
Spænski boltinn

Messi og Iniesta hjá Barca til 2016?
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum er stutt í að þeir Lionel Messi og Andres Iniesta muni framlengja samninga sína við Barcelona til loka tímabilsins 2016.

Puyol mun framlengja við Barcelona
Fyrirliði Barcelona, Carles Puyol, mun að öllum líkindum skrifa undir nýjan samning við Barcelona á næstu dögum.

Zlatan fetaði í fótspor Eiðs Smára
Svíinn Zlatan Ibrahimovic varð fyrsti nýi leikmaðurinn í þrjú ár hjá Barcelona sem skoraði í sínum fyrsta deildarleik með félaginu. Sá sem gerði það síðast var Eiður Smári Guðjohnsen.

Alonso íhugaði að fara fyrir ári síðan
Xabi Alonso hefur greint frá því að hann hafi fyrst byrjað að hugsa um að yfirgefa Liverpool fyrir einu ári síðan.

Helstu félagaskipti kvöldsins
Félagaskiptaglugginn lokaði í Evrópu í kvöld og var því nóg að gera í félagaskiptum víða um álfuna.

Zlatan skoraði fyrir Barca
Zlatan Ibrahimovic skoraði í sínum fyrsta leik í spænsku úrvalsdeildinni með Barcelona er liðið vann 3-0 sigur á Sporting Gijon í kvöld.

Van der Vaart tjáð að hann eigi framtíð í Madrid
Flest virtist benda til þess að miðjumaðurinn Rafael Van der Vaart myndi yfirgefa herbúðir Real Madrid í rýmingarútsölunni á Hollendingum sem Madridingar hafa staðið fyrir að undanförnu.

Chygrynsky: Er í skýjunum með að vera kominn til Barcelona
Úkraínski varnarmaðurinn Dymytro Chygrynsky er formlega genginn í raðir Meistaradeildarmeistara Barcelona eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá spænska félaginu í morgun.

Gengið frá félagaskiptum Eiðs síðdegis
Eiður Smári Guðjohnsen mun semja við AS Monaco nú síðdegis en hann hefur í morgun gengist undir ýmis konar próf í tengslum við læknisskoðun félagsins.

Real Madrid með risakauptilboð í Ribery?
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum í dag er spænska stórliðið Real Madrid ekki búið að játa sig sigrað í kapphlaupinu um Franck Ribery hjá Bayern München.

Eiður sagður fara til Mónakó í dag
Eiður Smári Guðjohnsen mun í dag ganga til liðs við franska úrvalsdeildarfélagið AS Monaco, eftir því sem fram kemur í spænska dagblaðinu Marca.

Eiður ekki í leikmannahópi Barcelona
Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Barcelona sem mætir Sporting Gijon í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar annað kvöld.

Framtíð Eiðs Smára skýrist á morgun
Það mun ekki skýrast fyrr en á morgun hver framtíð Eiðs Smára Guðjohnsen verður. Lokadagur félagaskiptagluggans er á morgun og þá kemur í ljós hvort Eiður fari frá Barcelona eða verði áfram í herbúðum félagsins.

Ronaldo fljótur að opna markareikninginn hjá Real
Stjörnum prýtt lið Real Madrid hóf leiktíðina á Spáni í kvöld er lið Deportivo la Coruna kom í heimsókn. Stjörnurnar stóðust fyrsta prófið og unnu góðan 3-2 sigur.

Usain Bolt opnar leiktíðina hjá Real Madrid
Fljótasti maður heims, Usain Bolt, verður á Santiago Bernabeau í kvöld og mun taka upphafssparkið í opnunarleik Real Madrid í kvöld gegn Deportivo.

Atletico Madrid segir Heitinga ekki vera á förum
Forráðamenn spænska félagsins Atletico Madrid hafa tekið fyrir það að varnarmaðurinn Johnny Heitinga sé á förum frá félaginu en spænskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Everton væri búið að leggja fram kauptilboð í landsliðsmanninn hollenska.

Barcelona bætti við enn einum titlinum í safnið
Barcelona bætti í kvöld enn einum titlinum í safnið er liðið bar sigurorð af Shakhtar Donetsk frá Úkraínu í Meistarakeppni UEFA í kvöld. Leikurinn fór fram í Mónakó.

Félagaskipti Sneijder staðfest
Bæði Real Madrid og Inter á Ítalíu hafa staðfest að síðarnefnda félagið hefur fest kaup á Hollendingnum Wesley Sneijder frá Real.

Robben á leið til Bayern
Bayern München og Real Madrid hafa komist að samkomulagi um kaupverð á Hollendingnum Arjen Robben, leikmanni Real. Það er talið vera um 22 milljónir punda.

Útsala á Hollendingum í Madrid - Robben á leið til Bayern München
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum í dag er þýska félagið Bayern München nálægt því að kaupa Hollendinginn Arjen Robben frá Real Madrid en kaupverðið er talið nema um 25 milljónum evra.

Forlan og Aguero að fá nýja og betri samninga
Atletico Madrid mun á næstunni bjóða framherjunum Diego Forlan og Sergio Aguero nýja og betri samninga hjá félaginu.

Real gefst upp á Ribery
Framkvæmdastjóri Real Madrid, Jorge Valdano, hefur gefið það út að Real Madrid sé endanlega hætt við að reyna að fá Franck Ribery til félagsins.

Barcelona hampaði ofurbikarnum á Spáni
Börsungur sigruðu leikinn um meistara meistaranna á Spáni eftir 3-0 sigur gegn Athletic Bilbao á Nývangi í kvöld í seinni leik liðanna en Barcelona vann fyrri leikinn 1-2.

Ekki víst að Sneijder fari til Inter
Fyrr í dag benti allt til þess að hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder væri á leið frá Real Madrid til ítalska félagsins Inter.

Pedro búinn að skrifa undir atvinnumannasamning
Pedro Rodriguez er nú orðinn fullgildur meðlimur aðalliðs Barcelona eftir að hann skrifaði undir atvinnumannasamning hjá félaginu í dag.

Negredo sagður á leið til Sevilla
Alvaro Negredo er nú sagður á leiðinni til Sevilla á Spáni en hann hefur undanfarnar vikur verið orðaður við Hull í ensku úrvalsdeildinni.

Sevilla sagt hafa áhuga á miðjumanni Brann
Spænska félagið Sevilla er sterklega orðað við norska landsliðsmanninn Erik Huseklepp sem leikur með Íslendingaliði Brann í Noregi.

Barcelona ætlar að bjóða Iniesta og Messi nýja og betri samninga
Txiki Beguristain, yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona, hefur staðfest að félagið ætli að verðlauna stjörnuleikmennina Andres Iniesta og Lionel Messi með nýjum og betri samningum á næstunni.

Aguero vill vera áfram í herbúðum Atletico Madrid
Framherjinn eftirsótti Sergio Aguero hefur ítrekað að hann hafi engan áhuga á því að yfirgefa Atletico Madrid áður en félagsskipta glugginn lokar 1. september næstkomandi.

Forseti Atletico Madrid neitar að Aguero sé á förum
Forsetinn Enrique Cerezo hjá Atletico Madrid hefur vísað á bug sögusögnum þess efnis að Chelsea sé nálægt því að krækja í framherjann Sergio Aguero og ítrekar að leikmaðurinn sé einfaldlega ekki til sölu.