Íslenski handboltinn

Adios senor Padron
Mál málanna í íþróttaheiminum síðustu daga hefur verið mál Jaliesky Garcia Padron. Þessum kúbverska Íslendingi var hent úr íslenska landsliðshópnum um daginn þar sem hann mætti ekki til æfinga á tilsettum tíma og hafði þar að auki ekki fyrir því að láta vita af sér.
Tveir leikir í 1. deild kvenna
Tveir leikir eru í fyrstu deild kvenna í handknattleik í dag. Íslandsmeistarar ÍBV taka á móti Stjörnunni í Eyjum klukkan tvö. Klukkutíma síðar hefst viðureign Fram og Hauka í Framheimilinu.
Tékkar töpuðu fyrir Svíum
Tékkar, fyrstu andstæðingar Íslendinga á heimsmeistaramótinu í Túnis, biðu lægri hlut fyrir Svíum 32-30 í gær á alþjóðlegu móti í Malmö. Danir rótburstuðu Brasilíumenn 41-15 í hinum leik mótsins.
Rússar unnu Alsíringa
Rússar og Alsíringar, andstæðingar Íslendinga í b-riðli heimsmeistaramótsins í Túnis, mættust á æfingamóti í Noregi í gærkvöldi. Rússar unnu sex marka sigur, 27-21. Rússneska liðið er mjög breytt frá fyrri stórmótum. Liðið er ungt að árum og þjálfari liðsins til margra ára, Maximov, er hættur.
Stjarnan vann Gróttu/KR
Stjarnan bar sigurorð af Gróttu/KR 26-20 í fyrstu deild kvenna í handbolta í gærkvöldi. Anna Blöndal skoraði sjö mörk og Kristín Guðmundsdóttir sex fyrir Stjörnuna. Arna Gunnarsdóttir skoraði sex mörk fyrir Gróttu/KR.

Ísland tapaði fyrir Frökkum
Íslenska karlahandboltalandsliðið tapaði fyrir Frökkum í kvöld, 30-26, á æfingaleik á Spáni. Staðan í hálfleik var 16-12 fyrir Frakka. Nýjasta stjarna okkar Íslendinga, línumaðurinn Róbert Gunnarsson hélt áfram sínu striki og var markahæstur með 6 mörk. Næstur á eftir honum kom Haukamaðurinn Vignir Svavarsson með 5 mörk.

Garcia sendir Viggó tóninn
Jaliesky Garcia, leikmaður Göppingen í Þýskalandi, gefur ekki kost á sér í íslenska landsliðið í handknattleik á meðan Viggó Sigurðsson er landsliðsþjálfari. Þetta kom fram í viðtali við Garcia í Olíssporti á Sýn í gærkvöldi.

Garcia fær að skýra mál sitt
"Ég vil nú ekki líta svo á að hann hafi kallað mig lygara heldur frekar að íþróttafréttamaðurinn hafi lagt honum orð í munn," segir Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari í handknattleik.

Hef trú á mér og strákunum
Íslenska handboltalandsliðið fór til Spánar í gær þar sem lokaundirbúningurinn fyrir HM í Túnis fer fram
ÍBV og Valur sigruðu
ÍBV sigraði FH 29-37 í úrvalsdeild kvenna í handbolta í kvöld og söxuðu Eyjastúlkur með því á forskot Hauka á toppi deldarinnar í 2 stig. Valsstúlkur sigruðu Víking 28-21 og eru í 3. sæti með 14 stig, sex stigum á eftir ÍBV.

Viggó í Olíssporti í kvöld
Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, verður gestur Olíssports á Sýn í kvöld klukkan tíu. Landsliðið heldur utan á fimmtudag til Spánar þar sem þeir taka þátt í æfingamóti fyrir heimsmeistaramótið í Túnis sem hefst 23.janúar.
Leikirnir hér heima í kvöld
Í kvöld er leikið í efstu deildum kvenna í handbolta og körfubolta. Í úrvalsdeild kvenna í handbolta mætast FH og ÍBV í Hafnarfirði og Valur og Víkingur á Hlíðarenda en báðir leikirnir hefjast kl 19.15. Í körfunni eru einnig tveir leikir hjá stelpunum þegar 12. umferð hefst. Botnlið KR stúlkna sem er enn án stiga fær ÍS í heimsókn og topplið Keflavíkur tekur á móti Haukum.

Garcia kominn í leitirnar
Jaliesky Garcia, landsliðsmaður í handbolta, er kominn í leitirnar. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, talaði við Garcia seint í gærkvöldi en þá var leikmaðurinn staddur á Púertó Ríkó. Ekkert hafði náðst í Garcia í nokkrar vikur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Garcia fer ekki til Túnis
Jaliesky Garcia mun ekki fara með íslenska landsliðinu í handknattleik á HM í Túnis sem hefst síðar í mánuðinum að sögn Viggós Sigurðssonar landsliðsþjálfara í samtali við íþróttadeild Stöðvar 2 og Sýnar nú fyrir stundu. Hugsanlegt er að Garcia hafi leikið sinn síðasta landsleik undir stjórn Viggós.
Hrafnhildur með þrjú í sigurleik
Hrafnhildur Skúladóttir landsliðskona skoraði þrjú mörk fyrir danska liðið Århus í gær þegar liðið lagði Neustadt frá Austurríki að velli 29-24 í Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik. Síðari leikurinn verður í Danmörku.

Garcia enn ófundinn
Forysta Handknattleikssambands Íslands og landsliðsþjálfarinn Viggó Sigurðsson munu taka ákvörðun, um hvort stórskyttan Jaliesky Garcia verði í landsliðshópnum sem fer á heimsmeistaramótið í Túnis, í dag. Garcia hefur ekkert látið í sér heyra frá því að hann fór til Kúbu til að vera viðstaddur jarðarför föður síns á milli jóla og nýárs og sagði Viggó í samtali við Fréttablaðið í gær að framkoma Garcia væri furðuleg.
Svavar frá næstu vikurnar
Svavar Vignisson, línumaðurinn sterki hjá handknattleiksliði ÍBV, ristarbrotnaði á æfingu og verður frá næstu vikurnar. Þetta er mikið áfall fyrir ÍBV sem er komið í undanúrslit bikarkeppninnar og tryggði sér sæti í úrvalsdeild DHL-deildarinnar.

Stjarnan komst áfram
Stjörnustúlkur tryggðu sér í gær sæti í sextán liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu í handknattleik með því að vinna stórsigur á gríska liðinu APS Makedonikas, 35-13, í Ásgarði. Sigur Stjörnunnar var, eins og lokatölurnar gefa til kynna, mjög öruggur og leyfði Erlendur Ísfeld, þjálfari Stjörnunnar, öllum leikmönnum sínum að spila.

Mikil upplifun að spila með Óla
Handboltakappinn Alexander Petersson spilaði sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd gegn Svíum í vikunni sem leið. Petersson, sem er borinn og barnfæddur í Lettlandi, stóð sig framar vonum og skoraði sjö mörk í leikjunum tveimur. Frammistaða hans í leikjunum tveimur gerir það að verkum að hann verður líklega í byrjunarliðinu í hægra horninu á heimsmeistaramótinu í Túnis sem hefst 23. janúar næstkomandi.
Viggó ánægður með Petersson
Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari var mjög ánægður með Alexander Petersson í frumraun hans með íslenska landsliðinu í leikjunum tveimur gegn Svíum í síðustu viku. Viggó sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að innkoma Peterssons í landsliðið hefði verið mjög jákvæð.
ÍBV og FH sigruðu
Tveir leikir fóru fram í úrvaldsdeild kvenna í handknattleik í dag. Í Vestmannaeyjum sigruðu heimastúlkur Val 27-26 og FH sigraði Gróttu/KR 25-22 á útivelli.
Stjarnan sigraði Osmangazi
Stjörnustúlkur sigruðu í dag Eskisehir Osmangazi frá Tyrklandi í Evrópukeppni kvenna í handknattleik, en lokatölur urðu 30-23. Möguleikar Stjörnustúlkna á að komast áfram eru því ágætir, en á morgun mæta þær gríska liðinu Makedonikos.

Reynt að ná í Garcia um helgina
Beðið verður fram yfir helgi með að taka ákvörðun um hvort Jaliesky Garica, leikmaður Göppingen í Þýskalandi, verði með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Túnis í lok mánaðarins.

Reynsluleysi hjá Stjörnunni
Stjarnan tók á móti svissneska liðinu Spono Nottwill í áskorendakeppni Evrópu í handknattleik kvenna sem fram fór í Garðabæ. Þetta var fyrsti leikur Stjörnunnar á mótinu og þétt setinn áhorfendabekkurinn í Garðabænum.

Stórleikur aldarinnar
Mikil stemming er á Akureyri vegna leiks bikarmeistara KA í handknattleik frá árinu 1995, gegn núverandi bikarmeisturum félagsins en leikurinn fer fram í KA-heimilinu í dag og hefst klukkan 15.

Danir og Serbar skildu jafnir
Ýmsar af bestu handknattleiksþjóðum heims undirbúa sig nú fyrir heimsmeistaramótið í Túnis sem hefst 23. janúar. Danir og Serbar áttust við á undirbúningsmóti í Frakklandi í gærkvöld og skildu jafnir, 27-27. Á sama móti lögðu Frakkar Grikki örugglega, 31-22.
Stjörnustúlkur gerðu jafntefli
Stjarnan gerði í dag 24-24 jafntefli við Spono Nottwil frá Sviss í Evrópukeppninni, en liðin áttust við að Ásgarði.

Fimm marka tap gegn Svíum
Íslenska landsliðið í handknattleik tapaði gegn Svíum í vináttuleik í Skövde í kvöld, en lokatölur urðu urðu 36-31 eftir að Íslendingar höfðu leitt með eins marks mun í leikhléi, 17-16.

Góður möguleiki að komast áfram
Kvennalið Stjörnunnar í handknattleik spilar um helgina þrjá leiki í Áskorendakeppni Evrópu en leikið er með riðlafyrirkomulagi í fyrsta sinn.

Klaufalegt tap gegn Svíum
Íslendingar töpuðu fyrir Svíum með einu marki, 29-28, í vináttuleik þjóðanna í Svíþjóð í kvöld. Svíar skoruðu sigurmarkið á lokasekúndum leiksins. Roland Eradze markvörður var besti maður íslenska liðsins og varði 18 skot. Róbert Gunnarsson var markahæstur með 5 mörk en Dagur Sigurðsson og Einar Hólmgeirsson voru með 4 mörk.