Körfubolti

Jón Arnór með sex stig í sigri CB Granada á Murcia í æfingaleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Vilhelm

Jón Arnór Stefánsson skoraði 6 stig í æfingaleik með CB Granada í gær en spænska liðið er farið að undirbúa sig fyrir komandi tímabil. Bandaríkjamaðurinn Jimmie Hunter var stigahæstur í liði Granada með 19 stig.

CB Granada vann 78-69 sigur á CB Murcia og hefur unnið alla leiki sína á tímabilinu. Jón Arnór var ekki í byrjunarliðinu í þessum leik en bakverðirnir sem byrjuðu voru Finninn Teemu Rannikko (9 stig) og Jimmie Lee Hunter (19 stig).

Næst á dagskrá hjá Jóni Arnóri og félögum er að keppa í Andalúsíu-bikarnum sem er árlegt undirbúningsmót. Fyrsti leikur liðsins verður á móti Unicaja.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×