageiranum hefur komið fram nokkur gagnrýni á að kaupum Hannesar Smárasonar, forstjóra FL Group, í félaginu fyrir helgi hafi ekki fylgt tilkynning til Kauphallar. Viðskipti innlent 12.9.2006 17:18
Methalli í Bandaríkjunum Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum nam 68 milljörðum dala eða rúmum 4.800 milljörðum íslenskra króna í júlí. Um methalla er að ræða en hann skýrist fyrst og fremst af verðhækkunum á olíu. Líkur eru á að viðskiptahalli ársins verði meiri en hallinn í fyrra sem nam 717 milljörðum dala eða rúmum 51.100 milljörðum íslenskra króna. Viðskiptahallinn vestra hafði aldrei verið meiri. Viðskipti erlent 12.9.2006 16:33