
Mannslát í Vindakór

Dómur mildaður fyrir manndráp af gáleysi í Vindakór
Landsréttur mildaði í dag dóm yfir Dumitru Calin fyrir að hafa af gáleysi banað Daníel Eiríkssyni fyrir utan heimili Daníels í Vindakór árið 2021. Dumitru var dæmdur í tveggja ára fangelsi en hafði áður hlotið þriggja og hálfs árs fangelsi í héraði.

Þrjú og hálft ár fyrir manndráp af gáleysi í Vindakórsmálinu
Dumitru Calin hefur verið dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að hafa banað Daníel Eiríkssyni af gáleysi fyrir utan heimili hans í Vindakór í fyrra, auk marvíslegra annarra brota.

Karlmaður á þrítugsaldri ákærður fyrir manndráp af gáleysi
Karlmaður á þrítugsaldri, sem er af rúmensku bergi brotinn, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa ekki komið Daníel Eiríkssyni til bjargar, sem lést í kjölfarið.

Lögregla hefur lokið rannsókn vegna andláts í Vindakór
Rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á andláti Daníels Eiríkssonar. Daníel fannst illa leikinn fyrir utan heimili sitt í Vindakór þann 2. apríl síðastliðinn og lést af sárum sínum á Landspítalanum daginn eftir.

Maðurinn sem flúði land grunaður um manndráp kominn aftur til Íslands
Rúmenskur karlmaður sem braut farbann og flúði land á dögunum er kominn aftur til landsins. Maðurinn er grunaður um að hafa orðið Daníel Eiríkssyni að bana og var í farbanni til 1. september.

Grunaður um manndráp en komst úr landi á nýju vegabréfi
Til stendur að gefa út evrópska handtökuskipun vegna rúmensks karlmanns sem flúði land á dögunum þrátt fyrir að vera í farbanni grunaður um manndráp. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögreglu vita hvar maðurinn er niðurkominn en talið er að hann hafi orðið sér út um nýtt vegabréf og þannig komist út landi.

Í farbanni vegna mannslátsins í Kópavogi
Karlmaður á þrítugsaldri verður gert að sæta áframhaldandi farbanni næstu átta vikurnar að kröfu lögreglu. Maðurinn hefur stöðu sakbornings í rannsókn á mannsláti í Vindakór í Kópavogi í byrjun apríl.

Krefjast ekki lengur varðhalds vegna mannsláts í Kópavogi
Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í fjögurra vikna farbann, eða til 7. maí, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mannsláti í Kópavogi á föstudaginn langa.

Meintir gerendur í tveimur andlátsmálum tengjast
Tengsl eru á milli mannsins sem játað hefur að hafa orðið manni að bana í Rauðagerði og manns sem nú sætir gæsluvarðhaldi vegna dauða manns í Kópavogi á föstudag. Lögregla telur málin þó ekki tengjast. Farbann verður ekki framlengt yfir tveimur mönnum sem hafa stöðu sakbornings í rauðagerðismálinu.

Málið harmleikur og ömurlegt í alla staði
Verjandi manns sem situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að andláti manns í Kópavogi um helgina á síður von á því að gæsluvarðhaldsúrskurðinum verði áfrýjað til Landsréttar. Hann segir skjólstæðing sinn enn halda því fram að um slys hafi verið að ræða og lýsir málinu sem harmleik.

Hafa áður komið við sögu lögreglu
Þeir sem lögregla hefur rætt við í tengslum við rannsókn á andláti manns í Kópavogi um helgina hafa áður komið við sögu hjá lögreglu, að sögn yfirlögregluþjóns. Einn er í gæsluvarðhaldi vegna málsins en fleiri hafa ekki verið handteknir.

Minnist bróður síns sem féll frá um helgina: „Hjartað þitt var úr gulli og þú barðist fyrir lífinu þínu“
Maðurinn sem lést af áverkum sem hann hlaut fyrir utan heimili sitt í Kórahverfi í Kópavogi á föstudaginn langa hét Daníel Eiríksson. Daníel var fæddur árið 1990 en einn maður situr í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarhagsmuna vegna andlátsins.

Samskiptagögn úr síma hins látna leiddu til handtöku mannanna
Símasamskipti sem lögregla fann í síma mannsins sem lést í Kórahverfi í Kópavogi um helgina leiddu til þess að þrír Rúmenar voru handteknir vegna málsins. Tveimur þeirra hefur nú verið sleppt en sá þriðji sætir gæsluvarðhaldi. Meðal þess sem lögregla rannsakar nú er hvort einhver vitni hafi orðið að atvikinu.

Sakborningur segist niðurbrotinn og að um sé að ræða slys
Maðurinn sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsóknina á andláti manns sem lést í Kópavogi um helgina segir að um slys hafi verið að ræða. Að sögn verjanda mannsins er hann niðurbrotinn vegna málsins að því er Rúv greinir frá.

Einn úrskurðaður í gæsluvarðhald
Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness í dag úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald í tengslum við alvarlega líkamsárás við Vindakór í Kópavogi á föstudag, sem leiddi til andláts íslensks karlmanns um þrítugt.

Grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á manninn
Lögregla hyggst gera kröfu um gæsluvarðhald yfir erlendum karlmanni sem grunaður er um árás við Vindakór í Kópavogi á föstudag. Íslenskur karlmaður fæddur árið 1990 lést af völdum áverka sinna í gær, en grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á manninn.

Krefjast gæsluvarðhalds yfir einum vegna andlátsins
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur gert kröfu um gæsluvarðhald yfir einum manni vegna andláts manns sem lést eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás í Kórahverfinu í Kópavogi. Maðurinn sem krafist er gæsluvarðhalds yfir er erlendur ríkisborgari, en málið er rannsakað sem manndráp.

Andlát karlmanns sem lést í dag rannsakað sem manndráp
Íslenskur karlmaður um þrítugt lést í dag af völdum áverka sem hann hlaut í líkamsárás fyrir utan heimili sitt í gær. Málið er rannsakað sem manndráp. Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu.