Íslenski körfuboltinn

Jón Arnór: Þetta er hátindurinn á ferlinum
Jón Arnór Stefánsson sem fór á kostum með íslenska landsliðinu í naumu tapi gegn Bosníu í kvöld var gríðarlega sáttur í leikslok.

Íslendingar eru einu nýliðarnir á EM 2015
Íslenska körfuboltalandsliðið tryggði sér í kvöld sæti á Evrópumótinu á næsta ári en þetta er í fyrsta sinn sem körfuboltalandslið kemst í úrslitakeppni stórmóts.

Þessar þjóðir verða með Íslandi á EM
Ísland verður meðal 24 þjóða sem keppa á Evrópumótinu í körfubolta á næsta ári en íslenska liðið verður meðal þátttakenda í fyrsta sinn.

Umfjöllun, myndir og viðtöl: Ísland - Bosnía 70-78 | Ísland í fyrsta sinn á EM!
Ísland er komið á Evrópumeistarmótið í körfuknattleik karla í fyrsta sinn þrátt fyrir 78-70 tap gegn Bosníu í Laugardalshöllinni í kvöld. Ísland hafnar í öðru sæti A-riðils.

Ragnar: Spennandi að sjá hvort það verða jafnmikil læti hérna og í Bosníu
Ragnar Ágúst Nathanaelsson gæti fengið stærra hlutverk en oft áður þegar Íslenska körfuboltalandsliðið spilar einn sinn mikilvægasta leik frá upphafi í kvöld. Bosníumenn koma þá í heimsókn í Laugardalshöll í lokaleik liðanna í undankeppni EM og íslenska liðið á möguleika á því að tryggja sér sæti á EM.

Hlynur: Raggi getur margt sem ég get ekki
Íslenska körfuboltalandsliðið spilar einn sinn mikilvægasta leik í kvöld þegar Bosníumenn koma í heimsókn í Laugardalshöll í lokaleik liðanna í undankeppni EM.

Höllin verður að syngja afmælissönginn fyrir Ragnar og Helga
Tveir leikmenn íslenska körfuboltalandsliðsins halda upp á afmælið sitt í dag og það efast enginn um hvað strákarnir óska sér í afmælisgjöf.

Helena samdi við lið í Póllandi
Fremsta körfuknattleikskona landsins búin að finna sér nýtt félagslið.

Logi: Ætlum að ná í miðann á EM sjálfir
Ísland fer á EM í körfubolta með sigri gegn Bosníu í Laugardalshöll í kvöld.

Haukur Helgi: Þessi leikur á eftir að lifa í minningunni
Ísland getur tryggt sér sæti á EM 2015 í körfuboltameð sigri á Bosníu í Laugardalshöll í kvöld.

Jón Arnór með slökkt á símanum sínum fram yfir leikinn
Jón Arnór Stefánsson verður í sviðsljósinu með íslenska körfuboltalandsliðinu í kvöld þar sem liðið mætir Bosníu og getur tryggt sér sæti á Evrópumótinu með sigri.

Sjö stig í viðbót og þá jafnar Jón Arnór stigametið
Jón Arnór Stefánsson getur bætt íslenska stigametið í Evrópukeppni á móti Bosníumönnum í kvöld.

Vonar að adrenalínið gleypi sársaukann
Íslenska körfuboltalandsliðið spilar í fyrsta sinn fyrir fullri Laugardalshöll í kvöld og í boði er sæti á EM. "Við erum því miður ekki öryggir áfram en erum mjög nálægt þessu,“ segir Hlynur Bæringsson sem ætlar að spila þrátt fyrir ökklameiðsli. "Hann er

Deng óttast um framtíð breska körfuboltans eftir töpin á móti Íslandi
Luol Deng, nýr leikmaður Miami Heat í NBA-deildinni og enskur landsliðsmaður í körfubolta, hefur miklar áhyggjur af framtíð breska körfuboltans.

Jón Arnór: Áttum það skilið að fá fulla höll
Jón Arnór Stefánsson vonaðist eftir fullri Laugardalshöll í leiknum á móti Bosníu í undankeppni EM og honum varð að ósk sinni því það seldist upp á leikinn í dag.

Hlynur: Svo lengi sem ég get eitthvað hjálpað þá ætla ég að reyna að spila
Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins, verður með á móti Bosníu á morgun þrátt fyrir að hafa meiðst illa á ökkla í sigrinum á Bretum í London fyrir viku.

Formaður KKÍ fékk ískalda sturtu á æfingu landsliðsins
Tók ísfötuáskoruninni og fékk fullt kælibox af köldu vatni yfir sig.

Uppselt í Höllina: „Þetta er alveg stórkostlegt“
Fullt hús á landsleik í körfubolta í fyrsta sinn þegar Ísland mætir Bosníu annað kvöld.

Æfingar lagðar niður hjá körfuboltaliðum til að fylla Höllina
Þjálfari Snæfells aldrei upplifað fulla höll á körfuboltalandsleik.

Bosníumenn án síns besta manns í Höllinni
NBA-leikmaðurinn Mirza Teletovic, stigahæsti leikmaður undankeppni EM, verður ekki með bosníska landsliðinu í leiknum á móti Íslandi í Laugardalshöllinni á miðvikudag. Karfan.is hefur það eftir vefsíðunni Sportsport.ba að Mirza Teletovic komi ekki með til Íslands af persónulegum ástæðum en Bosníumenn hafa þegar tryggt sér sæti á EM.

Þeir koma ekki mikið harðari þannig að við erum bjartsýnir
Hlynur Bæringsson er ekki brotinn og hefur sett stefnuna á það að ná lokaleik íslenska körfuboltalandsliðsins á móti Bosníu í Laugardalshöllinni á miðvikudagskvöldið.

Tímabilið á Spáni var rosalega erfitt
Sem kunnugt er vann íslenska körfuboltalandsliðið frækinn sigur á Bretlandi í Koparkassanum í London á miðvikudaginn.

Jón Arnór: Kominn tími til að fólk mæti
"Ef það verður ekki full Laugardalshöll á miðvikudaginn, þá eigum við aldrei eftir að fylla hana. Það er kominn tími til að fólk mæti og sýni okkur þann stuðning sem við eigum skilið,“ sagði Jón Arnór Stefánsson í viðtali við Valtý Björn Valtýsson, íþróttafréttamann Stöðvar 2.

Utan vallar: Stærsti litli stóri maðurinn í Evrópu
Íslenska körfuboltalandsliðið vann stórbrotinn og dramatískan sigur á Bretum í London á miðvikudagskvöldið og er komið með níu og hálfan putta á farseðilinn á EM.

Pedersen er sannkallaður endurkomumeistari
Craig Pedersen, þjálfari körfuboltalandsliðsins, er vanur því að lið hans komi til baka. Það gerðist með ótrúlegum hætti í úrslitum danska bikarsins í fyrra og hefur gerst í öllum þremur leikjum Íslands.

Hlynur frákastahæstur | Pavel gefið flestar stoðsendingar
Íslenska körfuboltalandsliðið er sem kunnugt er komið með annan fótinn inn á EM 2015 eftir ævintýranlegan tveggja stiga sigur á Bretlandi í London í gær.

Gleymdi dóttur sinni í sigurvímu
"Þetta var náttúrulega með ólíkindum. Ég veit ekki hvar ég var eftir þennan leik,“ segir körfuknattleiksþjálfarinn Benedikt Guðmundsson.

Logi: Orðnir gott körfuboltalið á evrópskan mælikvarða
Njarðvíkingurinn vill ekki fagna of snemma þó staðan sé góð.

Hannes: Skref í átt að því að skrifa nýjan og stóran kafla í íslenskri íþróttasögu
Formaðurinn réð sér ekki fyrir kæti eftir sigurinn í Koparkassanum.

Jón Arnór og Pavel báru Hlyn á milli sín - meiddist illa í leiknum
Fyrirliðinn þurfti aðstoð við að komast út í rútu eftir leikinn í kvöld.