Lög og regla

Hegningarlagabrotum snarfækkar
Hegningarlagabrotum hefur fækkað um 55 prósent í Hafnarfirði frá því í ársbyrjun 2003 þegar lögreglan þar setti sér fyrst stefnu og markmið. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði sem Lögreglan í Hafnarfirði hefur birt.

Upplýstu sex fíkniefnamál
Sex fíkniefnamál og vopnalagabrot komu upp í sameiginlegu átaki lögreglunnar í Kópavogi og Hafnarfirði í nótt. Við leit í tveimur húsum og á fólki fannst amfetamín, kókaín, hass og marijúana, en lögregla gefur ekki upp hversu mikið. Þá var lagt hald á rafstuðbyssu, hnífa og kylfur.

Á vélsleðum á götum Grindavíkur
Lögreglunni í Keflavík bárust í gærkvöldi kvartanir um það að vélsleðaeigendur í Grindavík væru að þeysa þar um götur og stíga, sem er bannað. Þegar til kom reyndust sleðaför vera víða um bæinn og fimmtán ára unglingur reyndist vera í hópi sleðamanna, réttindalaus og á óskráðum sleða.

Maður sóttur eftir veltu í Bólstaðarhlíðarbrekku
Karlmaður, sem var einn í bíl sínum slasaðist alvarlega þegar bíllinn valt í Bólstaðahlíðarbrekku ofan við Húnaver seint í gærkvöldi og valt nokkarar veltur. Björgunarmenn þurftu að klippa flakið utan af manninum og var kallað á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hún braust norður í éljagangi og afar slæmu skygni og gat loks lent á Blönduósi, þangað sem maðurinn var fluttur.

Mótmæla lögregluvaldi Vegagerðar
Landssamband lögreglumanna mótmælir því harðlega að starfsmönnum Vegagerðarinnar verði veitt víðtækt lögregluvald og telur svo vanhugsaðar lagabreytingar illskiljanlegar. Þá hafa atvinnubílstjórar hafið undirskriftasöfnun gegn áformunum.

Landspítalinn skaðabótaskyldur gagnvart konu
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að Landspítalinn væri skaðabótaskyldur gagnvart fimmtugri konu vegna læknismeðferðar hjá spítalanum.

Vörubíl ekið aftan á annan vörubíl á Krísuvíkurvegi
Vörubíl var ekið aftan á annan vörubíl á Krísuvíkurvegi upp við Vatnsskarð á fjórða tímanum. Lögregla og sjúkrabíll eru á vettvangi en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Hafnarfirði eru ökumenn vörubílanna ekki alvarlega slasaðir og þykja hafa sloppið mjög vel. Vörubílinn sem ekið var aftan á hinn er mikið skemmdur en ekki er talið að tafir verið á umferð um Krísuvíkurveg af þessum sökum.

Mótmæla því að Vegagerðarmenn fái lögregluvald
Landssamband lögreglumanna mótmælir harðlega fyrirliggjandi frumvarpi til breytinga á umferðarlögum þar sem starfsmönnum Vegagerðarinnar er veitt víðtækt lögrelgluvald.

Kærir líklega ekki
Sverri Þór Sverrissyni, eða Sveppa eins og hann er betur þekktur, þykir ólíklegt að hann kæri þann sem gaf honum glóðarauga um helgina. Árásarmaðurinn hefur beðið hann afsökunar.
Ók á ljósastaur
Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og ók á ljósastaur á Hafnavegi, nálægt aðalhliðinu hjá Varnarliðinu á Miðnesheiði snemma kvölds. Lítil sem engin meiðsl urðu á fólki.

Ók á 132 kílómetra hraða
Tveir voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjanesbæ í morgun. Sá sem hraðar ók var á 132 kílómetra hraða þar sem er 90 kílómetra hámarkshraði en hinn á 116 kílómetra hraða, einnig á vegi þar sem má hraðast aka á 90 kílómetra hraða.
Átján umferðaróhöpp í dag
Fjórtán umferðaróhöpp og eitt umferðarslys hafa verið tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík frá því á hádegi í dag og alls átján frá því í morgun. Meiðslin í eina umferðarslysinu voru minniháttar en annars hefur þetta verið meiðslalaust.

Ákvörðun um matsmenn frestað
Héraðsdómur Reykjavíkur frestaði nú síðdegis ákvörðun um hvort hlutlausir matsmenn verði kallaðir til í Baugsmálinu. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari, óskaði eftir að hlutlausir sérfræðingar yrðu fengnir til að leggja mat á gögnin sem lögð hafa verið fram.

Tveir viðurkenna fíkniefnasölu
Lögreglan á Ísafirði hefur sleppt tveimur mönnum úr haldi sem grunaðir eru um hasssölu. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald síðasta föstudag sem átti að renna út síðdegis í dag en málið telst nú upplýst. Öðrum manninum var sleppt í gærkvöldi en hinum í morgun. Þeir hafa játað að dreifa kannabisefnum á norðanverðum Vestfjörðum.

Fazmofélagi kýldi Sveppa
Ofbeldismaður, sem oft hefur verið kærður fyrir líkamlegt ofbeldi, kýldi Sverri Þór Sverrisson úr Strákunum í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Á heimasíðunni tveir.is tekur hann á móti áskorunum eins og Strákarnir á Stöð 2. Þeir sem standa að síðunni eru úr fazmo-genginu svokallaða en á síðunni mæla þeir gegn ofbeldi.

Kröfu verjenda í Baugsmáli hafnað
Hæstiréttur hafnaði í dag beiðni verjenda í Baugsmálinu um að þeim átta ákæruliðum sem eftir standa í málinu yrði vísað frá dómi. Verjendur höfðu krafist þess að málinu yrði vísað frá þar sem enginn hæfur saksóknari hefði verið mættur í dómssal þegar það var tekið fyrir á síðasta ári.

Enn lýst eftir árásarmanni
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir hugsanlegum vitnum að því þegar ráðist var á unga stúlku á Sogavegi á föstudagskvöld. Maðurinn var á rauðum, eða dökkrauðum fólksbíl, sem líkist Subarau Impresa, en gæti þó verið stærri bíll.

Níutíu kærðir fyrir smygl
Um níutíu kæruskýrslur voru gerðar hjá embætti sýslumannsins á Seyðisfirði um helgina, flestar vegna smygltilrauna. Óvenju mikil umferð var um Egilsstaðaflugvöll um helgina.
Féll af bifhjóli og viðbeinsbrotnaði
Ökumaður bifhjóls viðbeinsbrotnaði og hlaut fleiri meiðsl þegar hann féll af hjóli sínu á mótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis á Akureyri í gærkvöldi. Slysið var með þeim hætti að hann óttaðist að ökumaður bíls, sem kom á móti, ætlaði að beygja þvert fyrir hann. Hann nauð hemlaði því hjólinu en við það féll hann í götuna.

Fjögur fíkniefnamál í Hafnarfirði og Kópavogi
Fjögur fíkniefnamál komu upp í sameiginlegu átaki lögreglunnar í Hafnarfirði og í Kópavogi í gærkvöldi og í nótt og var lagt hald á hass, anfetamín og kókaín. Fjórir menn voru handteknir í aðgerðunum en sleppt undir morgun að yfirheyrslum loknum. Auk þessa var einn maður handtekinn í Keflavík í nótt með fíkniefni í fórum sínum.
Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni vegna fíkniefnabrota. Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók manninn á Gamlársdag og hefur lagt hald á um 1,5 kíló af hassi auk annarra fíkniefna og peninga.

Beiðni um ógildingu framsals vísað frá dómi
Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu albansks karlmanns sem grunaður er um manndráp í Grikklandi á jóladag 2004 um að ákvörðun dómsmálaráðherra um að framselja hann til Grikklands yrði hnekkt. Maðurinn kærði framsalið til Héraðsdóms Reykjavíkur sem staðfesti framsalið.

Gæsluvarðhald framlengt
Hæstiréttur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir albönskum karlmanni sem grunaður er um að hafa myrt mann í Grikklandi á jóladag 2004. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 16. janúar eða þar til niðurstaða hefur fengist í máli sem rekið er vegna ákvörðunar stjórnvalda um að framselja hann grískum yfirvöldum.

Tveir slösuðust í árekstri
Ökumenn tveggja bíla slösuðust þegar bílarnir skullu saman í mótum Sæbrautar og Faxagötu um klukkan hálf tvö í nótt. Annar bíllinn stóð kyrr á rauðu ljósi þegar hinum var ekið aftan á hann á talsverðri ferð. Bílarnir stórskemmdust og þurfti að fjarlægja þá af vettvangi með kranabílum.
Grunaðir um fjárdrátt
Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gærluvarðhald, grunaðir um fjárdrátt af fyrirtækinu Og Vodafone, eftir að upp komst um falsaðar beiðnir í umferð á milli jóla og nýárs.

Rannsóknardeildin réð úrslitum
Lögreglan á Akranesi verður lykilembætti á Vesturlandi samkvæmt ákvörðun Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra en ekki Borgarnes eins og nefnd sem gerði tillögur um fækkun lögregluumdæma gerði tillögu um. Björn segir helstu ástæðuna þá að rannsókn lögreglumála sé eitt af stærstu verkefnum lykilembætta og mikil og góð reynsla sé af rannsóknastarfi á Akranesi.

Grunar lögbrot í stofnfjárviðskiptum í SPH
Fjármálaeftirlitið grunar að lög um fjármálafyrirtæki hafi verið brotin við kaup á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar í fyrrasumar og hefur Ríkislögreglustjóri hafið rannsókn á málinu, að sögn Morgunblaðsins. Grunur leikur á að ýmist hafi upplýsingum verið leynt, eða rangar upplýsingar verið gefnar.

Fundu eitt kíló af hassi
Rúmlega kíló af hassi fannst við húsleit í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Hassið tilheyrir karlmanni sem var handtekinn á Gamlársdag og úrskurðaður í gæsluvarðhald en síðan þá hefur verið gerð leit í fjölda húsa í Vestmannaeyjum.
Slapp ómeiddur þegar eldur gaus upp í jeppa
Ökumaður, sem var einn á ferð í jeppa sínum, slapp ómeiddur, þegar eldur gaus upp í bílnum í Eyjafirði í gærkvöldi. Þegar eldurinn kom upp missti ökumaður stjórn á bílnum, sem hafnaði utan vegar, en þar komst maðurinn út.
Jeppi og fólksbíll skullu saman á Kjalarnesi
Fólksbíll og jeppi skullu saman á Kjalarnesi um fimmleytið í gær með þeim afleiðingum að jeppinn valt. Kona var flutt á slysadeild en ekki er talið að um alvarleg meiðsl á fólki hafi verið að ræða. Það tók um hálftíma að klippa bílstjóra jeppabifreiðarinnar úr flakinu.