Körfubolti
153 154 155 156 157 158 159 160 161 … 216 ›
Logi Gunnarsson búinn að semja við Solna Vikings Logi Gunnarsson mun spila í sænsku úrvalsdeildinni næsta vetur eins og félagar hans í landsliðinu Jakob Örn Sigurðarson, Hlynur Bæringsson og kannski Helgi Már Magnússon. Logi er búinn að gera tveggja ára samning við Solna Vikings en þetta kom fram á Karfan.is. Körfubolti 6.8.2010 15:40
Ólafur þegar farinn að láta til sín taka - breytingar á Evrópukeppni karla Ólafur Rafnsson, nýr formaður FIBA Europe, stjórnaði sínum fyrsta stjórnarfundi um helgina og þar voru samþykktar breytingar á keppnisfyrirkomulagi A-landsliða karla í Evrópukeppninni. Körfubolti 1.6.2010 09:59
Logi og félagar í St. Etienne úr leik Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson og hans félagar í franska liðinu St. Etienne náðu ekki inn í úrslitakeppnina í C-deildinni þar í landi og eru því komnir í sumarfrí. Körfubolti 22.5.2010 12:41
Jón Arnór og félagar komust ekki í úrslitakeppnina Jón Arnór Stefánsson og félagar í CB Granada komust ekki í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar en lokaumferð deildarkeppninnar fór fram um helgina. Körfubolti 17.5.2010 10:04
Ólafur Rafnsson var kosinn forseti FIBA Europe með yfirburðum Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og fyrrum formaður Körfuknattleikssambands Íslands var í dag kjörinn nýr forseti FIBA Europe til næstu fjögurra ára á ársþingi sambandsins sem haldið er í Munchen í Þýskalandi. Körfubolti 15.5.2010 12:09
Blíðkuðu þingfulltrúa FIBA Europe með hraunmolum úr Eyjafjallajökli Ólafur Rafnsson og fulltrúar KKÍ á ársþingi FIBA Europe áttu sérstakt útspil þegar þingið var sett í morgun en Ólafur er eins og menn vita í framboði til forseta FIBA Europe og keppir þar við Turgay Demirel, forseta tyrkneska körfuknattleikssambandsins og varaforseta FIBA Europe. Körfubolti 14.5.2010 14:34
Barcelona og Olympiakos mætast í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni Spænska liðið Barcelona og gríska liðið Olympiakos tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni í körfubolta en úrslitaleikurinn verður í beinni útsendingu á Sporttv á sunnudaginn alveg eins og undanúrslitaleikirnir voru í dag. Körfubolti 7.5.2010 22:18
Helgi Már og félagar úr leik Helgi Már Magnússon og félagar hans í Solna Vikings eru úr leik í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir að hafa tapað fyrir deildarmeisturum Norrköping í kvöld, 111-83. Körfubolti 20.4.2010 19:48
Hrannar Hólm valinn þjálfari ársins í Danmörku Hrannar Hólm var á dögunum valinn besti þjálfarinn í dönsku kvennadeildinni í körfubolta en hann hefur gert frábæra hluti með SISU-liðið síðan hann tók við liðinu á miðju tímabili. Karfan.is segir frá þessu í dag. Körfubolti 20.4.2010 13:18
Jón Arnór og félagar búnir að vinna fjóra af síðustu fimm Jón Arnór Stefánsson og félagar í CB Granada eiga enn möguleika á því að komast í úrslitakeppnina í spænska körfuboltanum eftir 72-68 útisigur á Suzuki Manresa í gær. CB Granada hefur þar með unnið tvo leiki í röð og fjóra af síðustu fimm leikjum sínum. Körfubolti 19.4.2010 09:35
Helgi og félagar tryggðu sér oddaleik á móti deildarmeisturunum Helgi Már Magnússon og félagar í Solna Vikings unnu sex stiga sigur á deildarmeisturum Norrköping, 90-84, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum sænska körfuboltans og tryggðu sér þar með oddaleik um sæti í lokaúrslitunum. Körfubolti 16.4.2010 18:47
Jakob valinn leikmaður ársins á Eurobasket-síðunni Jakob Örn Sigurðarson fékk stóra viðurkenningu á Eurobasket-körfuboltasíðunni þegar hann var valinn leikmaður ársins í sænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en auk þess var Jakob valin besti Evrópuleikmaður deildarinnar og besti bakvörður ársins. Körfubolti 16.4.2010 14:56
Stórt tap hjá Helga og félögum - 1-2 undir á móti Norrköping Helgi Már Magnússon og félagar í Solna Vikings eru komnir upp að vegg í úrslitakeppni sænska úrvalsdeildarinnar eftir 33 stiga tap á útivelli, 105-72, á móti Norrköping í kvöld. Norrköping er þar með komið í 2-1 í einvíginu og vantar bara einn sigur til viðbótar til þess að komast í lokaúrslitin. Körfubolti 13.4.2010 18:56
Naumt tap á útivelli hjá Jóni Arnóri Jón Arnór Stefánsson og félagar í CB Granada urðu að sætta sig við eins stigs tap á útivelli á móti Caja Laboral, 69-70, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Jón Arnór skoraði 6 stig í leiknum. Körfubolti 4.4.2010 18:45
Duke og Butler mætast í úrslitaleiknum í NCAA-deildinni Duke og Butler tryggðu sér sæti í úrslitaleik NCAA háskólaboltans í nótt en þá fóru fram undanúrslitaleikirnir í fram í Lucas Oil-leikvanginum í Indianapolis í Indiana. Butler er komið í fyrsta sinn í úrslitaleikinn eftir 52-50 sigur á Michigan State en Duke vann sannfærandi 78-57 sigur á West Virginia og er komið í úrslitaleikinn í tíunda sinn. Körfubolti 4.4.2010 12:08
Helena í hópi 45 bestu háskólaleikmanna Bandaríkjanna Helena Sverrisdóttir fékk mikla viðurkenningu í gær þegar Fréttastofan Associated Press valdi úrvalslið ársins í bandaríska háskólaboltanum. Helena var í hópi þeirra leikmenn sem voru næstir því að komast inn í úrvalsliðin þrjú. Körfubolti 31.3.2010 10:51
Helgi Már og félagar í undanúrslit Solna Vikings, lið Helga Más Magnússonar, tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik. Körfubolti 30.3.2010 22:22
Jakob sjóðhitnaði í upphafi fjórða leikhluta en það dugði ekki Sundsvall Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Sundsvall eru komnir upp að vegg í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir 67-75 tap fyrir Uppsala á heimavelli í gær. Uppsala er þannig komið í 2-1 og vantar aðeins einn leik til þess tryggja sér sæti í undanúrslitunum. Körfubolti 30.3.2010 08:28
Ekkert gekk hjá Jakobi og Sundsvall tapaði leik tvö Jakob Örn Sigurðarson hitti á afleitan dag í kvöld þegar Sundsvall Dragons tapaði með 21 stigi fyrir Uppsala Basket, 82-61, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn fór fram á heimavelli Uppsala. Körfubolti 25.3.2010 19:34
Jakob skoraði flestar þriggja stiga körfur í sænsku deildinni Jakob Örn Sigurðarson var sá leikmaður í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta sem skoraði flestar þriggja stiga körfur í deildarkeppninni í vetur. Jakob skoraði 110 þrista í 40 leikjum eða fimm fleiri en næsti maður á listanum. Körfubolti 22.3.2010 15:34
Helena og TCU úr leik TCU, lið Helenu Sverrisdóttur, féll úr leik í fyrstu umferð í úrslitum bandarísku háskóladeildarinnar í körfubolta. Körfubolti 20.3.2010 22:58
TCU valið í úrslitakeppnina Helena Sverrisdóttir verður í eldlínunni með TCU í úrslitakeppni bandarísku háskóladeildarinnar þrátt fyrir að liðið hafi ekki unnið sér inn sæti með beinum hætti. Körfubolti 16.3.2010 09:00
Jón Arnór með fimm stig í tapi á móti Barcelona Jón Arnór Stefánsson og félagar í CB Granada töpuðu með sjö stigum, 72-79, á móti toppliði Regal Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Körfubolti 14.3.2010 13:29
Skelfileg hittni og sárt tap - TCU úr leik í úrslitakeppninni Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU töpuðu 57-69 fyrir Utah í undanúrslitum Mountain West deildarinnar í nótt og deildarmeistararnir komust því ekki í úrslitaleikinn þar sem Utah mætir San Diego State. Körfubolti 13.3.2010 11:26
Jakob fyrstur til að skora hundrað þrista á tímabilinu Jakob Örn Sigurðarson er frábær þriggja stiga skytta og hann hefur heldur betur sannað það með Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í vetur. Jakob varð á dögunum fyrsti leikmaður sænsku deildarinnar til þess að brjóta hundrað þrista múrinn í vetur. Körfubolti 10.3.2010 09:17
Helena ekki bara deildarmeistari heldur líka leikmaður ársins Helena Sverrisdóttir var í nótt valinn besti leikmaður Mountain West deildarinnar í bandaríska háskólakörfuboltanum og komst auk þess í lið ársins annað árið í röð. Einn liðsfélagi hennar í TCU var einnig í liði ársins og þjálfari hennar, Jeff Mittie, var kosinn þjálfari ársins. Körfubolti 9.3.2010 08:38
Haukur Helgi búinn að ákveða að fara í Maryland Körfuboltamaðurinn Haukur Helgi Pálsson hefur ákveðið að spila með einum af betri háskólaliðum í Bandaríkjunum næstu fjögur árin því hann hefur gert munnlegt samkomulag við Maryland-skólann. Það verður gengið verður frá öllum formlegum pappírsmálum í apríl. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ. Körfubolti 8.3.2010 13:58
Helena ísköld í lokaleiknum í deildinni og TCU tapaði Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í TCU töpuðu 70-65 á útivelli fyrir BYU-háskólanum í lokaleik sínum í deildarkeppni Mountain West deildarinnar um helgina. Helena var með 5 stig, 4 stoðsendingar og 2 stolna bolta í leiknum. Körfubolti 8.3.2010 09:01
Jakob góður í útisigri Sundsvall - tap hjá Helga Jakob Örn Sigurðarson átti góðan leik í kvöld þegar Sundsvall vann 88-81 sigur á Boras á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Helgi Már og félagar í Solna urðu hinsvegar að sætta sig við 68-72 tap fyrir Södertalje á heimavelli. Körfubolti 2.3.2010 17:45
Jakob með tólf stig í tapi gegn toppliðinu í Svíþjóð Jakob Sigurðarson og félagar hans í Sundsvall töpuðu 75-99 gegn Norrköping í sænska körfuboltanum í kvöld. Jakob skoraði tólf stig, tók þrjú fráköst og átti þrjár stoðsendingar á þrjátíu og tveimur mínútum í leiknum og var næst stigahæstur hjá Sundsvall. Körfubolti 19.2.2010 19:55