Vistvænir bílar

Rafjepplingurinn BMW iX frumsýndur
BMW á Íslandi frumsýnir á morgun laugardag, milli kl. 12 og 16, nýtt flaggskip rafbíla þýska framleiðandans BMW Group þegar hulunni verður svipt af hinum fjórhjóladrifna og rúmgóða BMW iX, sem óhætt er að fullyrða að setji ný viðmið í flokki rafknúinna í jepplingaflokki (SUV).

Ofurhleðslustöðvar Tesla ná allan hringinn
Tesla hefur nú tryggt að hringvegurinn er fær þeim sem vilja notast við ofurhleðslustöðvar Tesla. Tesla opnaði nýlega stöðvar á Höfn og á Akureyri sem þýðir að Hringvegurinn er orðinn greiðfær, aldrei meira en 300 km. á milli ofurhleðslustöðva.

Rafael Nadal hvetur fólk til að eiga rafbíla
Tennisleikarinn heimsþekkti Rafael Nadal hvetur fólk til að eignast rafbíla og keyra um á umhverfismildari hátt. Nadal fékk afhentan nýjan Kia EV6 rafbíl við hátíðlega athöfn í heimabæ tenniskappans í Manacor á Mallorca. Nadal mun nota bílinn á ferðalögum sínum og tenniskeppnum víða í Evrópu.

Rivian R1T er kominn í hendur kaupenda
Framleiðsla á Rivian R1T, rafpallbílnum hófst í september, fyrstu bíalrnir rúlluðu út af færbandinu þann 14. september. Á meðfylgjandi myndbandi má sjá tvo bíla sem líklega eru á leið til viðskiptavina í Oklahoma.

Ljón í vegi rafvæðingar bílaflota Evrópu og Bandaríkjanna
Aðeins rúmlega 1.500 hleðslustöðvar eru fyrir rafbíla í New York þrátt fyrir að allir nýir fólksbílar þar eigi að vera vistvænir fyrir árið 2035. Innviðauppbygging hefur ekki haldið í við vaxandi sölu rafbíla í Evrópu og Bandaríkjunum og krefst hún gífurlegrar fjárfestingar á næstu árum.

Myndband: Model Y og ID.6 árekstrarprófaðir í Kína
Áhugaverð árekstrarprófun tveggja nýrra rafbíla, Tesla Model Y og Volkswagen ID.6. Bílarnir voru á 64 km/klst. hvor, hálf miðjusettir gegn hvor öðrum. Nálgunarhraði er því 128 km/klst. Báðir bílar standa sig vel eins og sjá má á myndbandinu frá Car Crash Test.

Úkraínskt sprotafyrirtæki kynnir rafmótorhjól
Hugmyndin er að smíða rafdrifið mótorhjól í Scrambler stíl. Gróf dekk og góðfjöðrun með fremur uppréttri setustöðu. Fyrirtækið heitir EMGo Technology.

Tesla Model Y - Rafjepplingur sem virkar fyrir vísitölufjölskyldu og fleiri
Tesla Model Y hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Bíllinn er fimm manna raf(sport)jepplingur. Sjö sæta útgáfan er væntanleg. Bíllinn er eins og aðrar Tesla bifreiðar, vel úthugsaðar. Þemað við fyrstu kynni af Tesla bifreiðum er „af hverju var ekki einhver löngu búinn að þessu?“ Svarið er vanalega að slíkar breytingar séu tímafrekar og flóknar fyrir rótgróna bílaframleiðendur.

Rafbílavæðing sparaði 66°Norður 19 tonn CO2 í útblæstri
66°Norður hefur fengið afhenta níu Kia e-Niro rafbíla frá Bílaumboðinu Öskju sem eru þegar komnir í notkun hjá fyrirtækinu.

Kia EV6 - Getur rótgróinn bílaframleiðandi framleitt góðan rafbíl?
Kia kynnti í upphafi árs nýtt lógó og nýja rafbílalínu, EV línuna sem á að ná frá 1 og upp í 9, samkvæmt vörumerkjaskráningum Kia. Blaðamanni Vísis var nýlega boðið til Frankfurt með Öskju til að prófa fyrsta meðlim EV fjölskyldu Kia, EV6.

Hyundai frumsýnir rafbílinn Ioniq 5
Hyundai á Íslandi kynnir á morgun, laugardag 2. október milli kl. 12 og 16 rafbílinn Ioniq 5 sem er alveg nýr bíll, hannaður frá grunni; búinn miklum þægindum og tækni sem ekki hafa sést áður í bílum framleiðandans.

Rafmögnuð jeppasýning
Ísband, umboðsaðili Jeep og RAM á Íslandi blæs til glæsilegrar og rafmagnaðrar jeppasýningar laugardaginn 2. október. Þar verður 4xe Plug-In-Hybrid línan frá Jeep sýnd, Jeep Wrangler Rubicon 4xe, Jeep Compass 4xe og Jeep Reneagde 4xe, jeppar með alvöru fjórhjóladrifi í Plug-In-Hybrid útfærslu.

Ford leggur þúsundir milljarða í rafbílaverksmiðjur
Bandaríski bílaframleiðandinn Ford ætlar að fjárfesta meira en 1.400 milljarða íslenskra króna í verskmiðjum til að framleiða rafbíla. Markmið fyrirtækisins er að um helmingur allra seldra bíla losi ekki gróðurhúsalofttegundir árið 2030.

Rivian R1T lendir í sínum fyrsta árekstri
Allir bílar þurfa að lenda í sínum fyrsta árekstri og almennt er smávægilegt samstuð ekki fréttnæm en þetta var frekar furðulegt, auk þess sem R1T er búinn hinum ýmsa búnaði sem ætti að koma í veg fyrir árekstra.

Óstöðugar rafhlöður í Opel Ampera-e og Chevrolet Bolt
Rafbílarnir Opel Ampera-e og Chevrolet Bolt hafa verið að valda vandræðum. Þær eru að sögn „óstöðugar“. Það þýðir að gæta þarf að hvernig gengið er um rafhlöðurnar annars getur kviknað í þeim.

Mercedes-Benz EQA - Rafjepplingur en klassískur Benz
EQA er fimm manna rafjepplingur sem hentar fólki sem hefur fágaðan en einfaldan smekk. Bíllinn er augljóslega Mercedes-Benz, þegar setið er í honum og honum ekið.

Lucid Air dregur opinberlega 836 kílómetra
Rafbíllinn Lucid Air Dream Edition hefur fengið formlega drægni mælingu upp á 836 km. Það er rúmlega 180 km meira en sú Tesla sem lengst dregur á einni hleðslu. Afhendingar á Lucid Air eiga að hefjast í lok árs.

Askja og bílaframleiðandinn smart hefja samstarf
Á IAA Mobility 2021 bílasýningunni í Munich, frumsýndi smart Concept #1 rafbílinn en um er að ræða rafmagnsbíl í flokki borgarjepplinga. Bíllinn sem er fjórhjóladrifinn er hannaður af Mercedes-Benz og framleiddur í nýrri verksmiðju smart í Kína.

9 sæta Peugeot e-Traveller kominn í forsölu
Brimborg kynnir, langdrægan Peugeot e-Traveller 9 sæta 100% rafbíl með 75 kWh drifrafhlöðu með allt að 330 km drægni á 100% hreinu rafmagni. Peugeot e-Traveller er fáanlegur 9 sæta í Business eða Allure útfærslu í tveimur lengdum með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

Mercedes-Benz EQE frumsýndur í München
Mercedes-Benz EQE verður frumsýndur á bílasýningunni í München sem nú er hafin. EQE verður fyrsti stóri alrafdrifni fólksbílinn frá þýskum bílaframleiðanda og er hans beðið með mikilli eftirvæntingu eins og gefur að skilja enda hefur forverinn Mercedes-Benz E-Class verið mjög vinsæll sem lúxusbíll í gegnum árin. Nýr EQE mun koma á markað á næsta ári.

Svíar ætla að hætta að niðurgreiða stóra tengitvinnbíla og dýra rafbíla
Sænsk stjórnvöld ætla að herða verulega losunarskilyrði fyrir ívilnunum til kaupa á vistvænni bifreiðum. Hætt verður að niðurgreiða stærri tengitvinnbíla og dýra rafbíla.

Hvað á að gera við ónýtar rafhlöður úr rafmagnsbílum?
Árið 2012 var fjöldi nýskráðra rafmagnsbíla 32 samanber 2.925 árið 2020 sem er um 20% af nýskráðum bifreiða á landinu það árið. Ljóst er að þeim mun eingöngu fjölga þar sem áætlað er að Ísland verði að fullu raforkuvætt við orkuskiptin um 2030.

Volkswagen staðfestir hraðskreiðan rafhlaðbak
Ralf Brandstätter, yfirmaður Volkswagen hefur staðfest að fyrirtækið hyggist framleiða ID.X sem er hraðskreiður rafhlaðbakur, væntanlegur á markað á næsta ári. Hann verður um 329 hestöfl.

Skoda Enyaq iV - rafjepplingur fyrir fjölskyldur
Skoda Enyaq iV er fimm manna rafjepplingur sem er ætlað að virka fyrir fjölskyldufólk og vera umhverfisvænn á meðan. Bíllinn er smekklega hannaður og vel samsettur, auk þess sem hann er rúmgóður.

Myndband: Ford F-150 Lightning undirvagninn til sýnis
Ford F-150 Lightning er hreinn raf-pallbíll frá Ford. Nú hefur Ford sýnt undirvagn og rafhlöður bílsins. F-150 Lightning er framlag Ford í kapphlaupið um fyrsta raf-pallbílinn.

Myndband: Tesla sýnir framleiðsluferli Model Y
Tesla deildi nýju myndbandi á Weibo síðu sinni sem sýnir alla framleiðslu Tesla í Gígaverksmiðjunni í Sjanghæ. Þar er að mestu leyti að verið að framleiða Model Y.

Kia keyrir á rafmagnið á fyrstu IAA Mobility bílasýningunni í Munchen
Kia verður mjög áberandi með nýjustu rafbíla sína á alþjóðlegu bílasýningunni IAA Mobility sem haldin verður í fyrsta skipti í Munchen 7-12 september nk. Kia mun frumsýna tvo spennandi rafbíla á sýningunni; glænýjan EV6 rafbíl sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu og nýja kynslóð af Sportage sem kemur nú í Plug-in Hybrid útfærslu.

Myndband: Porsche Taycan 4S Cross Turismo fer frá 0-248 km/klst
Porsche Taycan 4S Cross Turismo er fjórhjóladrifinn rafbíll sem hefur 93,4 kWh drifrafhlöðu. Hann er rétt rúmlega fjórar sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Bíllinn fór frá kyrrstöðu í 200 km/klst á tæpum 13 sekúndum.

Kia EV6 dregur 528 km
Kia EV6 rafbíll mun hafa allt að 528 km drægni samkvæmt WLTP staðli. Þetta er enn meiri drægni en búist var við en upphaflega átti rafbíllinn að draga 510 km á rafhlöðunni. Nú er ljóst að það bætist við drægnina sem eru sannarlega góðar fréttir fyrir væntanlega kaupendur sem búast má við að verði margir enda er mikil eftirvænting eftir bílnum sem er þegar kominn í forsölu hjá Bílaumboðinu Öskju.

Biden: pant vera fyrstur til að keyra væntanlega raf Corvette-u
Joe Biden, Bandaríkjaforseti hélt nýverið ræðu fyrir utan Hvíta húsið þar sem hann talaði um að helmingur sölu á nýjum bílum í Bandaríkjunum muni vera rafbílar fyrir lok ársins 2030. Viðstaddir ræðuna voru helstu yfirmenn Ford, General Motors og Stellantis. Þar á meðal framkvæmdastjóri GM, Mary Barra. Biden sagði við tilefnið að hann hefði samið við Barra um að fá að vera fyrstur til að keyra rafdrifna Corvette C8.