Íslenski körfuboltinn

Umfjöllun: Breiðablik - KR 137-85 | Blikar upp fyrir KR eftir skotsýningu í Smáranum
Breiðablik og KR eru nú jöfn að stigum í Subway-deild karla í körfubolta eftir að Blika kafsigldu KR-inga í kvöld, lokatölur 137-85 í hreint út sagt ótrúlegum leik.

Þorleifur Ólafsson: Spiluðum vel í þrjá leikhluta
Grindavík tapaði sínum fjórða leik í röð gegn Breiðabliki í kvöld. Leikurinn endaði 77-71 Kópavogskonum í vil og var Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, svekktur með úrslitin.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Stjarnan 88-77 | Heimamenn fara upp úr fallsæti
ÍR vann góðan 11 sigur á Stjörnunni í Subway-deild karla í kvöld, lokatölur 88-77. Sigurinn lyftir heimamönnum upp úr fallsæti.

„Það er alltaf markmiðið að komast inn í úrslitakeppnina“
Jordan Semple, leikmaður ÍR, var besti leikmaður vallarins í 88-77 sigri ÍR á Stjörnunni í kvöld. Jordan var sérstaklega öflugur þegar mest á reyndi á lokamínútum leiksins.

Kristófer Acox: Valur er besta varnarlið landsins
Valur fór illa með Tindastól og vann tuttugu og tveggja stiga sigur 93-71. Kristófer Acox, leikmaður Vals, var ánægður með úrslit kvöldsins.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 93-71 | Þægilegt hjá heimamönnum
Valur vann góðan sigur á Tindastól í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Það var ekki að sjá að liðin væru hlið við hlið í töflunni fyrir leik en Valur vann leikinn með 22 stiga mun.

Ég skal svara þessari spurningu eftir helgi
Vestramenn fengu sannkallaða líflínu í fallbaráttunni í Subway deildinni í kvöld, þegar þeir lögðu ÍR í TM Hellinum, 78-79. Við spurðum Pétur Má Sigurðsson, þjálfara Vestra, hvernig tilfinningin væri svona rétt eftir leik.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍR - Vestri 77-78 | Háspenna lífshætta í Breiðholti
Vestri vann ÍR í sannkölluðum spennitrylli í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 78-77 gestunum í vil sem unnu einkar dýrmætan sigur í botnbaráttunni.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Valur 58-73 | Meistararnir hefja árið á sigri
Nýliðar Grindavíkur tóku á móti Íslandsmeisturum Vals í HS Orku höllinni í Grindavík í kvöld þar sem gestirnir fóru að lokum með nokkuð sanngjarnan sigur af hólmi, 58-73.

Jón Arnór Stefánsson ráðinn til Fossa markaða
Jón Arnór Stefánsson, sem var besti körfuknattsleiksmaður Íslands um langt árabil, hefur haslað sér völl á nýjum starfsvettvangi og verið ráðinn til verðbréfafyrirtækisins Fossa markaða.

Bilic á að koma Álftanes upp í deild þeirra bestu
Körfuknattleiksdeild Álftaness tilkynnti í dag að liðið hefði samið við Slóvenann Sinisa Bilic, fyrrum leikmann Tindastóls, Vals og Breiðabliks.

Leik Fjölnis og Breiðabliks frestað
Leikur Fjölnis og Breiðabliks í Subway-deild kvenna sem fram átti að fara í Grafarvogi annað kvöld hefur verið frestað.

Daníel Guðni: „Þetta voru bara tvö góð lið að berjast og við unnum hérna í kvöld“
Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Grindvíkinga, var að vonum sáttur með 95-91 sigur sinna manna gegn Íslandsmeisturum Þórs frá Þorlákshöfn í Subway-deild karla í kvöld.

Reyndu að fá Dennis Rodman til að spila fyrir KR
Böðvar Guðjónsson hefur verið allt í öllu hjá KR undanfarna áratugi og hann var að sjálfsögðu einn af þeim sem voru teknir fyrir í þáttunum Foringjunum á Stöð 2 Sport en í þáttunum var rætt við menn sem hafa gefið mikið af sér og verið lengi í áhrifastöðum hjá íslenskum íþróttafélögunum.

Hörður Axel: Verður skrýtið að spila gegn Hauki Helga
Hörður Axel Vilhjálmsson átti mjög góðan leik fyrir Keflvíkinga sem gerðu góða ferð til Grindavíkur og unnu þar 90-76 sigur í Subway deildinni í kvöld.

Sara Rún og Elvar körfuboltafólk ársins
Sara Rún Hinriksdóttir og Elvar Már Friðriksson voru valin körfuboltafólk ársins 2021 af Körfuknattleikssambandi Íslands. Þetta er annað árið í röð sem Sara fær þessa viðurkenningu en í fyrsta sinn sem Elvar fær hana.

Sóknarleikurinn allsráðandi er Fjölnir vann í Grindavík
Það var mikið skorað er Fjölnir sótti Grindavík heim í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 96-111. Sanja Orozovic á allt hrós skilið fyrir ótrúlegan leik en án hennar hefði Fjölnir ekki átt möguleika í kvöld.

Umfjöllun og myndir: Valur - Njarðvík 72-71 | Valsmenn í undanúrslit eftir sigur á bikarmeisturunum
Valur er síðasta liðið til að tryggja sér farseðil í undanúrslit VÍS bikarsins. Valur vann eins stigs sigur gegn ríkjandi bikarmeisturum Njarðvíkur 72-71.

Keflavík í undanúrslit bikarsins
Keflavík tryggði sér sæti í undanúrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta er liðið lagði Hauka í kvöld, lokatölur í Keflavík 101-92 heimamönnum í vil.

Arnar Guðjónsson: Við erum bara í þeirri stöðu að við þurfum að berjast um sæti í úrslitakeppninni
Þjálfari Stjörnunnar var að vonum kampakátur í leikslok enda eru hans menn komnir í undanúrslit í VÍS bikarnum eftir mjög góðan sigur á Grindvíkingum í kvöld 85-76. Eftir jafnan fyrri hálfleik þá tóku Stjörnumenn völdin í leiknum og sigldu honum heim nánast örugglega. Hvað var það sem hans menn gerðu vel í kvöld. Þeir t.d. héldu Ivan Aurrecoechea í tveimur stigum í seinni hálfleik en það hlýtur að hafa verið áhersla lögð á að stöðva hann.

Íslandsmeistararnir rétt skriðu inn í undanúrslitin
Íslandsmeistarar Þórs frá Þorlákshöfn unnu afar nauman eins stigs sigur er liðið heimsótti ÍR í átta liða úrslitum VÍs bikars karla í körfubolta í kvöld, 77-79.

Bikarmeistarar Hauka tryggðu sér sæti í undanúrslitum
Bikarmeistarar Hauka tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum VÍS bikars kvenna með öruggum 18 stiga sigri gegn 1. deildarliði ÍR í dag. Leikið var í Seljaskóla, en lokatölur urðu 76-58.

Eiki hljóðmaður: „Er ÍR komið með sterkara lið en Stjarnan?“
Eiríkur Hilmisson, eða einfaldlega Eiki hljóðmaður, heldur áfram að spyrja strákana í Körfuboltakvöldi spjörunum úr. Að þessu sinni velti hann fyrir sér hvort ÍR væri komið með betri hóp en Stjarnan í Subway-deild karla í körfubolta.

Taldi að sitt fyrrum lið gæti komist í úrslitakeppnina en svo dró það sig úr keppni
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir varð bikarmeistari með Skallagrími í febrúar árið 2020. Þegar hún gekk í raðir Fjölnis í haust taldi hún engar líkur að félagið myndi draga sig úr keppni í Subway-deild kvenna í körfubolta skömmu síðar.

„Það voru rulluspilararnir sem gengu frá þeim“
Valur mætti með laskað lið á Akureyri er það mætti Þór í Subway-deild karla í körfubolta á dögunum. Gestirnir misstu tvo leikmenn af velli vegna meiðsla en tókst samt að landa fjögurra stiga sigri.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Valur 74-79 | Gestirnir unnu í framlengdum leik
Sigursælasta lið sögunnar, Keflavík, tók á móti ríkjandi Íslandsmeisturum Vals í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Þetta var leikur áhlaupa og hörkuskemmtun sem fór alla leið í framlengingu, þar höfðu gestirnir á endanum betur, 74-79.

„Þau eru bara áhorfendur og áhorfendur öskra“
Ásta Júlía Grímsdóttir, leikmaður Vals, var sátt með nauman sigur í Keflavík eftir framlengdan leik, 74-79.

Njarðvík áfram á toppnum eftir dramatískan sigur | Haukar upp að hlið Keflavíkur
Njarðvík og Haukar unnu góða sigra í Subway-deild kvenna í kvöld. Leikirnir í Njarðvík og Hafnafirði voru æsispennandi þó meira hafi verið um sterkar varnir en flæðandi sóknarleik.

Umfjöllun: Skallagrímur - Fjölnir 70-105 | Fjölnir vann sinn fjórða leik í röð
Fjölnir vann sinn fjórða leik í röð þegar liðið mætti Skallagrími í Borgarnesi. Fjölnir fór illa með Skallagrím strax í fyrri hálfleik og var 34 stigum yfir í hálfleik. Fjölnir vann leikinn á endanum 70-105.

Körfuboltakvöld um Þór Ak.: „Ef þú ert ekki með vilja þá ertu dauðadæmdur“
Frammistaða Þórs Akureyrar í tapinu gegn Breiðabliki um helgina var til umræðu í Körfuboltakvöldi. Mikill fallfnykur er af Þórsurum sem þurfa að girða sig í brók ef liðið ætlar ekki að spila í 1. deild á næstu leiktíð.