Íslandsbanki
1 2 3 4 5 6 … 21 ›
Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? 31 árs karlmaður spyr: „Ég er búinn að vera með óverðtryggt húsnæðislán á breytilegum vöxtum yfir alla þessa vaxta vitleysu seinustu ár. Svo mig langar til þess að forvitnast hvort það sé skynsamlegt fyrir mig að fara yfir í fasta vexti eða ekki? Minnkar eignamyndunin á föstum vöxtum miðað við breytilega vexti? Þetta er lán upp á sirka 41.000.000 kr.“ Viðskipti innlent 8.9.2026 09:34
Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárlagafrumvarpið þegar hafa haft áhrif á skuldabréfamarkaðinn. Fjárfestar verðleggi nú meiri verðbólgu á næsta ári en fyrir helgi. Gjaldahækkanir ríkisins valdi vonbrigðum og sendi röng skilaboð þegar kjarasamningar eru til endurskoðunar. Viðskipti innlent 7.9.2026 14:14
Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Áformað er að hækka bankaskatt úr 0,145 prósentum í 0,254 prósent eða því sem nemur rúmlega 75 prósenta hækkun í nýju fjárlagafrumvarpi. Með þessu er áformað að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs. Viðskipti innlent 7.9.2026 10:27
Íslandsbanki hækkar vexti Íslandsbanki hækkar vexti inn- og útlána í kjölfar stýrivaxtahækkunina í síðustu viku. Breytingarnar taka gildi 3. september næstkomandi. Viðskipti innlent 28.8.2026 23:17
Olíusjóðurinn bætir enn við sig í íslenskum verðbréfaeignum Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, hélt áfram að stækka við sig í íslenskum verðbréfum á fyrstu mánuðum ársins en heildareignir sjóðsins hér á landi hafa meira en sjöfaldast á innan við áratug. Innherji 21.8.2026 10:26
Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Benedikt Gíslason, bankastóri Arion banka, er með einni og hálfri milljón króna meira í laun á mánuði en næstlaunahæsti bankastjóri landsins. Þó eru tveir starfsmenn fjármálafyrirtækja á hærri launum en hann. Viðskipti innlent 18.8.2026 14:40
Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Sigurður Arnar Stefnisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sviðs stafrænnar þróunar og gagna hjá Íslandsbanka. Viðskipti innlent 18.8.2026 11:39
Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga aukist úr 5,3 prósentum í 5,6 prósent í ágúst með 0,15 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs. Það yrði mesta verðbólga frá ágúst árið 2024. Landsbankinn spáir einnig aukningu verðbólgu en ívið minni en Íslandsbanki. Viðskipti innlent 13.8.2026 10:38
Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Skúli Hrafn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða, dótturfélags Íslandsbanka. Hann hefur starfað við eigna- og sjóðastýringu á íslenskum fjármálamarkaði frá árinu 2007. Viðskipti innlent 12.8.2026 16:26
Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Nýtt árangurstengt launakerfi Íslandsbanka kostaði bankann yfir sex hundruð milljónir. Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam rúmum sjö milljörðum. Viðskipti innlent 30.7.2026 10:34
Gildi selur í stóru bönkunum fyrir marga milljarða á skömmum tíma Lífeyrissjóðurinn Gildi, einn allra stærsti hluthafinn í Arion og Íslandsbanka, hefur staðið að umfangsmikilli sölu í bönkunum í þessum mánuði fyrir samanlagt í kringum þrjá milljarða að markaðsvirði. Innherjamolar 13.7.2026 11:15
Fyrirtæki farin að „fresta öllum ákvörðunum sem hægt er að fresta“ Áhyggjur af þrálátri verðbólga og háu vaxtastigi eru farin að hafa merkjanleg áhrif á fjárfestingar í mörgum atvinnugreinum, að sögn fjármálastjóra Íslandsbanka, en fyrirtækin eru að fresta öllum fjárfestingarákvörðunum sem hægt sé að fresta. Þótt íslensku bankarnir, sem eru allir með jákvæðan verðtryggingarjöfnuð, njóti til skamms tíma ávinnings af mikilli verðbólgu þá mun sú staða að lokum snúast í andhverfu sína og valda þeim útlánatapi. Innherji 7.7.2026 13:21
Þórunn og Svali til Íslandsbanka Íslandsbanki hefur ráðið Þórunni Ólafsdóttur í starf yfirlögfræðings og Svala H. Björgvinsson í starf mannauðsstjóra. Viðskipti innlent 26.6.2026 09:48
Óvissa út við sjóndeildarhring Stöðugt, fyrirsjáanlegt og einfalt efnahags- og rekstrar umhverfi er ein mikilvægasta forsenda þess að lítil og meðalstór fyrirtæki geti fjárfest, ráðið fólk og vaxið. Það ætti að ríma vel við nýsamþykkta atvinnustefnu stjórnvalda sem leggur sérstaka áherslu á aukna framleiðni, samkeppnishæfni og nýsköpun. Umræðan 24.6.2026 12:39
Fjárfestingafélagið Kjölur stækkar talsvert við stöðuna í Íslandsbanka Fjárfestingafélagið Kjölur, einn stærsti hluthafi Íslandsbanka ásamt stjórnarformanninum Heiðari Guðjónssyni, hefur að undanförnu verið að stækka talsvert við hlut sinn í bankanum í kjölfar þess að hafa selt sig alfarið út úr Reitum. Innherjamolar 24.6.2026 12:07
Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Íslandsbanki hefur ráðið Rakel Ásgeirsdóttur í starf framkvæmdastjóra Stefnumótunar og menningar, nýstofnaðs stoðsviðs bankans. Viðskipti innlent 18.6.2026 12:04
Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Íslandsbanki spáir því að verðbólga hjaðni lítillega í júní, en muni samt mælast yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. Til lengri tíma litið er ekki útlit fyrir að verðbólga mælist við markmið á næstu árum. Neytendur 11.6.2026 14:13
„Fórnarlambið látið borga brúsann“ Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur á Seltjarnarnesi lenti í klóm svikahrappa sem höfðu tæpa hálfa milljón króna af kreditkortinu hans. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir áratuga viðskipti við Íslandsbanka. Innlent 9.6.2026 11:14
Stjórnendur Íslandsbanka á góðri leið með ná uppfærðum markmiðum Líklegt er að stjórnendur Íslandsbanka muni ná strax á þessu ári tökum á kostnaðarhlutfallinu en að uppfærð markmið um meira en 13 prósenta arðsemi eigi eftir að nást á árinu 2027, samkvæmt nýrri virðismatsgreiningu. Fjárfestum er ráðlagt að bæta við sig bréfum í bankanum sem er sagður talsvert undirverðlagður á markaði. Innherjamolar 8.6.2026 12:22
Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Kjartan Smári Höskuldsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Íslandssjóða. Viðskipti innlent 5.6.2026 16:38
Sjóður Íslandssjóða tekur á sig 14 prósenta högg eftir stórt veðmál á Oculis Annar af tveimur helstu hlutabréfasjóðunum í stýringu Íslandssjóða, ætlaður almennum fjárfestum, varð fyrir nærri fjórtán prósenta höggi í gær þegar Oculis lækkaði í verði um liðlega helming en langsamlega stærsta staða sjóðsins var bundin í bréfum líftæknifélagsins. Innherji 2.6.2026 17:04
Breyta hlaupaleiðum í Reykjavíkurmaraþoninu Tekin hefur verið ákvörðun um að breyta hlaupaleiðum Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka sem haldið er ár hvert á Menningarnótt. Nú verður rásmarkið við Háskóla Íslands. Innlent 2.6.2026 09:59
Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Í tilkynningu sem Íslandsbanki sendi frá sér er fólk varað við svikurum sem hafa undanfarið sent út tölvupósta í nafni bankans. Þar er fólk blekkt til að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og gefa upp öryggisnúmer. Innlent 29.5.2026 22:53
„Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Verðbólga hjaðnaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og mælist 5,1 prósent. Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir innflutta verðbólgu vegna átaka við Persaflóa reynast erfiða. Viðskipti innlent 28.5.2026 13:13
Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 13,6 prósent, sem er í báðum tilvikum yfir spám greinenda fyrir fjórðunginn. Aukning í vaxtatekjum, sem var rúmum 11 prósentum yfir spám greinenda, skýrir að stórum hluta aukinn hagnað samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs. Viðskipti innlent 7.5.2026 16:07
Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Forsvarsmenn íslenskra banka búast við því að vextir á óverðtryggðum íbúðalánum muni hækka frekar á næstu sex mánuðum. Er það vegna væntanlegrar hækkunar meginvaxta og hærri fjármögnunarkostnaðar. Vextir á verðtryggðum lánum búast þeir við að haldist óbreyttir. Viðskipti innlent 30.4.2026 10:18
Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Verðbólga hjaðnaði um 0,2 prósentustig milli mánaða og mælist nú 5,2 prósent. Hagfræðingur Íslandsbanka segir jákvæð teikn á lofti en telur litlar líkur á að mælingin verði til þess að Seðlabankinn hækki ekki stýrivexti í næsta mánuði. Viðskipti innlent 29.4.2026 13:07
Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja segir gervigreind almennt vera tækifæri til að bæta árangur, þjónustu og samskipti við viðskiptavini. Hann telur hins vegar að aðrar skýringar liggi að baki fækkun starfa hjá Íslandsbanka. Viðskipti innlent 29.4.2026 12:45
Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Stjórn Íslandsbanka hefur samþykkt nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. Markmið breytinganna er að einfalda stjórnskipulag og stytta boðleiðir og þannig efla þjónustu bankans við viðskiptavini enn frekar. Með breytingunum verður stjórnendum fækkað um 15 prósent og forstöðumönnum um 20 prósent. Alls verður starfsmönnum fækkað um fimmtíu á árinu. Viðskipti innlent 28.4.2026 10:22
Stækkar stöðuna í Íslandsbanka með kaupum fyrir nærri tvo milljarða Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur á undanförnum vikum verið umsvifamesti fjárfestirinn á kaupendahliðinni í Íslandsbanka en hlutabréfaverð félagsins hefur hækkað nokkuð skarpt samhliða endurkaupum og væntingum um mikinn afkomubata þegar uppgjör fyrsta fjórðungs verður birt. Innherji 26.4.2026 13:26