Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Funda um ríkisábyrgð og Icelandair í Hörpu
Frumvarp til fjáraukalaga verður rætt á Alþingi á föstudag en Alþingi kemur saman á ný á morgun vegna hins svokallaða „þingstubbs“ sem samið var um í vor.

Tekjutengdar bætur til sex mánaða og hlutabótaleiðin framlengd um tvo
Hlutabótaleiðin verður framlengd um tvo mánuði, tekjutengdar atvinnuleysisbætur fást greiddar í sex mánuði og laun í sóttkví verða greidd til ársins 2021.

Ekki mælt með að ráðherrar taki þátt í samstarfi við einkaaðila
Skrifstofa löggjafarmála í forsætisráðuneytinu mat það svo að ekki væri unnt að mæla með því að ráðherrar tækju þátt í viðburðum sem væru í samstarfi við einkaaðila.

Áslaug segir mistök að hafa þegið boð Gæslunnar
Dómsmálaráðherra segir það hafa verið mistök að þiggja boð Landhelgisgæslunnar um þyrluflug frá Suðurlandi til Reykjavíkur og til baka.

Þyrluferðin „óboðlegt bruðl með almannafé og öryggistæki almennings“
Þingmaður Vinstri grænna gagnrýnir dómsmálaráðherra sem og starfsmenn Landhelgisgæslunnar fyrir ferð þar sem ráðherra var fluttur úr hestaferð á Suðurlandi til Reykjavíkur og svo aftur til baka með þyrlu Gæslunnar.

Ráðherrarnir reyndust ekki smitaðir
Niðurstöður úr síðari skimun ráðherra í ríkisstjórn Íslands vegna kórunuveiru reyndust neikvæðar í öllum tilfellum, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Fimm daga sóttkví vægari skerðing en fyrri hömlur
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir heilbrigði þjóðarinnar hafa verið forgangsmál í aðgerðum stjórnvalda frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst hér á landi.

„Kom eins og þruma úr heiðskíru lofti“
Ellefu hafa greinst með kórónuveiruna í hópsýkingu sem rakin er til Hótel Rangár. Eigandi hótelsins segir að sér og öðru starfsfólki hafi verið verulega brugðið þegar sýkingin kom upp enda hafi allir gætt vel að sóttvörnum.

Ekkert smit í fyrri skimun ráðherra
Niðurstöður hafa fengist úr fyrri skimun ráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og reyndist sýni tekin neikvæð í öllum tilfellum.

Nokkrir sem greindust tengjast Hótel Rangá
Níu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær en þar voru átta í sóttkví. Nokkrir þeirra tengdust Hótel Rangá. Niðurstöður sýnatöku hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar, sem voru á hótelinu, liggja ekki fyrir.

Kannar forsendur fyrir framhaldi á hlutabótaleiðinni
Félagsmálaráðherra kannar forsendur fyrir framhaldi á hlutabótaúrræði stjórnvalda og mögulega hækkun atvinnuleysisbóta. Hann kynnir eftir helgi aðgerðir þar sem langtíma atvinnulausum verður heimilt að fara í nám án þess að missa atvinnuleysisbætur.

Furða sig á málshöfðun Lilju
Stjórn Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS) hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hún furðar sig á ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, að stefna félagsmanni félagsins fyrir dómi.

Ríkisstjórnin í skimun eftir smit á Hótel Rangá
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar munu fara í tvöfalda skimun og viðhafa smitgát

Ferðakostnaður ríkisins lækkað um 1,1 milljarð milli ára
Ríkið segir ferðakostnað sinn hafa lækkað um 2,7 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við sama tímabil í fyrra

Smit hjá starfsmanni hótels þar sem ríkisstjórnin borðaði
Starfsmaður hótels á Suðurlandi, þar sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar dvöldust í hádeginu á þriðjudag, greindist með kórónuveiruna í dag. Starfsmaðurinn var ekki að þjónusta ráðherrana þar sem þeir snæddu.

Taktleysi að bjóða ekki fulltrúum ferðaþjónustunnar á samráðsfund
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar gagnrýnir stjórnvöld fyrir að hafa ekki boðið fulltrúum atvinnugreinarinnar á samráðsfund stjórnvalda vegna áframhaldandi aðgerða vegna kórónuveirufaraldursins sem fór fram í morgun.

Ólafur Helgi vill að veikindaleyfi yfirmanna verði skoðuð nánar af ráðuneytinu
Ólafur Helgi Kjartansson, fráfarandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, vill að veikindaleyfi Öldu Hrannar Jóhannsdóttur, yfirlögfræðings embættisins, og Helga Þ. Kristjánssonar, mannauðsstjóra embættisins, verði skoðuð nánar af dómsmáráðuneytinu.

Gagnrýna áætlun félagsmálaráðherra: „Virðist sem ráðherra fari af stað með tilkynningu áður en hún er rædd í ríkisstjórn“
Þingmaður Samfylkingarinnar furðar sig á áætlun félagsmálaráðherra um að heimila atvinnulausum að fara í nám án þess að þeir missi atvinnuleysisbætur.

Misræmi í upplýsingagjöf skrifast alfarið á stjórnvöld
Forsætisráðherra segir að það skrifist alfarið á stjórnvöld að misræmi hafi verið í auglýsingu heilbrigðisráðherra um sóttvarnareglur og upplýsingum á Covid.is. Mikilvægt sé að upplýsingagjöf sé eins skýr og mögulegt er og eins aðgengileg öllum almenningi og hægt sé.

„Mikið traust sem ráðherra sýnir mér“
Tilkynnt var í dag að Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, muni taka við starfi sérfræðings í málefnum landamæra í dómsmálaráðuneytinu.

Ólafur Helgi yfir í dómsmálaráðuneytið
Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, mun taka við starfi sérfræðings í málefnum landamæra í dómsmálaráðuneytinu um næstu mánaðamót.

Telur fjárhagslega endurskipulagningu Icelandair duga fyrir rekstri í tvö ár
Fjármálaráðherra segir að áætlanir Icelandair um fjárhagslega endurskipulagningu og hlutafjáraukningu ættu að duga fyrir rekstri félagsins í að minnsta kosti tvö ár.

„Íslensk útgerðafyrirtæki eru reiðubúin til að greiða meira fyrir auðlindina í Namibíu en hér“
Samherji greiddi hærri veiðigjöld í Namíbíu en hér á landi árið 2018 eftir að stjórnvöld þar hækkuðu veiðigjöldin úr einu prósenti í tíu prósent. Formaður Viðreisnar segir þetta sýna að útgerðir séu viljugar til að greiða veiðigjöld þrátt fyrir miklar hækkanir. Auðlindarákvæði í stjórnarskrá sé nauðsyn.

Samherji sagðist ekki hafa tíma til að taka saman ársreikninga frá Namibíu
Samherji greiddi lægra hlutfall veiðigjalda af meðalverði afla í Namibíu frá 2012 til 2017 en hér á landi. 2018 var hlutfallið orðið hærra í Namibíu en hér. Forstöðumaður Hagfræðisstofnunar segir að Samherji hafi ekki afhent umbeðna árskýrslu dótturfyrirtækis síns í Namibíu og því hafi ekki verið hægt að bera saman hagnað í löndunum tveimur.

Útilokar ekki að gerðar verði breytingar á efnahagsúrræðum
Til greina kemur að gera breytingar á þeim úrræðum sem stjórnvöld kynntu í þágu atvinnulífs í vor vegna kórónuveirufaraldursins að mati fjármálaráðherra.

Mun leggja til skýrari útfærslu á nálægðartakmörkunum
Hann telur ferðamálaráðherra ekki hafa brotið sóttvarnareglur með vinkonuhittingi.

„Deginum ljósara“ að aðgerðirnar stöðvi komur ferðamanna
Það er deginum ljósara að hertar aðgerðir stjórnvalda við landamæraskimun stöðva allar komur ferðamanna til landsins. Þetta segir Kristófer Oliversson, formaður FHG – Félags fyrirtækja í hótelrekstri og gistiþjónustu og framkvæmdastjóri Center Hotels í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Segir koma vel til greina að hækka skimunargjaldið
Fjármálaráðherra segir að til greina komi að hækka það gjald sem ferðmenn sem koma til landsins þurfa að greiða.Ríkisstjórn kynnir næstu skref vegna skimunnar á landsmærum í Safnahúsinu í dag.

Blaðamannafundur vegna landamæraskimunar
Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 14 í dag í Safnahúsinu við Hverfisgötu.

Öllum starfsmönnum b5 sagt upp
Öllum starfsmönnum skemmtistaðarins b5 hefur verið sagt upp vegna erfiðrar fjárhagslegrar stöðu staðarins.