
Solid Clouds

Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg
Tom er stjarneðlisfræðingur og einn hæfileikaríkasti spilari í heimi í íslenska tölvuleiknum Starborne: Frontier. Tom er búsettur í Adelaide í Ástralíu og flaug alla leiðina til Íslands til þess að heimsækja félaga sína hjá tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds á Eiðistorgi og hitta aðra spilara leiksins.

Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum
Íslenski tölvuleikurinn Starborne Frontiers frá Solid Clouds hefur verið tilnefndur til Norrænu tölvuleikjaverðlaunanna sem besti tölvuleikur fyrir snjalltæki á árinu 2024.

Aron Ólafsson nýr markaðsstjóri Solid Clouds
Aron Ólafsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Solid Clouds en hann var áður framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Áhætta Solid Clouds „snarminnkað“ frá síðasta hlutafjárútboði
Við ætlum að nýta hlutafé sem unnið er að safna til að skrúfa frá krananum þegar kemur að markaðsstarfi, segir forstjóri tölvuleikjaframleiðandans Solid Clouds.

Starborne Frontiers nú aðgengilegur í snjalltækjaverslunum
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur nú gert nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers, aðgengilegan í snjalltækjaverslunum Apple og Google.

Jóhann Ingi frá Solid Clouds til Dokobit
Jóhann Ingi Guðjónsson hefur verið ráðinn markaðs- og samskiptastjóri hjá Dokobit sem er leiðandi fyrirtæki á Íslandi í að bjóða upp á rafrænar undirskriftir og meðferð rafrænna gagna. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Nýja flaggskipið höfðar vel til karlmanna
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur gefið út nýjan alþjóðlegan tölvuleik sem gerist í geimnum. Solid Clouds var skráð í íslensku kauphöllina í júní í fyrra og heldur nú úti tveimur tölvuleikjum en þessi nýjasti á að vera flaggskipið.

Solid Clouds opinbera annan leik fyrirtækisins
Forsvarsmenn íslenska leikjafyrirtækisins Solid Clouds ætla að forsýna nýjasta leik fyrirtækisins á næstu dögum. Starborne Frontiers er annar tölvuleikur félagsins og verður hann opinberaður á fjárfestadegi Solid Clouds þann 1. desember.

Verðmetur Solid Clouds á tvo milljarða
Jakobsson Capital verðmetur tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds á um tvo milljarða króna eða 10,9 krónur á hlut. Það er um þriðjungur yfir markaðsvirði. Gert er ráð fyrir að helmings líkur séu á að nýi leikurinn muni ganga eins og vonast er til.

Ráðinn yfirleikjahönnuður Solid Clouds
Stefán Friðriksson hefur verið ráðinn yfirleikjahönnuður hjá Solid Clouds. Hann hefur síðustu ár starfað sem yfirhönnuður á Angry Birds Match-leiknum.

Sprenging á íslenska hlutabréfamarkaðnum þroskamerki
Hvergi í heiminum hafa hlutabréf hækkað eins mikið í verði á undanförnu ári en á Íslandi. Hagfræðingur segir þetta skipta miklu fyrir framgang íslensks atvinnulífs en minnir á að hlutabréfakaupum fylgir áhætta.

Bréf í Solid Clouds halda áfram að lækka
Gengi hlutabréfa í íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds lækkaði um 14,9 prósent í dag. Frá skráningu félagsins á markað á mánudaginn hafa bréf í því lækkað um 36 prósent.

Sigurlína hringdi inn fyrstu viðskipti Solid Clouds
Í dag hófust viðskipti með hlutabréf tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds í Kauphöllinni í morgun. Sigurlína Ingvarsdóttir, stjórnarformaður Solid Clouds, hringdi inn fyrstu viðskiptin.

2.700 fjárfestar vildu hluti í Solid Clouds fyrir 2,8 milljarða
Um það bil 2.700 fjárfestar tóku þátt í hlutafjárútboði tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds og sendu þeir inn tilboð að andvirði 2,8 milljarða króna. Útboðinu lauk í dag en eftirspurnin var fjórföld.

Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna hlutafjárútboðs Solid Clouds
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka stendur fyrir opnum kynningarfundi klukkan 12:30 í dag vegna hlutafjárútboðs íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds.

Hlutafjárútboð Solid Clouds hafið
Klukkan tíu hófst hlutafjárútboð í íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds hf. Útboðið hefst örfáum dögum eftir að tilkynnt var um næsta tölvuleik úr smiðju fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Hlutafjárútboð Solid Clouds hefst í næstu viku
Hlutafjárútboð íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds hefst næsta mánudag klukkan 10 og mun standa fyrir til klukkan 16 miðvikudaginn 30. júní. Arion banki sér um útboðið en félagið verður skráð á First North markaðinn.