Körfubolti
156 157 158 159 160 161 162 163 164 … 216 ›
Enn bið eftir fyrsta leik hjá Loga - óvissa um stöðu Saint Etienne Logi Gunnarsson lék ekki fyrsta leik sinn með Saint Etienne í frönsku C-deildinni um helgina eins og áætlað var. Mál Saint Etienne er komið í algjöran hnút á ný eftir að 15 af 16 liðum hafa neitað að spila á móti liðinu. Það varð því ekkert að leik Angers BC 49 og Saint Etienne á laugardaginn. Körfubolti 21.9.2009 21:10
Jón Arnór með sex stig í sigri CB Granada á Murcia í æfingaleik Jón Arnór Stefánsson skoraði 6 stig í æfingaleik með CB Granada í gær en spænska liðið er farið að undirbúa sig fyrir komandi tímabil. Bandaríkjamaðurinn Jimmie Hunter var stigahæstur í liði Granada með 19 stig. Körfubolti 21.9.2009 15:03
Spánverjar eru Evrópumeistarar í körfubolta Spánverjar unnu 85-63 sigur gegn Serbíu í úrslitaleik á EM í körfbolta í Póllandi í kvöld. Pau Gasol var atkvæðamestur fyrir Spánverja með 18 stig en Rudy Fernandez var með 13 stig. Körfubolti 20.9.2009 22:48
Serbía og Spánn leika til úrslita á EM í körfubolta Leikið var í undanúrslitum á EM í körfubolta í Póllandi í gær. Spánn vann 82-64 sigur gegn Grikklandi og Serbía vann 96-92 sigur gegn Slóveníu í framlengdum leik. Körfubolti 20.9.2009 10:44
Tony Parker frábær í fimmta sigri Frakka í röð Frakkar halda sigurgöngu sinni áfram á EM í körfubolta í Póllandi. Frakkar hafa unnið alla fimm leiki sína til þessa í keppninni og í dag vann liðið 87-79 sigur á Króatíu. Körfubolti 13.9.2009 21:29
Tyrkir unnu Spánverja á EM í körfu í Póllandi Tyrkir héldu áfram sigurgöngu sinni á EM í körfu í Póllandi með 63-60 sigri á Spánverjum í fyrsta leik liðanna í milliriðli í gær. Tyrkir hafa þar með unnið alla fjóra leiki sína á mótinu alveg eins og Frakkar og Grikkir í hinum milliriðlinum. Körfubolti 12.9.2009 23:04
Frakkar og Grikkir héldu sigurgöngu sinni áfram á EM Frakkar og Grikkir hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína á Evrópumótinu í Póllandi en keppni í öðrum milliriðlinum hófst í gær. Grikkar unnu stórsigur á Makedóníu en Grikkir unnu átta stiga sigur á Þjóðverjum. Körfubolti 12.9.2009 13:12
Logi Gunnarsson samdi við lið í frönsku C-deildinni Logi Gunnarsson gekk í dag frá eins árs samningi við franska liðið Saint Etienne en það spilar í NM1-deildinni í Frakklandi sem er þriðja hæsta deildin í landinu. Þetta kom fram á karfan.is. Körfubolti 11.9.2009 14:44
Spánverjar sluppu með skrekkinn og Frakkar unnu Evrópumeistarana Spánverjar þurftu framlengingu til að vinna 90-84 sigur á Slóvenum á lokadegi riðlakeppni Evrópumótsins í körfubolta í Póllandi í gær. Frakkar unnu 69-64 sigur á Evrópumeisturum Rússa og Lettar voru aðeins sekúndum frá því að komast áfram í milliriðil. Körfubolti 10.9.2009 08:56
Jón Arnór þarf að finna sér nýtt númer - númerin hans eru upptekin hjá Granada Jón Arnór Stefánsson getur ekki spilað í sínum vanalegu númerum þegar hann spilar með spænska liðinu CB Granada í spænsku gulldeildinni í vetur. Finninn Teemu Rannikko tók níuna og þá eru sexan, tían og ellefan einnig fráteknar. Körfubolti 9.9.2009 10:51
Þjóðverjar unnu óvæntan sigur á Evrópumeisturum Rússa Það halda áfram óvæntir hlutir að gerast á Evrópumótinu í körfubolta í Póllandi. Þjóðverjar voru nálægt því að vinna Frakka í fyrsta leik en þeir bættu fyrir það með því að vinna 76-73 á Evrópumeisturum Rússa í gær. Grikkir, Frakkar, Slóvenar, Pólverjar og Tyrkir eru með fullt hús eftir tvær fyrstu umferðirnar. Körfubolti 9.9.2009 08:52
Norræn bakvarðasveit hjá liði Granada á þessu tímabili Spænska liðið CB Granada verður með norræna bakvarðasveit á næsta tímabili því auk þess að semja við Jón Arnór Stefánsson hefur liðið fengið til sín Finnann Teemu Rannikko. Rannikko hefur spilað með rússneska liðinu Khimki BC undanfarin tvö tímabil. Körfubolti 8.9.2009 10:40
Tony Parker kláraði Þjóðverjana - 11 stig í á síðustu 3 mínútunum Tony Parker, leikmaður San Antonio Spurs í NBA-deildinni, var aðalmaðurinn á bak við 70-65 sigur Frakka á Þjóðverjum í fyrsta leik liðanna á Evrópumótinu í körfubolta í Póllandi sem hófst í gær. Parker skoraði 11 af 19 stigum sínum á síðustu 2 mínútunum og 38 sekúndunum í leiknum. Körfubolti 8.9.2009 09:07
Serbar skelltu Spánverjum í fyrsta leik - héldu þeim í 57 stigum Serbía vann óvæntan 66-57 sigur á Spánverjum í fyrsta leik liðanna á Evrópumótinu í Póllandi í gær. Spánverjar voru fyrir mótið taldir vera með sigurstranglegasta liðið á sama tíma og Serbar mæta til leiks með ungt lið og engar NBA-stjörnur innanborðs. Körfubolti 8.9.2009 08:49
Evrópumeistarar Rússa byrja á sigri - kaninn góður í lokin Evrópumeistarar Rússa unnu 81-68 sigur á Lettum í fyrsta leik sínum á EM í körfu í Póllandi sem hófst í dag. Nýi Bandaríkjamaðurinn í liði Rússa, Kelly McCarty, skoraði 8 af 24 stigum sínum á síðustu fjórum mínútum leiksins þegar Rússar gerðu út um leikinn eftir að Lettar höfðu minnkað muninn í tvö stig, 65-63. Körfubolti 7.9.2009 16:48
Spánverjar eru sigurstranglegastir á EM í körfu sem hefst í dag Evrópukeppni landsliða í körfubolta hefst í Póllandi í dag en sextán bestu körfuboltaþjóðir álfunnar munu þar berjast um Evrópumeistaratitilinn. Þetta verður í 36. skiptið sem keppt erum Evrópumeistaratitilinn í körfubolta en Rússar unnu titilinn fyrir tveimur árum. Körfubolti 7.9.2009 12:15
Henning: Spiluðu eins og ég vissi að þær gætu Henning Henningsson, landsliðsþjálfari, sagði leikmenn íslenska landsliðsins hafa loksins sýnt sitt rétta andlit er liðið vann sigur á Írlandi í kvöld, 77-68, í B-deild EM í körfubolta kvenna. Körfubolti 26.8.2009 23:18
Stórt tap í Svartfjallalandi Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði stórt fyrir geysisterku liði Svartfjallalands í B-deild Evrópumóts karla, 102-58. Körfubolti 26.8.2009 21:01
Signý: Gerðum klaufaleg mistök Signý Hermannsdóttir landsliðsfyrirliði var ekki ánægð eftir að Ísland tapaði fyrir Hollandi, 70-52, í B-deild Evrópumótsins í körfubolta í kvöld. Körfubolti 19.8.2009 21:23
Ísland tapaði fyrir Hollandi Holland vann í kvöld öruggan sigur á Íslandi, 70-52, í leik liðanna í B-deild Evrópumótsins í körfubolta. Leikurinn fór fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. Körfubolti 19.8.2009 19:59
Henning tilkynnti landsliðshópinn Henning Henningsson hefur valið tólf manna landsliðshóp fyrir síðari hluta riðlakeppninnar í Evrópumóti kvenna. Körfubolti 11.8.2009 14:07
Helgi Már búinn að semja við Solna Vikings Landsliðsmaðurinn Helgi Már Magnússon mun spila með sænska liðinu Solna Vikings á næsta tímabili en þetta kemur fram á heimasíðu KR. Þar með er ljóst að KR-liðið hefur misst þrjá landsliðsmenn frá því í fyrra því áður höfðu þeir Jón Arnór Stefánsson og Jakob Örn Sigurðarson ákveðið að spila erlendis. Körfubolti 10.7.2009 14:11
Jón Arnór valinn bestur hjá Benetton af Gazzetta dello Sport Jón Arnór stóð sig mjög vel með Benetton Treviso í fyrsta leiknum á móti ítölsku meisturunum í Montepaschi Siena í undaúrslitum ítölsku úrvalsdeildarinnar í gær. Jón Arnór skoraði 12 stig í leiknum og fékk 7 villur á leikmenn Siena. Körfubolti 31.5.2009 15:26
Tólf stig frá Jóni Arnóri dugðu skammt á móti Siena Jón Arnór Stefánsson og félagar í Benetton Treviso töpuðu með 28 stiga mun, 79-107, í fyrsta leiknum á móti Montepaschi Siena í undanúrslitum ítölsku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn fór fram í Palasport Mens Sana í Siena. Körfubolti 30.5.2009 20:20
Jón Arnór og félagar komnir í undanúrslit Jón Arnór Stefánsson og félagar í Benetton Treviso eru komnir í undanúrslit í ítölsku deildinni. Körfubolti 27.5.2009 19:51
Gamla liðið hans Jóns Arnórs úr leik - í 1. umferð Lottomatica Roma féll í gær út úr 8 liða úrslitum ítölsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir 79-83 tap fyrir Angelico Biella í oddaleik á þeirra eigin heimavelli í PalaLottomatica-höllinni. Körfubolti 27.5.2009 12:10
Jón Arnór með tíu stig í tapi Benetton Það varð ljóst í kvöld að Benetton Treviso og La Fortezza Bologna þurfa að mætast í oddaleik í úrslitakeppni ítalska körfuboltans. Körfubolti 25.5.2009 20:15
U-18 lið karla Norðurlandameistari U-18 landslið karla varð í dag Norðurlandameistari í körfubolta eftir sigur á Finnlandi í úrslitaleik, 78-69. Körfubolti 24.5.2009 14:17
Jón Arnór næst stigahæstur í sigurleik Benetton Jón Arnór Stefánsson skoraði fjórtán stig þegar að lið hans, Benetton Treviso, vann átján stiga sigur á Bologna í fjórðungsúrslitum úrslitakeppni ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Treviso tók þar með 2-1 forystu í einvígi liðanna. Körfubolti 23.5.2009 20:52
Ellefu stig frá Jóni Arnóri dugðu ekki Benetton Jón Arnór Stefánsson átti sinn besta leik Benetton Treviso í öðrum leik liðsins í átta liða úrslitum úrslitakeppni ítalska körfuboltans en það dugði þó ekki til á móti La Fortezza Bologna. Bologna vann leikinn 94-81 og jafnaði einvígið í 1-1. Körfubolti 22.5.2009 09:11