Leit að bandarískum ferðamanni á Fagradalsfjalli

Bjóst ekki við að komast lífs af
„Ég var ekki búinn að gefa upp vonina um að finnast, en ég var ekki viss um að myndi finnast á lífi,“ segir Scott Estill, ferðamaðurinn sem týndist á Reykjanesi síðustu helgi.

„Við urðum bara kærulaus“
Eiginkona bandaríska ferðamannsins sem týndist á gossvæðinu á Reykjanesi á föstudag segir að þeim hafi báðum orðið á ógætileg mistök sem urðu honum næstum að bana. Hún lýsir miklu þakklæti í garð björgunarsveitafólks sem leitaði að manni sínum.

Leyfðu sér ekki að missa vonina
Bandaríski ferðamaðurinn sem fannst eftir tæplega sólarhrings leit í Geldingadölum í gærkvöld hefur það fínt og braggast vel. Björgunarsveitarfólk segist ekki hafa misst vonina - þó svartsýnar spár hafi vissulega verið inni í myndinni.

Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi
Bandaríski ferðamaðurinn sem leitað hefur verið að við gosstöðvarnar á Reykjanesi er fundinn heill á húfi. Hann fannst um fjóra kílómetra norðvestur af gosstöðvunum og hafði gengið í þveröfuga átt.

Biðja fólk um að skoða myndir frá gossvæðinu vegna leitarinnar
Björgunarsveitir biðla til fólks sem var við gosstöðvarnar í Geldingadölum í gær að skoða myndefni sem það tók þar, í þeirri von að þar geti leynst vísbendingar sem gætu nýst við leit að bandaríska ferðamanninum sem hefur verið saknað

Nafn mannsins sem leitað er við gosstöðvarnar
Maðurinn sem leitað hefur verið við gosstöðvarnar síðan í gær er Bandaríkjamaðurinn Scott Estill. Lögreglan á Suðurnesjum lýsir nú eftir honum.

Leitarhópar frá nánast öllu landinu kallaðir út
Enn stendur yfir umfangsmikil leit í Geldingadölum vegna bandarísks ferðamanns sem varð þar viðskila við eiginkonu sína í gær. Leitin hefur engan árangur borið, tæpum sólarhring eftir að tilkynnt var um hvarf mannsins.

Leit í nótt bar ekki árangur
Leit að erlendum ferðamanni, sem varð viðskila við eiginkonu sína við gosstöðvarnar við Fagradalsfjall um klukkan þrjú í gær, bar engan árangur í nótt. Þyrla Landhelgisgæslunnar tekur nú þátt í leitinni.

Leit að erlendum ferðamanni enn engan árangur borið
Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks leitar enn erlends ferðamanns sem hefur verið saknað við gosstöðvarnar á Reykjanesi frá því um miðjan dag. Lítið skyggni er á svæðinu og leiðinlegt veður en leitað verður fram á nótt ef þörf krefur.