Spænski boltinn

Ronaldo með tvö í sigri Real Madrid
Real Madrid endurheimti fimm stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 4-1 sannfærandi sigri á Athletic Bilbao.

Messi með enn eina þrennuna í sigri á Málaga
Barcelona rústaði Málaga 4-1 í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en í leiknum gerði Lionel Messi sína fimmtu þrennuna sína á tímabilinu.

Mourinho setur Pepe í tveggja vikna bann
Varnarmaðurinn Pepe hjá Real Madrid mun ekki spila með liðinu næstu tvær vikurnar en hann traðkaði á hönd Lionel Messi, leikmanni Barcelona, í leik liðanna í spænsku bikarkeppninni í vikunni.

Sjáið Pepe stíga ofan á Messi - harðlega gagnrýndur á Spáni
Spænskir fjölmiðlar voru allt annað en hrifnir af hegðun Pepe, leikmanns Real Madrid í leiknum á móti Barcelona í spænska bikarnum í gær en Real Madrid varð þá enn einu sinni að sætta sig við tap á móti erkifjendunum.

Barcelona vann enn einn sigurinn á Real Madrid
Barcelona lenti 0-1 undir en vann engu að síður 2-1 sigur á Real Madrid í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænska Konungsbikarsins en leikurinn í kvöld fór fram á heimavelli Real Madrid.

Lionel Messi frumsýnir nýja takkaskó í El Clasico í kvöld
Lionel Messi hefur verið á skotskónum það sem af er þessu tímabili með Barcelona en argentínski snillingurinn er ekkert hræddur við að skipta um takkaskó. Messi ætlar nefnilega að frumsýna nýja skó í El Clasico á kvöld þar sem Barcelona mætir Real í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænska bikarsins.

Granero hjá Real Madrid: Vill helst komast til Liverpool
José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur ekki mikla trú á spænska miðjumanninum Esteban Granero og umboðsmaður leikmannsins er byrjaður að blaðra um það í fjölmiðlum að leikmaðurinn vilji komast í burtu frá Santiago Bernabéu.

Guardiola kemur á óvart: Busquets er besti miðjumaður heims
Það eru allir að tala um snillingana Xavi og Andreas Iniesta á miðjunni hjá Barcelona en þjálfarinn Pep Guardiola er samt ekki sammála því að þetta séu bestu miðjumenn liðsins.

Barcelona heldur sínu striki
Barcelona marði Real Betis 4-2 á heimavelli sínum í kvöld. Þrátt fyrir óskabyrjun þar sem Barcelona var komið í 2-0 eftir 12. mínútna leik náði Betis að jafna metin en einum fleiri tókst Barcelona að knýgja fram sigur undir lokin.

Real Madrid vann á Majorka og náði átta stiga forskoti á Barca
Real Madrid er komið með átta stiga forskot á Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 2-1 endurkomusigur á útivelli á móti Mallorca í kvöld.

Barcelona búið að vinna 99 deildarleiki undir stjórn Guardiola
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, getur komist í góðan hóp um helgina fari svo að Barcelona vinni lið Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni. Barcelona er nefnilega búið að vinna 99 deildarleiki undir hans stjórn.

Barcelona mætir Real Madrid í bikarnum
Það er nú endanlega ljóst að Barcelona og Real Madrid munu eigast við í fjórðungsúrslitum spænsku bikarkeppninnar eftir að Börsungar unnu 2-1 sigur á Osasuna í kvöld.

Maxwell á förum frá Barcelona til PSG
Brasilíski bakvörðurinn Maxwell er á leið frá Barcelona til PSG en franska liðið mun safna miklu liði næstu vikur og mánuði.

Benzema tryggði Real sigur
Real Madrid er komið áfram í fjórðungúrslit spænsku bikarkeppninnar eftir 4-2 samanlagðan sigur á Malaga. Karim Benzema tryggði Real 1-0 sigur á útivelli í síðari viðureigninni í kvöld.

Platini: Messi verður að vinna HM til að geta talist sá allra besti
Lionel Messi jafnaði afrek Michel Platini í gær með því að vinna Gullboltann þrjú ár í röð og Platini segir að Messi sé þegar orðinn einn af bestu fótboltamönnum allra tíma. Forseti UEFA bendir samt á það að Messi geta aldrei verið talinn sá allra besti nema að hann ná árangri með argentínska landsliðinu.

Messi getur jafnað afrek Platini í kvöld
Lionel Messi fær að vita það í kvöld hvort að hann fái Gullboltann þriðja árið í röð og komist þá í hóp með Frakkanum Michel Platini, núverandi forseta UEFA en Platini var kosinn besti knattspyrnumaður Evrópu 1983, 1984 og 1985.

Servíettan sem breytti sögu Barcelona
Ferill Lionel Messi hjá Barcelona hófst með því að skrifað var undir samning á servíettu. Þessi servíetta hefur breytt sögu Barcelona enda gengi liðsins með Messi fremstan í flokki verið ótrúleg.

Espanyol náði í stig gegn Barcelona
Barcelona náði aðeins í stig gegn erkifjendunum í Espanyol þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli á heimavelli Espanyol í kvöld.

Real rúllaði yfir Granada
Real Madrid náði í kvöld sex stiga forskoti á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar. Real valtaði þá yfir Granada á heimavelli og vann stórsigur, 5-1.

Ronaldo og Mourinho verða heima er besti leikmaður heims verður valinn
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, og Jose Mourinho, þjálfari félagsins, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að þeir ætli ekki að mæta á galahátíðina er besti leikmaður heims verður krýndur.

Barcelona búið að skora 53 mörk í röð á Camp Nou
Það er líklega ekki til erfiðari leikur í dag en að heimsækja Evrópumeistara Barcelona á Camp Nou og tölfræðin í síðustu tólf heimaleikjum Barca sýnir það svart á hvítu. Barcelona vann 4-0 sigur á Osasuna í spænska bikarnum í fyrsta heimaleik ársins og tóku Börsungar þar upp fyrri yðju á Nývangi sem er að skora fullt af mörkum án þess að fá á sig mark.

Fàbregas og varamaðurinn Messi báðir með tvö mörk í sigri Barcelona
Cesc Fàbregas var í aðalhlutverki í kvöld þegar Barcelona vann 4-0 sigur á Osasuna í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænska Konungsbikarsins. Fàbregas skoraði tvö fyrstu mörkin og lagði síðan upp það þriðja fyrir varamanninn Lionel Messi sem átti síðan efrtir að bæta við öðru marki sínu rétt fyrir leikslok.

Messi og Valdés veikir - missa af leiknum í kvöld
Barcelona verður án tveggja lykilmanna í kvöld þegar liðið mætir Osasuna í sextán liða úrslitum spænska Konungsbikarsins fótbolta en þetta er fyrri leikur liðanna og fer leikur kvöldsins fram á heimavelli Barcelona.

Real Madrid lenti 0-2 undir en vann samt
Real Madrid komst í hann krappann á mót Malaga í kvöld í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum spænska Konungsbikarsins. Real Madrid vann leikinn á endanum 3-2 eftir að hafa lent 0-2 undir eftir hálftíma leik.

Mourinho hefur ekki áhuga á því að selja leikmenn
Þegar lið eru með stóran hóp er alltaf hætta á því að leikmenn verði fúlir og vilji róa á önnur mið. Sú er staðan hjá Real Madrid en þjálfarinn, Jose Mourinho, er vongóður um að halda öllum leikmönnum félagsins út leiktíðina.

Cristiano Ronaldo: Spænska deildin er betri en sú enska
Cristiano Ronaldo, framherji Real Madrid, er sannfærður um að hann sé að spila í bestu deild í heimi. Flestir líta á sem svo að enska úrvalsdeildin sé besta fótboltadeildin í dag en Portúgalinn er ekki sammála. Hann er á sínu þriðja tímabili með Real Madrid.

Barcelona vill fá Romeu aftur næsta sumar
Spænska dagblaðið Marca segir líklegt að Barcelona ætli sér að kaupa miðjumanninn Oriel Romeu aftur frá Chelsea aðeins fimm mánðuðum eftir að hann var seldur til Englands.

Þjálfari Argentínu: Við verðum að hætta að gagnrýna Messi annars hættir hann
Alejandro Sabella, þjálfari argentínska landsliðsins hefur áhyggjur af því að mikil gagnrýni Argentínumanna á frammistöðu Lionel Messi með landsliðinu muni einugnis leiða til þess að Messi hætti að gefa kost á sér í landsliðið.

Fabregas: Ef ég þarf að fara frá Barcelona þá vil ég bara fara aftur til Arsenal
Cesc Fabregas vonast til þess að ljúka ferli sínum hjá Barcelona en ef ekki þá sé hann aðeins tilbúinn að spila með einu öðru liði sem er Arsenal. Barcelona keypti Fabregas frá Arsenal á 25 milljónir punda í ágúst og síðan hefur Cesc unnið þrjá titla með Barcelona-liðinu.

Cristiano Ronaldo skoraði meira en Messi á árinu 2011
Cristiano Ronaldo og Lionel Messi hafa báðir átt frábært ár. Messi vann reyndar fjóra fleiri titla með Barcelona á árinu en það var Ronaldo sem skoraði einu marki meira á árinu sem er að líða.