Innlent
283 284 285 286 287 288 289 290 291 … 334 ›
Kögun tapaði 429 milljónum Kögun hf., dótturfélag Dagsbrúnar, tapaði 429 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tímabili í fyrra skilaði fyrirtækið 223 milljóna króna hagnaði. Rekstur samstæðunnar er að mestu í samræmi við áætlanir stjórnenda að undanskildum fjármagnsliðum en 9,5 prósenta veiking krónunnar á tímabilinu hafði veruleg áhrif á fjármagnsliði fyrirtækisins. Viðskipti innlent 17.8.2006 13:17
14 mótmælendur kærðir Álfyrirtækið Alcoa í Reyðarfirði hefur formlega kært 14 mótmælendur, sem ruddust inn á lokað athafnasvæði fyrirtækisins í gærmorgun til að mótmæla framkvæmdum þar. Skaðabótakröfur gætu numið allt að 40 milljónum króna. Innlent 17.8.2006 12:04
Bílslys í rannsókn Rannsóknanefnd umferðaslysa, tvö lögregluembætti og rannsóknamenn tryggingafélaga rannsaka tildrög bílslysanna tveggja , sem urðu í gær, þar sem tveir karlmenn og ein stúlka létust. Innlent 17.8.2006 12:01
Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins þekkjast boð Ómars Ragnarssonar Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa þegið boð Ómars Ragnarssonar um að skoða Kárahnjúkasvæðið undir leiðsögn Ómars, að sögn Morgunblaðsins. Þá hafa yfirmenn NFS, Ríkisútvarpsins og Blaðsins einnig þekkst boð Ómars, en frestur til að þiggja það rann út í gær. Innlent 17.8.2006 10:07
Varar við íshellunum við Hrafntinnusker Kunnur göngugarpur og höfundur leiðsögubóka ráðleggur göngufólki að hætta sér ekki í íshellana við Hrafntinnusker þar sem erlendur ferðamaður lést í gær. Hann segir að fólk verði að vera við öllu búið í ferðum um hálendi Íslands. Innlent 17.8.2006 10:12
Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra hafa áhyggjur af vaktakerfi Alþjóðasamtök flugumferðastjóra lýsa áhyggjum vegna nýs vaktakerfis íslenskra flugumferðastjóra. Flugumferðarstjórar hafa neitað að vinna yfirvinnu frá því nýtt vaktakerfi var innleitt hjá Flugmálastjórn um miðjan marsmánuð. Innlent 17.8.2006 09:57
Skarst á kviðarholi Sjómaður um borð í íslenskum togara skarst á kviðarholi á sjöunda tímanum í gærkvöldi, þegar togarinn var að veiðum á Halamiðum, út af Vestfjörðum. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hann og mun sjómaðurinn ekki í lífshættu. Innlent 17.8.2006 09:53
Símtöl í þjónustuver OR hljóðrituð Öll símtöl við þjónustuver Orkuveitu Reykjavíkur eru hljóðrituð, meðal annars til þess að vernda öryggi starfsmanna, að sögn Eiríks Hjálmarssonar upplýsingafulltrúa Orkuveitunnar, í viðtali við Fréttablaðið. Innlent 17.8.2006 09:45
Lokað fyrir umferð í suðurátt eftir Vesturlandsvegi Vegna malbikunar verður lokað fyrir umferð í suðurátt eftir Vesturlandsvegi, þjóðvegi númer eitt, frá Grundartangavegi að Akrafjallsvegi við Hvalfjarðargöng í dag og næstu tvo daga. Innlent 17.8.2006 09:42
Krónan styrkist Krónan styrktist um liðlega eitt prósent eftir tilkynningu Seðlabankans um stýrivaxtahækkun í gær. Hún hefur nú styrkst um átta prósent frá því í lok júní. Innlent 17.8.2006 09:21
ASÍ og SA segja stýrivaxtahækkun misráðna Bæði Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins telja vaxtahækkun Seðlabanka Íslands í gær misráðna. Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,5 prósentustig, í 13,5%. Í kjölfarið hækkaði Landsbankinn vexti og síðar Sparisjóðirnir og Glitnir. Innlent 17.8.2006 09:14
Maður í haldi vegna nauðgunartilraunar Maður á þrítugsaldri viðurkenndi við yfirheyrslur hjá lögreglunni í Reykjavík í gær að hafa gert tilraun til að nauðga ungri konu, þegar hún var á leið til vinnu sinnar í Breiðholti aðfaranótt fimmtudags, fyrir viku. Árásin var hrottaleg. Ekki liggur fyrir hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manninum. Innlent 17.8.2006 09:12
Hald lagt á fíkniefni og vopn Sex menn á þrítugsaldri voru handteknir í sameiginlegri aðgerð lögreglunnar í Hafnarfirði og Kópavogi, eftir að talsvert af fíkniefnum og vopn fundust við húsleilt í gærkvöldi. Innlent 17.8.2006 08:39
Þrír létust í umferðarslysum Þrír létust í umferðarslysum í gær. Tuttugu og tveggja ára karlmaður, sem var farþegi í sendibíl, sem lenti í hörðum árkestri við fólksbíl á Garðskagavegi , rétt utan við Sandgerði um sjöleitið í gærkvöldi, lést skömmu eftir að sjúkraflutningamenn komu með hann á Slysadeild Landsspítalans. Ökumaður sendibílsins er talinn hafa látist samstundis. Innlent 17.8.2006 08:30
Mistök hjá Seðlabanka Íslands Bæði Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins telja vaxtahækkun Seðlabanka Íslands í dag misráðna. ASÍ spáir harðri lendingu á næsta ári og SA segja bankann vinna gegn aðgerðum aðila vinnumarkaðarins. Innlent 16.8.2006 22:30
Hvetur göngufólk að búa sig vel Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður og höfundur leiðsögubóka um hálendið, ráðleggur göngufólki að hætta sér ekki í íshellana við Hrafntinnusker þar sem erlendur ferðamaður lést í morgun. Hann segir að fólk verði að vera við öllu búið í ferðum um hálendi Íslands. Innlent 16.8.2006 22:19
Þyrla á leið að sækja sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið út á Halamið norð-vestur af Vestjörðum að sækja sjómann. Ekki er enn vitað hvað amar að honum. Innlent 16.8.2006 21:14
Alvarlegt umferðarslys á Garðskagavegi Bílslys varð á Garðskagavegi rétt norðan við Sandgerði laust eftir klukkan sjö í kvöld. Lögreglan í Keflavík segir slysið mjög alvarlegt. Þrír eru alvarlega slasaðir. Um er að ræða tveggja bíla árekstur. Vegurinn verður lokaður fram eftir kvöldi og er lögregla enn á slysstað. Innlent 16.8.2006 20:35
Jón Ásgeir boðaður í yfirheyrslu Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, var boðaður í yfirheyrslu hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra í morgun. Innlent 16.8.2006 19:28
Ráðið niðurlögum skógarelda á Spáni Slökkviliðsmönnum í Galasíu á norð-vestur Spáni hefur tekist að ráða niðurlögum skógerelda sem hafa logað þar á stóru svæði síðasta hálfa mánuðinn. Erlent 16.8.2006 18:27
Nauðsynlegt að breyta Íbúðalánasjóði fyrir áramót Seðlabankastjóri telur algjörlega nauðsynlegt fyrir efnahags- og hagstjórnina að gera breytingar á Íbúðalánasjóði fyrir áramót. Félagsmálaráðherra bíður eftir niðurstöðu starfshóps um málið. Innlent 16.8.2006 18:53
Vinna þarf deiliskipulag fyrir Ellingsen-reit aftur Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hefur fellt úr gildi deiliskipulag á svokölluðum Ellingssen-reit í vesturbæ Reykjavíkur á þeim forsendum að það samræmist ekki ákvæðum um aðalskipulag Reykjavíkurborgar. Úrskurðurinn hefur í för með sér að framkvæmdum á reitnum seinkar líklega um marga mánuði. Innlent 16.8.2006 18:57
Rannsaka lifnaðarhætti hvala Vísindamenn á bátnum Söngur hvalsins eða "Song of the Whale" hafa lokið rannsóknum sínum á hvölum við strendur Íslands. Við tekur úrvinnsla gagna en í stað þess að veiða hvali í vísindaskyni skoða þeir lifnaðarhætti þeirra í sjónum, hljóðrita söng þeirra og mynda þá með neðansjávarmyndavélum. Innlent 16.8.2006 18:55
Gerir alvarlegar athugasemdir við Kárahnjúkastíflu Bandarískur vatnsaflsverkfræðingur gerir alvarlegar athugasemdir við Kárahnjúkastíflu og óttast að hún sé ótraust. Þrjár stíflur sömu tegundar, annars staðar í heiminum, leka og ein þeirra er ónýt. Í júlí hefti The New Scientist er sagt frá því að í Brasilíu hafi brostið göng í samskonar stíflu og Kárahnjúkastíflu með þeim afleiðingum að hún lak. Innlent 16.8.2006 18:52
Gætu þurft að fresta afplánun einhverra dóma Fangelsi landsins eru yfirfull og ef fram heldur sem horfir þurfa fangelsisyfirvöld að fresta afplánun dóma sumra manna vegna plássleysis. Norrænir fangelsisstjórar ræða meðal annars leiðir til að senda erlenda fanga til síns heima til afplánunar og reyna þannig að taka á vandanum. Innlent 16.8.2006 18:48
Alcoa kærir fjórtán mótmælendur Vinna lá niðri hjá fjórtán hundruð manns hjá Alcoa-Fjarðaáli á Reyðarfirði í morgun. Lögregla klifraði upp í krana til að ná mótmælendum niður. Alcoa Fjarðaál hefur kært fjórtán einstaklinga til lögreglunnar á Eskifirði og upplýsingafulltrúi fyrirtækisins segir þetta ekki verða liðið. Innlent 16.8.2006 17:32
Þingeyrarflugvöllur vígður Þingeyrarflugvöllur, sem hefur verið endurbyggður, verður vígður 19. ágúst af Sturlu Böðvarssyni, samgönguráðherra. Innlent 16.8.2006 17:26
Mikill viðbúnaður vegna Menningarnætur Menningarnótt er stærsti viðburður landsins og er gert ráð fyrir að þeir sem líti við í miðborginni verði á bilinu 60-100 þúsund talsins. Síðustu fjögur ár hefur verið starfandi aðgerðarstjórn milli Höfuðborgarstofu og þeirra sem koma að öryggismálum á hátíðinni og hittust fulltrúar þeirra í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í dag til að fara yfir helstu mál. Slökkviliðið og Lögreglan verða með sameiginlega aðstöðu fyrir viðbragðslið sitt í Ingólfsstræti og eiga gestir að geta leitað þanngað fari eitthvað úrskeiðis. Öflug umferðargæsla verður allan daginn í borginni og verður fjölmörgum götum lokað vegna dagskráratriða og Reykjavíkurmaraþonsins. Ökumenn eru því hvattir til að kynna sér umferðatakmarkanir á heimasíðu lögreglunnar logreglan.is en þar má einnig sjá upplýsingar hugsanleg bílastæði í nágrenni miðborgarinnar. Foreldrar og aðstandendur barna eru beðnir um að hafa sérstaka á gát á þeim í mannþrönginni en athvarf fyrir týnd börn verður staðsett í húsi Unglingasmiðjunnar við Amtmannsstíg 5a og verður símanúmer Reykjavíkur borgar símanúmer athvarfsins það er 4 11 11 11. Eftir miðnætti verður opnað athvarf í Foreldrahúsinu í Vonarstræti og verða börn yngri en 16 ára færð þanngað ef þau eru úti eftir lögboðin útivistartíma, sem og þau sem ekki hafa náð 18 ára aldri en eru undir áhrifum áfengis. Í fyrra brutust út mikil slagsmál milli unglinga og vildi Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn Reykjavíkur brýna fyrir foreldrum að "nesta" unglinga sína ekki upp af áfengi á Menningarnótt eða öðrum dögum. Innlent 16.8.2006 17:23
Eldur kviknaði hjá Ingvari Helgasyni Eldur kviknaði í bíl á verkstæði Ingars Helgasonar rétt fyrir klukkan fimm í dag. Kviknað hafði í klæðningu á vélarhlíf. Innlent 16.8.2006 17:17
Tap hjá Dagsbrún á fyrri helmingi ársins Dagsbrún tapaði rúmum 1,5 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma í fyrra skilaði félagið 321 milljóna króna hagnaði. Tap félagsins á öðrum ársfjórðungi nam rúmum 1,3 milljörðum króna. Tekjur félagsins námu hins vegar tæpum 20,2 milljörðum króna á sama tímabili og er það 188 prósenta aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Viðskipti innlent 16.8.2006 16:57