
Innlent

Sleit háspennulínu
Lögreglan á Akureyri þurfti í dag að aðstoða mann sem var að flytja bát sinn við bæinn. Hátt mastur var á bátnum sem fór í háspennulínu á Moldhaugahálsi rétt fyrir norðan Akureyri. Þrír strengir slitnuðu við þetta en um sveitalínu er að ræða og fór rafmagn af bæjum í kring. Maðurinn slapp ómeiddur og báturinn að mestu óskemmdur.

Ný þyrla Gæslunnar komin til landsins
Ný leiguþyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan fimm. Hún er sömu gerðar og TF-LÍF, Super Puma, og er leigð frá Noregi. Koma hennar er liður í eflingu Landhelgisgæslunnar í kjölfar brotthvarfs þyrlusveitar Varnarliðsins. Bæði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, voru viðstaddir þegar þyrlan lenti og lýstu þeir yfir mikilli ánægju með hve skamman tíma tók að fá þyrluna til landsins.

Hvetja til að jafnréttislögum verði fylgt við uppstillingu á lista
Atvinnu- og stjórnmálahópur Femínistafélags Íslands og nemendur stjórnmálaskóla félagsins hvetja til þess að við uppsetningu lista fyrir komandi Alþingiskosningar verði fylgt jafnréttislögum.

Sveinn sækist eftir fyrsta sæti í Norðvesturkjördæmi
Sveinn Kristinsson, bæjarfulltrúi á Akranesi, gefur kost á sér í fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Sveinn varð varabæjarfulltrúi á Akranesi árið 1990 en var kjörinn bæjarfulltrúi 1994.

Dagný sækist ekki eftir endurkjöri
Dagný Jónsdóttir alþingismaður sækist ekki eftir sæti á framboðslista Framsóknarflokksins á næsta kjörtímabili.

Ný þyrla Landhelgisgæslunnar á leið til landsins
Ný þyrla Landhelgisgælunnar er nú á leið til landsins. Hún hélt á stað frá Noregi í morgun og hafði viðkomu á leiðinni í Færeyjum. Reiknað er með að hún lendi við flugskýli Landhelgisgæslunnar um klukkan hálf fimm. Þyrlan verður þriðja þyrla Landhelgisgæslunnar og bætist í hóp TF-LÍF og TF-Sif.

Rennslið í Skaftá að ná jafnvægi
Rennslið við Sveinstind í Skaftá er að ná jafnvægi eftir hlaup sem hófst í ánni fyrir um 10 dögum. Fréttavefurinn Sudurland.is greinir frá þessu en þar segir að hlaupið hafi aldrei orðið verulegt enda stutt síðan hljóp úr báðum Skaftárkötlum.

Flugslys sviðsett á Bíldudalsflugvelli
Neyðar- og björgunarsveitaæfing hefur staðið yfir á Bíldudal í dag. Sett var á svið flugslys þar sem flugvél með 21 farþega um borð lenti harkalega á Bíldudalsflugvelli.

Slapp ómeiddur eftir bílveltu
Ungur karlmaður slapp ómeiddur þegar hann velti bíl sínum, um hádegisbil í dag, við Reyjarskóla í Hrútafirði. Ökumaðurinn var einn í bílnum og er bílinn gjörónýtur.

Yoko Ono ætlar að helga stað friðarsúlunnar
Yoko Ono, ekkja bítilsins John Lennon, er nú stödd hér á landi en í þessari heimsókn sinni ætlar hún meðal annars að helga staðinn þar sem friðarsúlur hennar koma til með að rísa í Viðey.

Keldur seldar?
Nefnd sem fjallað hefur um málefni Tilraunastöðvar Háskólans í meinafræði að Keldum, leggur til að reist verði fimm þúsund fermetra bygging í Vatnsmýrinni undir starfsemina og Keldur verði seldar.

Virkjanir hafa mikil áhrif á ferðaþjónustu í Skagafirði
Skagafjarðarvirkjanir koma til með að hafa mikil áhrif á ferðaþjónustu ef af þeim verður, að mati eigenda Ferðaþjónustunnar á Bakkaflöt, en flúðasiglingar fyrirtækisins koma þá til með að leggjast af.

Kaupa Icelandair
Líkur eru á því að gengið verði frá sölu á ríflega helmingshlut í Icelandair á næstu dögum, að stærstum hluta til hóps fjárfesta með tengsl við fyrrum Sambandsfyrirtæki.

Hátt í fimmtíu bílar eru skráðir í sparaksturskeppni
Hátt í fimmtíu bílar eru skráðir í sparaksturskeppni sem hefst við Húsgagnahöllina á Bíldshöfða nú klukkan ellefu. FÍB og Atlantsolía standa að keppninni og geta þeir sem vilja vera með mætt til leiks allt til klukkan hálf eitt.

Jón Baldvin ekki í framboði í Suðvesturkjördæmi
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, er ekki á meðal þeirra sem buðu sig fram í prófkjör hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út í gærkvöldi og gefa 19 manns kost á sér.

Ríflega helmingshlutur í Icelandair group seldur?
Gengið verður frá sölu á ríflega helmingshlut í Icelandair group til hóps fjárfesta um helgina, að því fram kemur í Morgunblaðinu. Þar segir að Finnur Ingólfsson, fyrrverandi forstjóri VÍS fari fyrir hópi fjárfesta sem kaupi 30 prósent í fyrirtækinu en ásamt honum komi einnig að kaupunum þeir Helgi S. Guðmundsson og Þórólfur Gíslason.

Skutu viðvörunarskotum á hermenn frá Norður-Kóreu
Suður-kóreski herinn lét skjóta viðvörunarskotum á hermenn frá Norður-Kóreu sem sagðir eru hafa farið yfir vopnahléslínuna sem skilur löndin að. Eftir að um 40 skotum hafði verið skotið sneru Norður-Kóreumennirnir við.

Sautján ára tekinn í fjórða sinn
Sjö voru teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt og í morgun. Þrír þeirra voru próflausir. Lögreglan svipti einnig ökumann bílprófi sínu sem ók í nótt á 163 kílómetra hraða austarlega á Miklubrautinni. Sautján ára piltur var einnig stöðvaður vegna hraðaaksturs en þetta er í fjórða sinn sem hann er tekinn fyrir of hraðan akstur.
Vatnsleki í Bónus í Kringlunni
Vatnsleki varð í gærkvöldi í búð Bónus í Kringlunni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á staðinn eftir að vatn bunaði úr úðara á lager og í búðinni. Kúbull hafði brotnað af vatnsslökkvikerfi og fór því úðarinn í gang. Ekki urðu miklar skemmdir.

Þetta er það sem koma skal
Frumvarp um afnám einkasölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á bjór og léttu víni var lagt fram á Alþingi í gær. Er þetta fjórða þingið í röð þar sem frumvarpið er lagt fram.

Fluttur á slysadeild eftir árekstur bifhjóls og fólksbíls
Karlmaður var seint í gærkvöldi fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir árekstur bifhjóls og fólksbíls á Kleppsvegi. Maðurinn var ökumaður bifhjólsins en talið er að hann hafi brotnað á fæti.

Eldur í trésmíðaverkstæði
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að trésmíðaverkstæði í Kópavogi rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Leigubílstjóri sem átti leið hjá tók eftir að reyk lagði frá húsinu og kallaði til slökkviliðið. Þegar það kom á staðinn var mikill reykur í húsinu og töluverður eldur.
Ökumaður slapp ómeiddur
Karlmaður slapp lítið meiddur er bifreið sem hann ók valt í Hvalfjarðargöngunum um hálf sex leytið í gær. Loka þurfti allri umferð um göngin á meðan unnið var að því að koma bifreiðinni út en hún var að lokum dregin af vettvangi. Opnað var fyrir umferð skömmu eftir að búið var að koma bifreiðinni út úr göngunum en óljóst er hver tildrög slyssins voru. Bifreiðin er mikið skemmd og jafnvel ónýt.

Stjórnvöld ekki í stóriðju
Auðlindanefnd kynnir í næstu viku tillögur sínar um verndun og nýtingu auðlinda. Frumvarp verður lagt fram í vetur sem byggir á vinnu nefndarinnar.

Hlaut áverka á andliti og höfði eftir árás
Ráðist var á karlmann á fertugsaldri á veitingastað í miðborg Reykjavíkur í nótt. Karlmaðurinn hlaut talsverða ákverka bæði á andliti og höfði. Tveir menn á þrítugsaldri réðust á manninn á fimmta tímanum í nótt og lömdu bæði og spörkuðu í hann.

Lifrarbólgutilfellum fjölgar
Rúmlega helmingur lifrarbólgusjúklinga hér á landi er innflytjendur. Sóttvarnarlæknir segist ekki óttast lifrarbólgufaraldur á borð við þann sem sem gekk á árunum 1989 til 1992.

Greinir á um virkjanahugmyndir
Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, leggst alfarið gegn hugmyndum um Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun í Skagafirði. Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti fyrr í vikunni að sýna hugmyndir um Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun á aðalskipulagi Skagafjarðar.
Slapp ómeiddur úr bruna á hjóli
Karlmaður slapp ómeiddur þegar kviknaði í mótorhjóli sem hann ók á Kalkofnsvegi um sjö leytið í gærkvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út og gekk því greiðlega að slökkva eldinn.

Krefst bóta vegna læknamistaka
Kona um fimmtugt ætlar að krefjast bóta vegna rangrar sjúkdómsgreiningar sem hún telur sig hafa orðið fyrir á Læknavaktinni í Kópavogi. Hún reyndist vera með heilahimnubólgu, lenti í miklum, langvarandi veikindum og síðan endurhæfingu.

Vantar áttatíu starfsmenn
Í könnun sem gerð var á öllum leikskólum í Reykjavík nú um mánaðamótin kemur í ljós að enn vantar starfsfólk í 83 stöðugildi. Nú vantar þrjá eða fleiri til starfa á sjö leikskólum í borginni en fyrir nokkrum vikum voru þessir leikskólar sautján talsins.