
UMF Njarðvík

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Njarðvík 97-77 | Stjörnumenn slökktu í Njarðvíkingum
Njarðvíkingar höfðu verið á góðu skriði í Subway-deild karla fyrir áramót, en fyrsti leikur liðsins á nýja árinu endaði með tuttugu stiga tapi gegn Stjörnunni, 97-77.

Hafa unnið fyrsta leik ársins sex ár í röð
Eini leikur kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta er viðureign Stjörnunnar og Njarðvíkur í Garðabænum en þetta er frestaður leikur úr níundu umferðinni.

Smit í leikmannahópum Tindastóls, ÍR og Njarðvíkur
Tveimur leikjum í Subway deild karla í körfubolta og einum leik í Subway deild kvenna hefur nú verið frestað í viðbót við þá leiki sem var frestað milli jóla og nýárs.

„Lang lélegasti leikurinn okkar í vetur“
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, var ekki par sáttur við frammistöðu sinna manna er Keflvíkingar töpuðu gegn nágrönnum sínum í Njarðvík, 74-78.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 74-78 | Njarðvík hafði betur gegn erkifjendunum
Keflavík og Njarðvík mættust í stórleik umferðarinnar í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld þar sem að gestirnir höfðu betur 74-78.

Öruggur sigur Njarðvíkinga gegn ÍR
Njarðvíkingar unnu í kvöld öruggan sigur er liðið tók á móti ÍR í Subway-deild karla í körfubolta. Heimamenn tóku forystuna snemma leiks og sigur þeirra var í raun aldrei í hættu, en lokatölur urðu 109-81.

Umfjöllun og myndir: Valur - Njarðvík 72-71 | Valsmenn í undanúrslit eftir sigur á bikarmeisturunum
Valur er síðasta liðið til að tryggja sér farseðil í undanúrslit VÍS bikarsins. Valur vann eins stigs sigur gegn ríkjandi bikarmeisturum Njarðvíkur 72-71.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Fjölnir 89-88 | Njarðvík í undanúrslit eftir framlengdan leik
Njarðvík tryggði sér sæti í undanúrslitum VÍS bikar kvenna er liðið sigraði Fjölni með minnsta mögulega mun eftir framlengingu í æsispennandi leik í Ljónagryfunni, 89-88.

Smit í Njarðvík og leik frestað
Leik Njarðvíkur og Stjörnunnar í Subway-deild karla í körfubolta, sem fara átti fram á fimmtudaginn, hefur verið frestað vegna kórónuveirusmits í herbúðum Njarðvíkur.

Topplið Njarðvíkur vann á Hlíðarenda
Öllum leikjum dagsins í Subway-deild kvenna í körfubolta er nú lokið. Njarðvík gerði góða ferð á Hlíðarenda og vann níu stiga sigur, lokatölur 60-69.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Vestri 98-69 | Öruggur sigur heimamanna í endurkomu Hauks Helga
Njarðvík vann öruggan sigur á nýliðum Vestra í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, lokatölur 98-69. Þetta var fyrsti leikur landsliðsmannsins Hauks Helga Pálssonar fyrir Njarðvík á tímabilinu.

„Ég var eins og lítill krakki“
Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur, spilaði í kvöld sínar fyrstu mínútur fyrir Njarðvík í endurkomu sinni en Haukur spilaði síðast körfuboltaleik fyrir 257 dögum síðan. Haukur hefur verið að jafna sig á liðbandslitum en hann var afar ánægður að komast aftur inn á völlinn.

Haukur Helgi um fyrsta leikinn í kvöld: Þurfti bara að fara að byrja
Haukur Helgi Pálsson spilar sinn fyrsta leik á tímabilinu í kvöld þegar Njarðvík tekur á móti Vestra í Ljónagryfjunni.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Grindavík 71-54 | Heimakonur halda toppsætinu
Njarðvík heldur toppsæti Subway-deildar kvenna í körfubolta þökk sé stórsigri á nágrönnum sínum í Grindavík, lokatölur 71-54 í kvöld.

Collier um hálfleiksræðu Rúnars Inga: „Hann lét okkur heyra það“
Aliyah Collier var enn eina ferðina stigahæst í liði Njarðvíkur, í þetta sinn með 18 stig í sigri á erkifjendunum í Grindavík.

Haukur hefur sig til flugs á föstudaginn
Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfubolta, leikur sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík á þessari leiktíð þegar liðið tekur á móti Vestra á föstudaginn í Subway-deildinni.

Góður þriðji leikhluti skilaði Njarðvík sigri gegn Fjölni
Njarðvík vann góðan sjö stiga sigur er liðið heimsótti Fjölni í Subway-deild kvenna í körfuboltaí kvöld. Lokatölur 64-71, en eftir jafnan fyrri hálfleik tóku gestirnir öll völd í þriðjal leikhluta og sigldu sigrinum heim.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Haukar 56-63 | Haukar gerðu góða ferð til Njarðvíkur
Haukar gerðu góða ferð til Njarðvíkur í Subway deildinni í körfubolta í kvöld en gestirnir unnu sjö stiga sigur, 56-63.

„Sáttur að ná loksins að vinna“
Maciej Baginski, leikmaður Njarðvíkur, var ánægður að ná loksins að binda enda á taphrinu Njarðvíkur í Subway deildinni eftir 5 stiga sigur á Blikum í kvöld, 110-105.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Breiðablik 110-105 | Langþráður sigur Njarðvíkinga
Njarðvíkingar unnu í fyrsta skipti í tæpan mánuð er liðið tók á móti nýliðum Breiðabliks í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 110-105.

Njarðvíkingar ætla að nýta sér hraðprófin til að fá fimm hundruð á heimaleiki sína
Mörg íþróttafélög á Íslandi hafa ákveðið að fara ekki hraðprófsleiðina á meðan harðari sóttvarnarreglur eru í gildi hér á landi en Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur er þó ekki í þeim hópi.

Haukur Helgi: Hafði líka spilað með slitið liðband í ökkla síðan 2014
Haukur Helgi Pálsson stefnir að því að byrja að spila aftur um miðjan desember og óttast það að hann verði rekinn nái hann ekki leik Njarðvíkur og Keflavíkur milli jóla og nýárs.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Tindastóll 72-83 | Njarðvíkingar töpuðu þriðja leiknum í röð
Tindastóll sá til þess að Njarðvík tapaði þriðja leiknum í röð í Subway-deild karla í körfubolta er liðin mættust í Ljónagryfjunni í kvöld, lokatölur 72-83.

Ljónatemjararnir frá Króknum mæta til Njarðvíkur í kvöld
Stórleikur kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta verður spilaður í Ljónagryfjunni í Njarðvík þar sem Tindastólsmenn koma í heimsókn.

Unnu nágranna sína í fyrsta sinn í 93 mánuði
Njarðvíkurkonur eru á toppnum í Subway-deild kvenna eftir sjö stiga sigur á nágrönnum sínum í Keflavík í Ljónagryfjunni í gærkvöldi.

„Erfitt að spila á móti gömlum liðsfélögum“
Kamilla Sól Viktorsdóttir, leikmaður Njarðvíkur, var ánægð með 77-70 sigur Njarðvíkur á Keflavík, sem var samt sem áður sérstakur fyrir hana. Kamilla Sól er uppalin í Keflavík og lék 6 leiki með liðinu á síðasta tímabili áður en hún skipti yfir til Njarðvíkur.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Keflavík 77-70 | Montrétturinn er Njarðvíkinga sem tylltu sér á toppinn
Nýliðar Njarðvíkur kórónuðu frábæra byrjun sína á tímabilinu með því að skella grönnum sínum í Keflavík í Suðurnesja- og toppslag umferðarinnar í Subway-deild kvenna í körfubolta. Lokatölur í kvöld 77-70 og toppsætið sem og montrétturinn því Njarðvíkinga að svo stöddu.

Tveir risa Subway-slagir í átta liða úrslitum VÍS-bikarsins
Dregið var í átta liða úrslit VÍS bikars karla og kvenna í körfubolta í dag og það eru spennandi leikir fram undan.

Njarðvík, Stjarnan, Fjölnir og Hamar/Þór áfram í bikarnum
Njarðvík, Stjarnan, Fjölnir og Hamar/Þór eru komin áfram í 8-liða úrslit VÍS-bikarsins í körfubolta.

Umfjöllun: KR - Njarðvík 91-75 | Sterkur sigur KR-inga í stórleiknum
KR og Njarðvík mættust á Meistraravöllum í Subway deild karla í körfubolta í kvöld. Njarðvíkur-liðið fór vel af stað en fljótlega tók KR yfirhöndina í leiknum, héldu forystunni til loka og lauk leiknum með 91-75 sigri KR.