Spænski boltinn

Helgi Sig lék gegn Barcelona
Helgi Sigurðsson og félagar í danska knattspyrnuliðinu AGF Aarhus máttu þola 0-4 tap á mánudagskvöld gegn spænska stórliðinu Barcelona en leikurinn var liður í undirbúningsferð Barca í Danmörku. Helgi var ekki í byrjunarliði AGF í leiknum en kom inn á í síðari hálfleik.
Nunez kominn til Celta Vigo
Antonio Nunez hefur skrifað undir þriggja ára samning við spænska liðið Celta Vigo en hann kemur frá Evrópumeisturum Liverpool. Nunez er því aftur kominn í spænska boltann eftir misheppnaða dvöl á Anfield.

Figo til Inter?
Ítalska liðið Internazionale leiðir kapphlaupið um miðjumanninn Luis Figo hjá Real Madrid samkvæmt fréttum fjölmiðla á Ítalíu í gær. Enska liðið Liverpool er þó enn í baráttunni um leikmanninn.

Guti - nei takk
Spænski landsliðsmaðurinn Guti, sem leikur með Real Madrid, lýsti yfir áhuga sínum á því að ganga til liðs við Arsenal fyrir skömmu. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, sagði hins vegar frá því að í gær að hann myndi ekki vilja frá Guti til félagsins. "Þó Guti sé góður leikmaður, þá þurfum við ekki á honum að halda hérna.

Robinho í læknisskoðun hjá Real
Brasilíski framherjinn Robinho fór í gærmorgun í læknisskoðun hjá lækni Real Madrid, Alfonso del Corrall. Robinho vonast til þess að geta gengið til liðs við Real Madrid sem allra fyrst, en forráðamenn brasilíska félagsins Santos, sem Robinho hefur leikið með síðastliðin ár, hefur staðið í vegi fyrir för hans til spænska liðsins.

Robinho til Real
Brasilíski snillingurinn Robinho er genginn til liðs við Real Madrid frá Santos í Brasilíu.Real borgar 16,6 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er 21 árs gamall sóknarmaður. Fyrr í dag fór Robinho í læknisskoðun sem hann stóðst með prýði. Fyrir hjá Real hittir hann félaga sína þá Ronaldo og Roberto Carlos.

Robinho að fara til Real
Brasilíumaðurinn Robinho verður orðinn leikmaður Real Madrid innan nokkurra daga. Hinn 21 árs Robinho neitar að æfa með liði sínu Sao Paulo og nú er aðeins talið formsatriði að ganga frá samningum milli Real og Sao Paulo. Spænskir fjölmiðlar telja sig hafa heimildir fyrir því að búið sé að ákveða kaupverðið á stráknum: 2 milljarðar og 358 milljónir króna.

Placente til Celta Vigo
Argentínski landsliðsmaðurinn Diego Placente er genginn til liðs við spænsa liðið Celta Vigo frá Bayer Leverkusen. Placente er 28 ára gamall og lék með Leverkusen í úrslitum Meistaradeildar Evrópu árið 2002 gegn Real Madrid. Placente neitaði samningi við Leverkusen því hann vildi fara frá Þýskalandi.
Beckham vill að Owen verði kyrr
David Beckham hefur biðlað til félaga síns Michael Owen að vera um kyrrt hjá spænska liðinu Real Madrid í stað þess að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina, eins og þrálátur orðrómur hefur gefið til kynna á síðustu vikum

Real vann í fyrsta leiknum
Real Madríd vann mexíkóska liðið Chivas Guadalajara, 3-1, í fyrsta æfingaleik liðsins af sex í keppnisferð um Asíu og Bandaríkin. Francesco Palencia kom Chivas yfir á 73. mínútu en Madrídarmenn jöfnuðu metin þegar Alvaro Meija skallaði inn aukaspyrnu frá David Beckham.

Tilboði Arsenal hafnað
Tilboði bikarmeistara Arsenal í basilíska sóknarmanninn, Julio Baptista sem leikur með Sevilla á Spáni hefur verið hafnað. Arsenal bauð fyrr í dag 13,75 milljómnir punda í leikmanninn en forráðámenn spænska liðsins höfnuðu tilboðinu.

Liverpool bauð í Milito
Spænska liðið Real Zaragoza hefur staðfest að Liverpool hafi komið með tilboð í varnarmanninn Gabriel Milito en segja að leikmaðurinn sé ekki til sölu.

Forseti Barcelona strippar
Forseti spænsku meistaranna í Barcelona, Joan Laporta, reif sig úr görmunum fyrir framan flugvallarstafsmenn í Madrid í gær. Öryggishlið sem Laporta þurfti að fara í gegnum, bjallaði í þrígang og þegar forsetinn reyndi í fjórða skiptið missti hann stjórn á skapi sínu.
Ronaldinho seldur á tíu milljarða?
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því um helgina að Chelsea ætli sér að gera 83 milljóna punda mettilboð í framherjann Ronaldinho hjá Barcelona. Samkvæmt heimildum ítalska blaðsins Corriere dello Sport myndi brasilíski leikmaðurinn fá níu ára samning og hafa um tíu milljónir punda í árslaun.

Ronaldinho gerir risasamning
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum þá hefur Ronaldinho samþykkt nýjan risasamning við meistara Barcelona. Samingurinn verður til árins 2014 og fyrir hann fær leikmaðurinn tæplega tíu milljarða króna um 85 milljónir punda. Ronaldinho verður 34 ára þegar samningum lýkur.
Luxemburgo fær nóg
Miklar vangaveltur hafa verið uppi um framtíð nokkurra leikmanna Real Madrid á síðustu vikum og mánuðum og svo virðist sem knattspyrnustjóranum brasilíska þyki nóg komið af svo góðu.

Saviola ekki áfram hjá Barcelona
Argentínski sóknarmaðurinn Javier Saviola leikur ekki með Barcelona á næstu leiktíð en leikmaðurinn var lánaður til Mónakó á síðustu leiktíð. Það er ekki pláss fyrir Saviola í herbúðum Spánarmeistarana en hann lék mjög vel með argentínska landsliðinu í Álfukeppninni.

Helgi Sig mætir Ronaldinho
Helgi Sigurðsson og félagar í danska úrvalsdeildarliðinu AGF Aarhus mæta Spánarmeisturum Barcelona í æfingaleik í knattspyrnu þann 25. júlí næstkomandi. Óhætt er að segja að Atletions Stadion, heimavöllur AGF verði þétt setinn þegar Helgi mætir Ronaldinho, Samuel Etoo og hinum snillingunum.

Robinho vill fara til Madrid
Brasilíska undrabarnið Robinho hefur tekið af allan vafa um framtíð sína og segist vilja ganga til liðs við Real Madrid á Spáni, en hinn 21-árs gamli sóknarmaður hefur verið orðaður við félög á Englandi.

Arsenal keppir við Real um Robinho
Real Madrid leiðir enn kapphlaupið um brasilíska ungstirnið Robinho, að sögn umboðsmanns leikmannsins, þrátt fyrir að Arsenal hafi gert formlegt 14 milljóna punda tilboð í hann um helgina.

Real Madrid býður í Lampard
Enskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Real Madríd hefði boðið 20 milljónir punda í miðjumann Chelsea, Frank Lampard. Að auki átti Chelsea að fá tvo leikmenn frá Madrídarliðinu, Michael Owen og Santiago Solari. Þetta er haft eftir umboðsmanni Lampards.

Kezman til Atletico Madrid
Sóknarmaðurinn Mateja Kezman er á förum frá Chelsea til spænska liðsins Atletico Madrid að sögn umboðsmanns hans í dag. Kezman vill ólmur komast frá Chelsea þar sem hann sat meirihluta síðasta tímabils á varamannabekknum. Enskir og spænskir fjölmiðlar segja að félögin hafi komist að samkomulagi um kaupverð sem ekki hefur þó verið gefið upp.

Segist hafa hafnað tilboði Chelsea
Kamerúnski knattspyrnumaðurinn Samuel Eto´o segist hafa hafnað girnilegu tilboði enska liðsins Chelsea og ákveðið í staðinn að framlengja samning sinn við Barcelona. Reiknað er með því að Eto´o skrifi undir samning til ársins 2010.

Eto´o vildi ekki til Chelsea
Kamerúninn Samuel Eto´o hefur greint frá því að hann hafi hafnað tilboði frá Chelsea um að ganga til liðs við þá í sumar og mun þess í stað ganga frá nýjum samningi við Barcelona fljótlega.

Pires til Valencia?
Robert Pires, miðvallarleikmaður Arsenal, gæti verið á förum frá félaginu til spænska liðsins Valencia fyrir þrjár milljónir punda.

Risakaup Real í bígerð?
Real Madrid er tilbúið að borga 110 milljónir punda, eða rúmlega 13 milljarða króna, fyrir Steven Gerrard hjá Liverpool og Thierry Henry Arsenal að sögn enska götublaðsins <em>The Sun</em>. Madridarliðið hefur ekki unnið titil undanfarin tvö keppnistímabil.
Real Betis bikarmeistari á Spáni
Real Betis tryggði sér í gærkvöld spænska konungsbikarinn í knattspyrnu þegar liðið sigraði Osasuna 2-1 í framlengdum úrslitaleik í Madríd.

Barcelona ekki á eftir Henry
Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur tekið af allan vafa og segir félagið ekki vera á höttunum eftir franska framherjanum Thierry Henry hjá Arsenal.

Owen fer ekki frá Madrid
David Beckham heldur því fram að félagi sinn í enska landsliðinu og Real Madrid, sé ekki á förum frá félaginu, þrátt fyrir þrálátan orðróm þess efnis á síðustu vikum.

Ofurkæti Börsunga brýst út
Einar Logi Vignisson hefur skrifað um boltann í Suður-Evrópu í Fréttablaðinu á sunnudögum í vetur og þessi sinni rennir hann yfir spænsku deildina og gerir upp tímabilið.