
Innlendar

Broddi tapaði úrslitaleiknum
Broddi Kristjánsson varð að gera sér að góðu silfurverðlaun á Evrópumóti ölduna í badminton sem fram fer á Spáni. Broddi tapaði í dag úrslitaleiknum fyrir Dananum Martin Quist í tveimur lotum, 21-12 og 21-11.

Broddi í úrslit á Evrópumótinu
Gamla kempan Broddi Kristjánsson er kominn í úrslit á Evrópumóti öldunga í badminton sem fram fer á Spáni. Broddi mætir Dananum Martin Quist í úrslitaleik á morgun eftir að hafa lagt Danann Jesper Tolman í undanúrslitum í morgun.

Öruggur sigur hjá FH
FH er Íslandsmeistari í frjálsum íþróttum en liðið vann öruggan sigur í stigakeppni Meistaramótsins. ÍR hafnaði í öðru sæti en Breiðholtsliðið vann í stigakeppni kvenna.

Silja vann öll sín hlaup
Silja Úlfarsdóttir úr FH vann sigur í öllum sínum hlaupum á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum. Hún vann í dag í 200 metra hlaupi þegar hún hljóp á 24,75 sekúndnum.

FH efst eftir fyrri dag
FH er efst heildarkeppninni eftir fyrri keppnisdaginn á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum. Hafnfirðingar hafa forystu bæði í karla og kvennaflokki og hefur því örugga forystu á ÍR sem er í öðru sætinu.

Sveinn Elías sigursæll
Sveinn Elías Elíasson úr Fjölni vann gullverðlaun í 100 og 400 metra hlaupi á Mestaramóti Íslands í dag. Keppnin fer fram á Laugardalsvelli.

Kristbjörg setti Íslandsmet
Kristbjörg Helga Ingvarsdóttir setti í dag Íslandsmet í sleggjukasti kvenna. Hún varð fyrst íslenskra kvenna til að kasta sleggju yfir 50 metra en hún náði tvívegis að kasta 51,86 metra.

Ragna fær japanskan mótherja
Í morgun var dregið í badmintonkeppni Ólympíuleikana. Ragna Ingólfsdóttir mun mæta Eriko Hirose frá Japan í fyrstu umferð en það verður í fyrsta sinn sem þær mætast í alþjóðlegri keppni.

Silja leggur hlaupaskóna á hilluna
Hlaupadrottningin Silja Úlfarsdóttir hefur ákveðið að leggja hlaupaskóna á hilluna. Henni tókst ekki að ná því markmiði að komast á Ólympíuleikana og hefur nú ákveðið að hætta keppni. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun.

Ásdís bætti Íslandsmetið í spjótkasti
Frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni bætti í morgun eigið Íslandsmet í spjótkasti þegar hún kastaði 59,80 metra og sigraði á móti í Lapinlahti í Finnlandi. Hún bætti fjögurra vikna gamalt met sitt um 2,31 metra.

Helga endaði í sjöunda sæti
Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni endaði í sjöunda sæti á heimsmeistaramóti unglinga í frjálsum íþróttum í Póllandi. Hún var aðeins átta stigum frá því að bæta Íslandsmet sitt.

Stangirnar bárust ekki í tæka tíð
Sveinn Elías Elíasson úr Fjölni hefur lokið keppni á HM unglinga í frjálsum íþróttum í Bydgoszcz í Pólandi.

15. bikarsigur FH í röð
Lið FH úr Hafnarfirði varð í dag hlutskarpast á bikarmótinu í frjálsum íþróttum fimmtánda árið í röð. Liðið vann sigur í bæði karla- og kvennalfokki og hlaut samtals 180,5 stig. Sveit ÍR varð í öðru sæti með 156 stig og Breiðablik í því þriðja með 141,5 stig.

Tvö Íslandsmet og Ólympíulágmark í Tallinn
Ásdís Hjálmsdóttir og Íris Anna Skúladóttir bættu bæði Íslandsmet í sínum greinum í Evrópubikarkeppni landsliða í Tallinn í Eistlandi.

Helga Margrét bætti Íslandsmetið í sjöþraut
Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni, bætti í dag Íslandsmetið í sjöþraut á móti í Tékklandi.

Ísland áfram í úrslit Evrópukeppni smáþjóða
Íslenska landsliðið í blaki gerði um helgina góða ferð til Möltu þar sem liðið tryggði sér þátttökurétt í úrslitakeppni Evrópumóts smáþjóða í blaki.

Hjörtur náði ÓL lágmarki
KR-ingurinn Hjörtur Már Reynisson náði B-lágmarki fyrir Ólympíuleikana á móti í Mónakó í morgun þegar hann synti 100 metra flugsund á tímanum 54,46 sekúndum. Hjörtur átti best 55,12 sekúndur sem var tími sem hann náði á ÓL árið 2004.

Sigrún Brá tryggði sér sæti á ÓL
Sundkonan Sigrún Brá Sverrisdóttir úr Fjölni tryggði sér í dag keppnisrétt á Ólympíuleikunum í Peking í sumar þegar hún setti íslandsmet í 200 metra skriðsundi á móti í Mónakó.

ÍF stendur í ströngu á morgun
Á morgun, laugardag, mun Íþróttasamband fatlaðra standa að tveimur mótum. Íslandsmót ÍF í frjálsum íþróttum utanhúss mun fara fram á Laugardalsvelli og Bikarkeppni ÍF í sundi mun fara fram í íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi.

Bergur Ingi náði Ólympíulágmarki
Sleggjukastarinn Bergur Ingi Pétursson úr FH tryggði sér í dag keppnisrétt á Ólympíuleikunum í Peking þegar hann bætti eigið Íslandsmet og kastaði 74,52 metra á móti í Kaplakrika.

Björgvin setti Íslandsmet
Björgvin Víkingsson úr FH setti í dag nýtt Íslandsmet í 400 metra grindahlaupi á móti í Rhelingen í Þýskalandi. Hinn 25 ára gamli hlaupari bætti met Þorvaldar Þórssonar frá árinu 1983 um 21/100 úr sekúndu þegar hann kom í mark á tímanum 51,17 sekúndum.

Stærsta sjónvarpsíþróttahelgi sögunnar
Framundan er risaíþróttahelgi en fjöldi íþróttaviðburða verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2 um helgina.

Dagný Linda leggur skíðin á hilluna
Dagný Linda Kristjánsdóttir, fremsta skíðakona landsins síðustu ár, hefur ákveðið að leggja skíðin á hilluna vegna meiðsla. Þatta kemur fram í fréttatilkynningu frá Skíðasambandinu.

Ekki loku fyrir það skotið að Bjarni lýsi leik á EM
Undirskriftalistinn sem fór í loftið á bloggsíðu Henrys Birgis Gunnarssonar í gær hefur vakið mikla athygli og þegar þetta er ritað hafa yfir 800 manns skorað á Rúv að fá Bjarna Felixson til að lýsa leikjum á EM í knattspyrnu í sumar.

Skorar á Rúv að fá Bjarna Fel til að lýsa leikjum á EM
Henry Birgir Gunnarsson, blaðamaður á Fréttablaðinu og stjórnandi útvarpsþáttarins Skjálfanda á X-inu 977, hefur hrint í framkvæmd undirskriftasöfnun á bloggsíðu sinni. Þar hvetur hann íþróttastjóra Rúv til að fá goðsögnina Bjarna Fel til að lýsa leikjum á EM í knattspyrnu í sumar.

Ragna á Ólympíuleikana
Í dag var gefinn út nýr heimslisti í badminton. Ragna Ingólfsdóttir er í 56. sæti í einliðaleik kvenna og með þeim árangri er ljóst að Ragna hefur öðlast keppnisrétt á Ólympíuleikunum í sumar.

SA vann kærumálið og er meistari
Í gær varð það endanlega ljóst að Skautafélag Akureyrar er Íslandsmeistari karla í íshokkí. Áfrýjunardómstóll ÍSÍ kvað þá upp dóm í máli SA gegn Skautafélagi Reykjavíkur.

Rúnar Kristinsson
Var valinn efnilegastur á Íslandsmótinu 1987 en fór ekki atvinnumennsku fyrr en 1994 eftir að hafa orðið bikarmeistari með KR. Átti langan og gæfusaman atvinnumannaferil þar sem hann lék í Svíþjóð, Noregi og Belgíu.

Íslenska liðið lauk keppni í dag
Íslenska badmintonlandsliðið hefur lokið keppni á EM í Danmörku. Það varð ljóst eftir að liðið tapaði síðustu tveimur leikjum sínum í tvíliðaleik karla nú síðdegis.

Sigurður Jónsson
Varð Íslandsmeistari með ÍA árið 1984, átján ára gamall, og gekk í kjölfarið til liðs við Sheffield Wednesday. Þar lék hann í fjögur ár og var svo keyptur til Englandsmeistara Arsenal þar sem hann var í tvö ár.