Héðan og þaðan

Stormur í vatnsglasi
„Ég held að þetta sé stormur í vatnsglasi, ef ég á að segja eins og er,“ segir Gísli Ásgeirsson, veiðiáhugamaður og stjórnarformaður Lax ehf. Vísar hann þar til áhyggna af því að alþjóðlegi auðmannaklúbburinn Everlands ætli að sölsa undir sig laxveiðiár hér á landi og loka fyrir aðgengi annarra en meðlima klúbbsins.

Slökkt á hugsuninni
Að sigrast á fjallstindum í sameiningu mun vera ein besta aðferð hópeflingar sem völ er á. Stjórnendur íslenskra fyrirtækja leggja aukna áherslu á góða heilsu starfsmanna sinna.

Nýr forstjóri fer fyrir útrás Símans
Sævar Freyr Þráinsson, nýr forstjóri Símans, segir spennandi tíma fram undan hjá félaginu. Hann nefnir meðal annars stóraukið samstarf við hugbúnaðarrisann Microsoft og áætlanir um að ná leiðandi markaðsstöðu í Bretlandi og á Norðurlöndunum.

Sparisjóðirnir ná aftur fyrsta sætinu
Ánægja viðskiptavina íslenska bankakerfisins hefur aukist frá því í fyrra. Þetta sýna niðurstöður íslensku ánægjuvogarinnar á bankamarkaði sem birtar voru á mánudag. Þetta er í fyrsta sinn frá því mælingar á ánægjuvoginni hófust árið 1999 sem ánægjan eykst milli ára. Hún mælist nú 72,6 stig og er hærri en síðustu tvö ár.

Punga út milljón fyrir fjármálafötin
„Það væri bókstaflega asnalegt ef margir væru í eins fötum í mötuneytinu," segir einn viðmælenda Markaðarins um fataval fólks í fjármálageiranum. Heimildarmaðurinn, líkt og fjölmargir sem Markaðurinn ræddi við, forðaðist að koma fram undir nafni um fataval og fatakaup sín. Nokkrir sögðust eyða hálfri til einni milljón króna í föt og fylgihluti á ári.

Útrásin eykur álagið
Starfsemi Fjármálaeftirlitsins (FME) erlendis hefur stóraukist á innan við tveimur árum samfara útrás íslenskra fjármálafyrirtækja. Fjármálafyrirtækin starfa nú í tuttugu og einu landi en fyrir aðeins tveimur árum voru löndin tólf. Starfsemin fer ýmist fram í útibúum, dótturfélögum eða á umboðsskrifstofum. FME fylgist með þessari starfsemi.

Hvíld frá amstri fjármálaheimsins
Frá blautu barnsbeini hefur Helga Hlín Hákonardóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs hjá Saga Capital Fjárfestingarbanka, verið viðloðandi vélhjól. Sem krakki lék hún sér á vélsleðum og fjórhjólum og hún var ekki lengi að fá sér mótorhjólapróf um leið og hún hafði aldur til.

Gósentíð fyrir íslenska listamenn
Velmegun og aukinn listáhugi landans hefur þrýst verði íslenskra verka upp á skömmum tíma. Bragi Guðlaugsson listaverkasafnari hefur notið góðs af því, rétt eins og listamennirnir sjálfir.

Lífsstíll fremur en áhugamál
Í hátt í tuttugu ár hefur Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy, stundað hestamennsku af miklu kappi. Hann kynntist henni sem unglingur í sveit og keypti sér sinn fyrsta hest þegar hann var ekki nema sextán ára. „Hestamennskan var mér alltaf mjög nærri, þrátt fyrir að mitt fólk vissi ekki hvað sneri fram og hvað aftur á hestum. Hún togaði hins vegar alltaf í mig, allt frá þessum tíma.“

Engin kreppa á toppnum
Á meðan sala á „venjulegum“ bílum dregst saman eykst sala á bílum sem kosta yfir fimm milljónir króna. Bílasalar merkja engan samdrátt í eftirspurn.

Er hæstánægður með höfuðstöðvarnar
Einar Einarssson, forstjóri Marel Food Systems í Bandaríkjunum, var hæstánægður með nýju höfuðstöðvarnar þegar hann settist niður með Jóni Aðalsteini Bergsveinssyni á meðan viðskiptavinir virtu fyrir sér nýjustu tækin frammi í sýningarsalnum.

AppliCon gullvottað
Þýski hugbúnaðarframleiðandinn SAP hefur veitt fyrirtækinu AppliCon gullvottun, en af um þrjátíu samstarfsfyrirtækjum SAP á Norðurlöndum hafa aðeins tvö náð þeim áfanga áður.

Nýir í stjórn Seed Forum
Skipt var um stjórnarformann í Seed Forum á Íslandi auk þess sem þrír nýir stjórnarmenn komu inn á aðalfundi félagsins á fimmtudag í síðustu viku. Seed Forum velur og þjálfar íslensk nýsköpunar- og frumkvöðlafyrirtæki til að kynna sig fyrir fjárfestum hér heima og erlendis.

Samið um samstarf vegna Kaupþings
Fjármálaeftirlitið (FME) og Kredittilsynet í Noregi hafa gert með sér samning um samstarf vegna starfsemi útibús Kaupþings í Noregi. Í tilkynningu FME kemur fram að ástæða samningsins sé að Kaupþing hafi sótt um aðild að innistæðutryggingasjóði norskra banka, en það sé gert til að tryggja að viðskiptavinir bankans í Noregi njóti sömu innistæðutryggingar og viðskiptavinir norskra innlánsstofnana.

Bankar í krísu
Mjög hefur dregið úr millibankalánum evrópskra fjármálafyrirtækja, að sögn breska vikuritsins Economist í vikunni. Blaðið segir ástæðuna mikla óvissu á fjármálamarkaði.

Stór markmið hjá Straumi
Með innri vexti og fyrirtækjakaupum ætla stjórnendur Straums að skapa leiðandi fjárfestingarbanka í Norður- og Mið-Evrópu fyrir árið 2010. William Fall, forstjóri Straums, kynnti leiðirnar að því marki á blaðamannafundi á mánudag.

Greiða allan hagnaðinn út til hluthafa
Íslensk verðbréf er sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem er starfrækt á Akureyri og fagnar tuttugu ára afmæli um þessar mundir. Eggert Þór Aðalsteinsson ræddi við Sævar Helgason, framkvæmdastjóra ÍV, sem segir markið sett á að eignir í stýringu fari yfir 100 milljarða á árinu.

Nýr forstjóri stýrir fjöreggi Marel Food Systems
Sigsteinn P. Grétarsson hefur verið ráðinn forstjóri Marels ehf., einnar af fjórum meginstoðum Marel Food Systems. Forstjórinn segir þessa einingu fyrirtækisins fjöreggið sem hafi sinnt nýsköpun í matvælavinnslu frá fyrstu tíð. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson ræddi við Sigstein um starfið hjá Marel og þýðinguna sem samþætting og skipulagsbreytingar hjá fyrirtækinu fela í sér.

Fasteignatoppinum náð
Samdráttur á fasteignamarkaði einskorðast ekki við Bandaríkin því vísbendingar eru um að nú hægi á fasteignamarkaði í Bretlandi. Breska dagblaðið Telegraph segir fasteignaverð í Lundúnum hafa lækkað um 0,1 prósent á milli mánaða í ágúst en þetta mun vera fyrsta verðlækkun ársins.

Blanda súkkulaðis og lakkríss vekur athygli
Blanda af súkkulaði og lakkrís er meðal þess sem mesta athygli hefur vakið af tilraunaútflutningi Nóa Síríusar til Danmerkur. Í síðasta mánuði hófst útflutningur til Danmerkur fyrir verslunarkeðjuna IRMA.

Íslandsdeild útskriftarnema London Business School
Stofnaður hefur verið London Business School Alumni Club Iceland, sem nefna mætti Íslandsdeild útskriftarnema LBS. Stofnfundur fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í síðustu viku að viðstöddum hagfræðingnum Sir James Ball og eiginkonu hans Lady Lindsay Ball, auk hóps fyrrum nemenda skólans héðan.

Betware nemur land á Spáni
Undirritaður hefur verið samningur íslenska hugbúnaðar- og þjónustufyrirtækisins Betware og Spænska ríkislottósins um að Betware þjónusti lottóið á sviði gagnvirkra leikja. Samningurinn er gerður við STL (Sistemas Técnicos de Loterías del Estado) sem er að fullu í eigu ríkislottósins.

Glitnisáheit SOS til Sómalíu
SOS-barnaþorpin hafa ákveðið að senda þá fjármuni sem safnast vegna Reykjavíkurmaraþons Glitnis, sem fram fer næsta laugardag, til Sómalíu. Þrjátíu og átta einstaklingar hafa skráð sig í maraþonið með það að markmiði að safna fé handa SOS-barnaþorpunum.

Samskip auka siglingar innan Evrópu
Siglingar Samskipa milli Zeebrugge í Belgíu og hafna í Skandinavíu og Eystrasaltslöndunum, með viðkomu í Rotterdam og á Bretlandseyjum, hefjast 17. ágúst næstkomandi. Um er að ræða vikulegar áætlunarsiglingar og aukast með þeim nokkuð umsvif í Evrópusiglingum félagsins.

Enginn nýgræðingur í bankaheiminum
Birna Einarsdóttir, sem nýverið tók við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Glitnis á Íslandi, hefur lengi verið viðriðin fjármálaheiminn. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir hitti Birnu að máli og fékk að heyra sögur úr bankanum.

Kapítalskt nirvana
The Guardian segir Moskvuborg hafa náð enn einum áfanganum á leiðinni að kapítalísku algleymi, eða nirvana eins og það heitir upp á ensku. Samkvæmt nýrri könnun er hvergi í veröldinni meiri hagnaður af hótelrekstri heldur en einmitt í Moskvu, þar sem hagnaður á fyrri helmingi árs nam 12.650 krónum á hvert herbergi að meðaltali.
Eik Group kaupir fyrirtæki í Danmörku
Eik Group hefur fest kaup á fjárfestingarráðgjafarfyrirtækinu Privestor Fondsmæglerselskab A/S og tímaritinu Tidsskriftet FinansNyt A/S. Eik Banki er skráður á markað í Kauphöllinni hér, en það er Eik Bank Danmark A/S sem samið hefur um kaupin á fyrirtækjunum tveimur.

Skattar hvetji fremur en letji til vinnu
Edward C. Prescott, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, segir Ísland eiga þess kost að vera fyrirmynd ríkjum beggja vegna Atlantshafsins. Óli Kristján Ármannsson sat ráðstefnu Félagsvísindastofnunar í síðustu viku þar sem Prescott sagði Bandaríkin helst geta lært af lífeyriskerfi okkar og Evrópulönd af stefnu í skattamálum.

Fasteignabólan tútnar
Sextíu prósent af heildareignum Breta samanstanda af fasteignum, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar þar í landi. Fram kemur í The Guardian að gríðarleg þensla hafi verið á húsnæðismarkaði í Bretlandi undanfarin ár.

Strákarnir taka við af Sævari
Í nýjum eigendahópi Sævars Karls eru þrautreyndir starfsmenn verslunarinnar. Kaupverðið er um sex hundruð milljónir króna.