
Verslun

Dómsmálaráðherra boðar breyttan raunveruleika brugghúsa
Dómsmálaráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í dag frumvarp sem heimilar smærri brugghúsum að selja áfengi á staðnum. Fjármálaráðherra vill ganga enn lengra og einfaldlega leyfa vefverslun með áfengi.

N1 og Dropp afhenda vörur frá Boozt
N1 hefur hafið afhendingar á vörum frá sænsku netversluninni Boozt í samstarfi við Dropp og geta viðskiptavinir Boozt nú nálgast sendingar á öllum þjónustustöðvum N1 um land allt. Við pöntun geta viðskiptavinir valið úr afhendingarstöðum Dropp þegar pantað er í netverslun Boozt og að sama skapi býðst viðskiptavinum að skila vörum frá Boozt á allar þjónustustöðvar N1.

Húsnæði Garðheima verður rifið en byggt verður á nýjum stað
Nýlega rann upp langþráður dagur hjá Garðheimafjölskyldunni þegar fyrsta skóflustungan að nýjum höfuðstöðvum Garðheima var tekin við Álfabakka 6 í Reykjavík.

Breyttir tímar: Allt að gerast á Messenger, LinkedIn og Twitter
Fyrirtæki hafa breytt nálgun sinni við viðskiptavini í kjölfar Covid og ný rannsókn McKinsey sýnir að samskiptaform sölumanna og viðskiptavina eru að breytast hratt.

Máli ÁTVR gegn Sante og Bjórlandi vísað frá
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað málum ÁTVR gegn Sante ehf, Santewines SAS og Bjórlandi vegna smásölu á áfengi frá dómi.

Mikil ásókn í Parkódín: Gagnrýnir harðlega að Covid-smituðum hafi verið vísað í apótekin
Þórbergur Egilsson, sviðsstjóri verslanasviðs hjá Lyfju, segir að mikil ásókn hafi verið í verkjalyfið Parkódín (500 mg/10 mg) í gær og í dag eftir að Lyfjastofnun veitti tímabundna heimild fyrir Covid-sjúklinga að nálgast lyfið án lyfseðils. Hann gagnrýnir vinnubrögð Lyfjastofnunar harðlega.

Koma ný inn í stjórn SVÞ
Fjögur voru kjörin í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu á aðalfundi samtakanna sem fram fór í Húsi atvinnulífsins í morgun.

Verzlun Haraldar Júlíussonar á Króknum lokað í lok mánaðar
Verzlun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki verður lokað í lok þessa mánaðar eftir að hafa verið starfrækt í rúma öld. Verslunarmaðurinn Bjarni Haraldsson, betur þekktur sem Bjarni Har, lést fyrr á árinu en rak og stóð vaktina í versluninni um margra áratuga skeið.

Hala inn milljónum: Auglýsingin sem smeygir sér fram hjá nýjum lögum
Nýtt frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra tekur fyrir auglýsingar á nikótínvörum - en ekki á nikótínverslunum. Og þar sem er vilji er vegur.

Ný ILVA verslun í Kauptúni – sjáðu myndirnar
Fullt var út úr dyrum þegar ný og stórglæsileg verslun ILVA var opnuð í Kauptúni 1 þann 11.mars.

Cintamani tekur yfir rekstur hjólabúðarinnar GÁP
Cintamani hefur keypt húsnæði og rekstur hjólabúðarinnar GÁP í Faxafeni 7 í Reykjavík. Í kjölfar kaupanna var gerður samstarfssamningur um rekstur vefverslunarinnar Adidas.is sem rekin hefur verið í Faxafeni af Sportmönnum, umboðsaðila Adidas á Íslandi, undanfarinn áratug.

„Margir vöruðu okkur við að fara í rekstur með vinkonu“
Þær eru fæddar árið 1991, eru bestu vinkonur og eiga og reka saman fyrirtæki.

Hafa samið um kaup á Eldum rétt
Hagar hf. og eigendur Eldum rétt ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Haga á öllu hlutafé Eldum rétt.

Segir Bolungarvíkurgöng hafa bjargað Bjarnabúð
Margir spáðu því að Bjarnabúð í Bolungarvík, ein elsta verslun landsins, myndi lognast út af með Bolungarvíkurgöngum þegar auðveldara varð fyrir Bolvíkinga að skreppa í búðir á Ísafirði. Reynsla kaupmannsins varð þveröfug; Ísfirðingar fóru að versla í Bolungarvík.

Óvissa með umboð lækkar skuld Costco um fleiri milljónir
Costco á Íslandi þarf að greiða Samtökum verslunar og þjónustu (SVÞ) 2,8 milljónir króna auk dráttarvaxta vegna vangoldinna félagsgjalda. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem kveðin var upp í dag.

Gunnar Egill nýr forstjóri Samkaupa
Gunnar Egill Sigurðsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Samkaupa og tekur við af Ómari Valdimarssyni sem hefur gegnt stöðunni undanfarin þrettán ár. Gunnar Egill hefur starfað sjá fyrirtækinu í tuttugu ár, nú síðast sem framkvæmdastjóri verslunarsviðs.

Brynja fer frá Krónunni til Orkunnar
Brynja Guðjónsdóttir hóf á dögunum störf sem markaðsstjóri Orkunnar. Hún var áður hjá Krónunni í sambærilegum verkefnum.

IKEA, Apple, Netflix og fleiri stórfyrirtæki gera hlé á starfsemi í Rússlandi
Forsvarsmenn IKEA hafa ákveðið að stöðva rekstur fyrirtækisins í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi tímabundið vegna innrásarinnar í Úkraínu. Verslunum verður lokað og um leið gert hlé á hráefnakaupum í ríkjunum.

Ormsson laust úr skammakrók Neytendasamtakanna
Neytendasamtökin hafa tekið Ormsson af listanum yfir þá „svörtu sauði“ sem ekki hafa hlýtt niðurstöðum kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Nýir eigendur tóku við fyrirtækinu í fyrra og hafa gert upp umrætt mál.

„Svartir sauðir“: Neytendasamtökin vara fólk við því að versla við sjö nafngreind fyrirtæki
Neytendasamtökin hafa nafngreint sjö fyrirtæki sem þau vara neytendur við að versla við en fyrirtækin eiga það öll sameiginlegt að hafa ekki farið að niðurstöðum kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Vínbúðin tekur rússneskan vodka úr sölu
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur tekið ákvörðun um að taka fjórar tegundir af fimm af rússneskum vodka úr sölu vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Vodkinn verður fjarlægður úr hillum vínbúða á landinu þar til annað verður ákveðið.

„Þetta er uppáhaldsdagurinn minn“
Öskudagurinn er á morgun og landsmenn, ungir sem aldnir, flykkjast í þartilgerðar búðir að kaupa búninga fyrir morgundaginn. Mikið var að gera í Partýbúðinni þegar fréttamaður leit við fyrr í kvöld en þar er opið til miðnættis. Verslunarstjóri segir fólk eins og beljur á vori.

Nýja Vínbúðin tekur rússneskar vörur úr sölu
Nýja Vínbúðin, vefverslun með áfengi, hefur tekið allar rússneskar vörur úr sölu á vefverslun sinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá búðinni.

Feginn að losna við grímuna: „Pabbi, þú ert kominn með flösu á nefið“
Öllum sóttvarnatakmörkunum verður aflétt á miðnætti annað kvöld. Forsætisráðherra segir þjóðina vera að endurheimta eðlilegt líf eftir faraldurinn en sóttvarnalæknir minnir enn á að þetta sé ekki alveg búið. Almenningur er sáttur ef marka má lítið úrtak fréttastofu.

Vínbúðir opnar á sunnudögum?
Um áralangt skeið hafa frjálshyggjan og íhaldssemin tekist á um aðgengi neytenda að áfengi. Málefni sem við fyrstu sýn er ekki það stórt, en hefur orðið einn holdgervinga reipitogsins milli tveggja póla.

Fiskskortur vegna rysjóttrar tíðar
Skip hafa ekki komist á miðin með reglubundnum hætti vegna óhagstæðs veðurfars. Þetta hefur meðal annars haft þau áhrif að framboð er ekki gott í fiskbúðum sem hefur svo áhrif á verð.

Pollapönkarar kaupa hlut í elstu hljóðfæraversluninni
Þeir Arnar Gíslason og Guðni Finnson hafa keypt sig inn í rekstur Hljóðfærahússins. Þeir vinna saman í versluninni auk þess að standa vaktina í hljómsveitum á borð við Pollapönk, Dr. Mugison, Dr. Spock, Jónas Sig og Ensími svo eitthvað sé nefnt.

Dúndrandi rýmingarsala á Korputorgi – ILVA opnar nýja verslun í Kauptúni
„Við opnum nýja og stórglæsilega verslun í Kauptúni 1 í Garðabæ í byrjun mars og erum því að tæma húsnæðið á Korputorgi. Það er dúndur rýmingarsala í gangi hjá okkur og hægt að gera frábær kaup.

Kortavelta Íslendinga ekki aukist minna í meira en ár, netverslun þrefaldast frá 2020
Heildarkortavelta Íslendinga innanlands nam rúmum 66 milljörðum króna í janúar á þessu ári og jókst um 3,4 prósent frá sama tímabili árið áður miðað við breytilegt verðlag. Er þetta minnsti vöxturinn á milli ára frá því í október 2020.

„Látum Belgíu verða land án netverslunar“ segir leiðtogi Sósíalista
Hugmynd leiðtoga eins af stjórnarflokkunum í Belgíu hefur vakið nokkra athygli og umræðu þar í landi en hann lagði til á dögunum að netverslun yrði bönnuð til að auka veg „alvöru“ verslana og draga úr yfirvinnu í vöruhúsum.