
Manndráp á Blönduósi

Samúðarkveðjur berast víða að til íbúa Blönduóss
Samúðarkveðjur hafa borist víða að til íbúa Blönduóss eftir voveiflega atburðinn sem átti sér stað þar í gærmorgun. Nú síðast sendi Guðni Th. Jóhannesson samúðarkveðju til íbúa en einnig hafa borist kveðjur frá Katrínu Jakobsdóttir forsætisáðherra og ýmsum sveitarfélögum.

Best að segja börnum sannleikann um harmleikinn en velja orðin vel
Fjölmargir þáðu áfallahjálp í Blönduóskirkju vegnar harmleiksins í bænum um helgina að sögn sóknarprestsins. Hann segir samráðshóp um áfallahjálp hittast í dag varðandi frekari viðbrögð. Best sé að segja börnum sannleikann, en velja orð sín vel.

Ekki annað hægt en að tárast yfir ákalli um stuðning
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að ekki hafi verið annað hægt en að tárast yfir ákalli forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar í gær, þar sem hann óskaði eftir stuðningi þjóðarinnar eftir skotárás á Blönduósi í gærmorgun.

Skotfélagið tilkynnti manninn til lögreglu í nóvember
Skotfélagið Markviss á Blönduósi tilkynnti árásarmanninn í manndrápsmáli á Blönduósi í gær til lögreglu í nóvember á síðasta ári. Maðurinn hafði áður keppt fyrir hönd félagsins og gegnt trúnaðarstörfum þar.

Þetta hefur komið fram um skotárásina á Blönduósi
Samfélagið á Blönduósi er í sárum eftir að skotárás var framin þar á sjötta tímanum í morgun. Kona var myrt í árásinni og eiginmaður hennar liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Sonur hjónanna réð niðurlögum árásarmannsins.

Ekki farið fram á gæsluvarðhald
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur tilkynnt að fólkinu, sem handtekið var í tengslum við rannsókn á skotárás á Blönduósi í morgun, hafi verið sleppt úr haldi. Ekki verði farið fram á gæsluvarðhald yfir manni sem fengið hefur stöðu sakbornings í málinu.

Sonur fórnarlambanna hafi ráðist á árásarmanninn
Sonur fólksins sem skotið var á Blönduósi í morgun er sagður hafa ráðist á árásarmanninn og ráðið niðurlögum hans.

Svipting skotvopnaleyfis var í ferli
Lögregla lagði hald á skotvopn í eigu árásarmannsins, sem myrti konu í morgun og særði eiginmann hennar alvarlega í dag, fyrir nokkrum vikum. Að sögn lögreglustjórans á Norðurlandi vestra var í ferli að svipta manninn skotvopnaleyfi til bráðabirgða.

Biðla til landsmanna að standa með íbúum Blönduóss
Sveitarstjórn Húnabyggðar hefur gefið frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem segir að íbúar Húnabyggðar séu í áfalli eftir að skotárás var framin í bænum í morgun. „Við erum brotin og þiggjum alla þá góðu strauma sem þið getið veitt okkur,“ segir forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar.

Árásarmanninum banað á vettvangi
Lögreglan á Norðurlandi vestra segir að svo virðist sem manninum, sem skaut einn til bana og særði annan á Blönduósi í dag, hafi verið banað á vettvangi morðsins. Tveir eru í haldi lögreglu.

Áfallateymi Rauða krossins komið á staðinn
Tveir eru látnir eftir skotárás sem átti sér stað um klukkan hálf sex í morgun á Blönduósi. Aðilar frá áfallateymi Rauða Krossins hafa verið sendir á staðinn til þess að veita áfallahjálp.

Árásarmaðurinn handtekinn fyrr í sumar vegna hótana með skotvopn
Árásarmaðurinn, sem skaut einstakling til bana á Blönduósi í morgun og lést svo sjálfur af skotsárum, hafði verið handtekinn fyrr í sumar af lögreglunni á Blönduósi. Þetta herma heimildir fréttastofu. Maðurinn hafði þá í hótunum með skotvopn og var í kjölfarið tekinn höndum. Síðar var honum sleppt.

Sveitarstjóri Húnabyggðar á leiðinni norður: „Maður er bara í sjokki“
Pétur Arason, nýráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar, sagðist vera „í sjokki“ vegna skotárásarinnar á Blönduósi í morgun og að samfélagið væri í áfalli. Hann gat ekkert sagt um stöðu mála en var að leggja af stað norður þegar blaðamaður náði af honum tali.

Tveir látnir eftir skotárás á Blönduósi - gerandi árásarinnar annar hinna látnu
Tveir Íslendingar eru látnir og einn særður eftir skotárás á Blönduósi en árásin átti sér stað um hálf sex í morgun.