Uppgjörið: Þróttur R. - Breiðablik 3-2 | Þróttarar slógu bikarmeistarana úr leik Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks eru fallnar úr leik í Mjólkurbikarnum. Varð það ljóst eftir glæsilegan 3-2 sigur Þróttar á þeim grænklæddu í lokaleik 16-liða úrslita Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 16.5.2026 14:15
Dregið í Mjólkurbikarnum: Stjarnan og FH mæta nýliðunum Að loknum 3-2 sigri Þróttar á Breiðabliki í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í dag var dregið í átta liða úrslit keppninnar. Íslenski boltinn 16.5.2026 17:57
„Þess vegna líður okkur svona vel í Laugardalnum“ „Við mættum bara miklu ákveðnari. Það vantaði smá upp á í hinum leikjunum í deildinni, þannig að við ákváðum bara aðeins að koma grimmar til leiks og það skilaði sínu,“ sagði Jelena Tinna Kujundzic, varnarmaður Þróttar, eftir glæstan 3-2 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á AVIS-vellinum í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 16.5.2026 17:43
„Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ Thelma Karen Pálmadóttir, leikmaður FH, átti stórleik í bikarúrslitaleiknum gegn Breiðablik og skoraði tvö mörk og átti skot í innanverða stöngina í venjulegum leiktíma. Fótbolti 16. ágúst 2025 19:32
„Ætluðum ekki heim án sigurs“ Breiðablik hefur tapað síðustu þremur úrslitaleikjum í bikarnum en í dag ætluðu þær að fara ósigraðar heim. Fótbolti 16. ágúst 2025 19:24
„Loksins, tilfinningin er geggjuð“ Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, var að vonum kát eftir sigur liðsins gegn FH í úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld. Blikar höfðu tapað síðustu þremur bikarúrslitaleikjum sínum, en í kvöld kom sigurinn loksins. Fótbolti 16. ágúst 2025 19:18
Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Breiðablik er Mjólkurbikarmeistarar eftir 3-2 sigur á FH á Laugardalsvellinum eftir jafnan og æsispennandi úrslitaleik. Breiðablik hefur tapað síðustu þremur úrslitaleikjum í bikarnum stóð uppi sem sigurvegari í dag. Íslenski boltinn 16. ágúst 2025 15:03
„Vona að við séum búnar að læra nægilega mikið og förum að vinna“ „Spennan hefur verið að magnast jafnt og þétt,“ segir Agla María Albertsdóttir fyrirliði Blika, fyrir bikarúrslitaleikinn gegn FH sem fram fer á Laugardalsvelli í dag klukkan fjögur. Íslenski boltinn 16. ágúst 2025 09:02
„Allt er þegar þrennt er“ „Ég er bara að hugsa um eitt núna og það er að vinna bikarinn,“ segir Nik Chamberlain, þjálfari Blika fyrir úrslitaleikinn í Mjólkurbikar kvenna sem fram fer á Laugardalsvelli annað kvöld. Íslenski boltinn 15. ágúst 2025 17:31
Allar tilfinningarnar í gangi „Maður er bara auðmjúkur, ánægður, tilhlökkun og spenntur og maður er að upplifa allar tilfinningarnar, en að sama skapi einbeittur á verkefnið,“ segir Guðni Eiríksson þjálfari FH sem mætir Breiðabliki í úrslitum Mjólkurbikarsins í knattspyrnu klukkan fjögur á Laugardalsvelli á morgun. Íslenski boltinn 15. ágúst 2025 15:45
Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Blikinn Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var á skotskónum í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta í gær. Það er ef þú skoðar leikskýrsluna. Ef þú horfðir á leikinn þá passar það ekki alveg enda hún ekki einu sinni inn á vellinum þegar annað markanna var skorað. Íslenski boltinn 1. ágúst 2025 09:02
„Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ „Frábær. Ótrúlega ánægð að við séum að fara á Laugardalsvöll,“ sagði einn markaskorara Breiðabliks, Berglind Björg Þorvaldsdóttir, eftir dramatískan sigur liðsins á ÍBV í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 31. júlí 2025 20:15
Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu Breiðablik er komið í úrslitaleik Mjólkurbikarsins árið 2025 og mun þar mæta FH. Varð það ljóst í kvöld þegar liðið sigraði ÍBV, 3-2. Sigur heimakvenna í Breiðablik var langt frá því að vera öruggur, en Blikakonur þó komnar í úrslitaleikinn fimmta árið í röð. Íslenski boltinn 31. júlí 2025 17:15
„Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ Kvennalið FH er á leið í bikarúrslitaleik í fyrsta sinn í sögu félagsins. Árangurinn kemur fyrirliðanum Örnu Eiríksdóttir ekki á óvart, hún segir mikla vinnu liggja þar að baki og sér ekki eftir því að hafa sagt skilið við systur sínar í Val. Íslenski boltinn 31. júlí 2025 11:02
„Ætlum að fara þarna og sækja þennan bikar“ FH komst í kvöld í bikarúrslit kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 2-3 dramatískan sigur á Valskonum á Hlíðarenda, þar sem sigurmarkið kom ekki fyrr enn á lokamínútu framlengingar þegar varamaðurinn Margrét Brynja Kristjánsdóttir skoraði laglegt mark. Arna Eiríksdóttir fyrirliði FH liðsins var stórkostleg í kvöld og stýrði vörn sinna kvenna með stakri prýði. Íslenski boltinn 29. júlí 2025 22:49
Uppgjörið: Valur - FH 2-3 | Hafnfirðingar í úrslit í fyrsta sinn FH eru komið í bikarúrslit í fyrsta sinn í sögu sinni eftir hádramatískan 3-2 sigur á Valskonum á Hlíðarenda. Íslenski boltinn 29. júlí 2025 18:45
FH konur ætla að skrifa söguna í kvöld FH-ingar geta í kvöld eignast lið í bikarúrslitaleik kvenna í fyrsta sinn í sögunni þegar FH liðið heimsækir bikarmeistara Vals á Hlíðarenda í undanúrslitaleik Mjólkurbikars kvenna. Íslenski boltinn 29. júlí 2025 16:01
Ekki spilað á Þjóðhátíð og meistararnir á heimavelli Dregið var í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna í kvöld, um leið og öllum leikjum í 8-liða úrslitum var lokið. Mögulegt er að Valur og Breiðablik leiki aftur til úrslita, rétt eins og í fyrra þegar Valur vann 2-1 sigur á Laugardalsvelli. Íslenski boltinn 12. júní 2025 22:39
Blikar hentu nágrönnunum út og gripu síðasta farseðilinn Breiðablik varð í kvöld fjórða og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta með sigri í sögulegum grannaslag við HK á Kópavogsvelli, 5-1. Íslenski boltinn 12. júní 2025 21:49
Flug FH heldur áfram inn í undanúrslit FH-konur hafa átt algjört draumasumar sem engan enda virðist ætla að taka en þær slógu í kvöld út Þór/KA, í Boganum á Akureyri, í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í fótbolta. FH vann leikinn 3-1. Íslenski boltinn 12. júní 2025 19:24
Uppgjörið: Valur - Þróttur 2-1 | Valskonur í undanúrslit Eftir afar dapurt gengi í Bestu deild kvenna í fótbolta á Valur enn möguleika á að verja titil sinn í Mjólkurbikarnum. Valskonur urðu fyrsta liðið til að leggja Þrótt að velli í sumar og eru komnar í undanúrslit. Íslenski boltinn 11. júní 2025 18:46
„Auðvitað þyrstir okkur í sigur sem fyrst“ Kvennalið Vals í fótbolta hefur ekki fagnað góðu gengi undanfarið en þjálfarinn Kristján Guðmundsson segir það ekki hafa áhrif á undirbúning ríkjandi bikarmeistaranna fyrir átta liða úrslita leikinn gegn Þrótti á Hlíðarenda í kvöld. Þó liðinu þyrsti sannarlega í sigur. Íslenski boltinn 11. júní 2025 12:31
ÍBV sótti sigur og sæti í undanúrslitum ÍBV varð fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna, með 3-1 sigri á útivelli gegn Tindastóli. Heimakonur jöfnuðu um miðjan seinni hálfleik en gáfu frá sér víti fimm mínútum síðar sem fór með leikinn. Fótbolti 9. júní 2025 14:59
Þróttur mætir bikarmeisturunum Dregið var í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla og kvenna í fótbolta í dag. ÍBV, sem hefur þegar slegið Víking og KR út, mætir Val karlamegin en kvennamegin er stórleikurinn milli Vals og Þróttar. Þessi lið mættust í Bestu deildinni á dögunum og þá unnu Þróttarar á Hlíðarenda, 1-3. Íslenski boltinn 16. maí 2025 12:33