
Ummerki

„Alveg ljóst að það er of mikið af kynferðisofbeldi í þessu samfélagi“
Brotaþolar hafa aðeins réttarstöðu vitnis í kynferðisbrotamálum og hafa því í raun lítinn sem engan rétt á upplýsingum um mál sitt. Þeir hafa hvorki rétt á upplýsingum um framgang málsins, þeim er ekki heimilt að sitja lokað þinghald og hafa ekki meiri rétt en hver annar á að vita hvort viðkomandi þarf að afplána dóm vegna brota sinna.

Telur sig aldrei geta lifað eðlilegu lífi nema hún nái fram réttlæti fyrir dóttur sína
„Þetta myndi breyta því að mér myndi líða betur, að ég fengi einhverja hugarró. Þetta er svo hroðaleg lítilsvirðing. Hún var 21 árs. Hann nauðgaði henni og fór með hana út svalir, meðvitundarlausa, til þess að myrða hana.“

„Við breytum ekki fortíðinni“
„Þetta kemur upp í hugann á mér á hverjum degi. En við breytum ekki fortíðinni og við getum ekkert gert í henni. Það sem gerðist, gerðist. Alveg sama hvað við reynum,“ segir Þór Sigurðsson, sem var dæmdur fyrir að hafa banað öðrum manni árið 2002.

„Algjör tilviljun að þessir tveir menn rákust á hvorn annan“
Þann 18. febrúar 2002 fannst karlmaður liggjandi á gangstétt í blóði sínu við Víðimel í Vesturbæ Reykjavíkur. Kona sem gekk fram á manninn taldi hann meðvitundarlausan og kallaði til lögreglu en þegar lögreglumenn komu á staðinn kom í ljós að maðurinn var látinn.

„Það voru engin ummerki á vettvangi sem bentu til neins annars en veikinda”
Hinn 14. febrúar 2015 var karlmanni veitt stungusár á heimili sínu við Skúlaskeið í Hafnarfirði, með þeim afleiðingum að hann hlaut bana af. Hnífurinn gekk inn í hægra brjóst mannsins og fór djúpt inn í lungað. Stungan sjálf var hins vegar agnarsmá og hefði auðveldlega getað farið fram hjá viðbragðsaðilum.

Heyrði ópin út á götu en snerist á hæl
„Þegar maður fer í gegnum málið og skoðar það sem hafði gerst þarna þá finnst manni að það hefði verið hægur leikur að koma í veg fyrir þessa árás af hálfu þessa manns,” segir Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður.

„Þetta hljómaði bara eins og hvert annað útkall“
Aðfaranótt mánudagsins 2. desember 2013 barst lögreglu tilkynning frá áhyggjufullum íbúa í Hraunbæ í Reykjavík. Íbúinn kvaðst reglulega verða fyrir ónæði vegna hávaða og tónlistar úr íbúðinni fyrir ofan en í þetta sinn var hljóðið í honum þyngra. Hann sagðist hafa heyrt skothvell koma úr íbúðinni og tók sérstaklega fram að hann hefði starfað á erlendri grundu sem friðargæsluliði og þekkti því skothljóð vel. Fjallað var um málið í sjónvarpsþættinum Ummerki á Stöð 2 í gærkvöld.

„Trúlega mikilvægasta skófar sem við höfum lyft af vettvangi”
Gunnar Rúnar Sigurþórsson var dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Fjallað var um málið í Ummerkjum á Stöð 2.

Sólrún Diego kölluð á vettvang: „Hver gengur svona um?“
Gummi Ben, Sóli Hólm og Sólrún Diego fóru á kostum í grínatriði í Föstudagskvöldi í gær þar sem þremenningarnir voru á vettvangi ótrúlegs óþrifnaðar.

„Ummerkin voru, ef ég orða það pent, svakaleg“
Fjallað var um morðið að Dalshrauni í sjónvarpsþættinum Ummerkjum á Stöð 2 í gærkvöld. Rætt við helstu rannsakendur og fleiri.

„Það var ekkert eðlilegt við þetta útkall“
Karlmaður sem var dæmdur fyrir morðið á eiginkonu sinni á heimili þeirra við Stelkshóla í Breiðholti árið 2014 var látinn laus úr haldi rúmum þremur árum eftir að dómurinn féll.

Fékk martraðir í tvær vikur eftir að hafa tekið upp efni fyrir þættina
Sjónvarpsþáttaserían Ummerki hefur göngu sína á Stöð 2 á sunnudaginn.

„Þetta eru erfið, viðkvæm og sorgleg mál“
Sjónvarpsþáttaserían Ummerki hefur göngu sína á Stöð 2 sunnudaginn 8. nóvember næstkomandi.