Færð á vegum

Fréttamynd

Él og slyddu­él í dag og önnur lægð á morgun

Í dag má búast við suðlægri átt og fimm til 13 metrum á sekúndu og él eða slydduél, en lengst af að það verði þurrt norðaustanlands framan af degi. Eftir hádegi gengur í suðaustan 13 til 20 metra á sekúndu og bætir í él um tíma á austanverðu landinu.

Veður
Fréttamynd

Gul við­vörun og enn líkur á eldingum

Gul viðvörun er í gildi á meirihluta landsins þar til klukkan um hádegi eða seinni part í dag. Lengst eru viðvaranir í gildi á Norðurlandi eystra, Ströndum, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, eða til klukkan 16. Viðvörun rennur fyrst út í Breiðafirði klukkan 12 en svo klukkan 14 á Suðurlandi og á miðhálendi. Sums staðar eru líkur á eldingum líkt og í gær.

Veður
Fréttamynd

Kröpp lægð yfir landinu og úr­koman blönduð

Kröpp og djúp lægð er núna vestur af landinu. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar gengu skilin yfir landið í nótt og erum við nú í hlýjasta hluta veðurkerfisins. Úrkoman á engu að síður að vera blönduð samkvæmt spá, rigning, slydda og jafnvel snjókoma á köflum.

Veður
Fréttamynd

Gæti orðið flughált síð­degis

Spáð er að hlýni skarpt síðdegis með rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu. Það gæti því víða orðið flughált á meðan saman þjappaður snjór og klaki tekur upp.

Innlent
Fréttamynd

Hring­vegurinn lík­lega lokaður til morguns

Skólahaldi var aflýst í tveimur skólum í Múlaþingi í morgun vegna veðurs og þá loka skólar í Fjarðabyggð á hádegi. Hringveginum um Mývatn og Möðrudalsöræfi var lokað í morgun og ekki er búist við að hann opni á ný fyrr en í fyrramálið.

Innlent
Fréttamynd

Appel­sínu­gul við­vörun á morgun

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Austurlandi vegna norðaustan hríðar sem tekur gildi klukkan eitt á morgun, mánudaginn 2. mars. Gular viðvaranir vegna veðurs hafa sömuleiðis verið gefnar út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Suðausturland.

Veður
Fréttamynd

Hálka í höfuð­borginni og þung­fært víða um land

Vegagerðin varar við því að hálka sé nú á flestum leiðum á höfuðborgarsvæðinu eftir veðrið sem gekk yfir í gækvöldi og í nótt. Á Suðvesturlandi er einnig snjóþekja, eða hálka og hálkublettir, á flestum leiðum. Opið er um Hellisheiði og Þrengsli en Hellisheiðin var opnuð á tólfta tímanum í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Strætó fór út­af á Holta­vörðu­heiði

Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum.

Innlent
Fréttamynd

Mesti snjórinn síðan í október: „Ætluðum við að gera þetta núna?“

Vetrarfærð er víða á vestanverðu landinu vegna snjókomu og gular viðvaranir voru gefnar út í dag vegna hríðarveðurs á höfuðborgarsvæðinu, og á Vestfjörðum og við Breiðafjörð sem taka gildi á morgun. Snjóinn tók að kyngja niður á höfuðborgarsvæðinu rétt um klukkan tvö í dag og var gul veðurviðvörun gefin út nær samstundis og veðrið skall á þar sem óljóst var framanaf hvar nákvæmlega úrkomubakkinn myndi ná landi.

Innlent
Fréttamynd

Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs

Ofankoma er mikil þessa stundina á höfuðborgarsvæðinu og þau sem hafa tök á því eru hvött til að fara fyrr heim úr vinnu. Gul veðurviðvörun er í gildi og töluverðar seinkanir eru á strætó.

Veður
Fréttamynd

Enn ó­víst hvar miðja bakkans lendir

Lögreglan og Vegagerðin biðja ökumenn á suðvestanverðu landinu að fylgjast vel með aðstæðum í dag en búist er við mikilli snjókomu og hríðarveðri. Björgunarsveitir þurftu að koma allnokkrum til bjargar í vetrarveðrinu sem gekk yfir á Austurland í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Biðla til fólks að vera undir­búið undir vetrarfærð á morgun

Lögreglan á Suðurnesjum auk lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu biðlar til vegfarenda um að taka ekki óþarfa áhættu og fara ekki af stað á vanbúnum bílum þar sem spáð sé snjókomu víða á suðvestanverðu landinu á morgun með vetrarfærð. Þá er fólk hvatt til að fylgjast vel með færð og veðurspá.

Innlent
Fréttamynd

Gular veðurviðvaranir á Austur­landi

Gular veðurviðvaranir taka gildi á Austurlandi síðdegis í dag. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem gætu staðbundið farið yfir þrjátíu metra á sekúndu.

Veður
Fréttamynd

Á sjötta hundrað lentu í vand­ræðum

Farþegar í á sjötta hundrað farartækja lentu í vandræðum undir Eyjafjöllum í gærkvöldi vegna skafrennings. Það var samvinnuverk að koma bílunum aftur af stað sem björgunarsveitir, Vegagerðin og bændur á svæðinu tóku þátt í.

Innlent
Fréttamynd

Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni

Oddviti Framsóknar segir af og frá að aðgerðir vegna mengunar á höfuðborgarsvæðinu hafi strandað á honum. Hann segir Pírata og Samfylkingu með fullkomlega óraunhæfar hugmyndir til að bregðast við. Kjörnir fulltrúar segjast í svörum til fréttastofu í dag líta málið alvarlegum augum, flestir segja í þetta skiptið nagladekk vera meginorsakavaldinn.

Innlent
Fréttamynd

Snjó­koman náði ekki yfir Hellisheiðina

Ekkert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu eins og spáð hafði verið. Veðurfræðingur segir að litlu hafi munað, aðeins fjórum eða fimm kílómetrum, að snjókoman næði þangað. Gul viðvörun er á Suður- og Suðausturlandi en snjórinn léttur og festist illa. 

Veður
Fréttamynd

Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum

Meirihluti kjörinna fulltrúa telur að bætt götuhreinsun muni stemma stigu við mikilli svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu, miðað við svör til fréttastofu um málið. Fulltrúarnir skiptast í tvo hópa, þá sem telja að þrifin skipti máli og svo þá sem benda á að nagladekk og samgöngur séu helsta vandamálið. Sumir kenna meirihlutanum í borgarstjórn um vandann en aðrir íhaldsmönnum sem dragi lappirnar að taka á nagladekkjavanda. Öll líta málið alvarlegum augum.

Innlent
Fréttamynd

Vara við því að færð spillist í kvöld

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, segir útlit fyrir að færð muni spillast í kvöld. Syðst á landinu stefni í hríðarveður og skafrenning og að ekki muni rofa til að gagni fyrr en upp úr hádegi á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Dregur lík­lega úr svifryksmengun seint í dag

Líklegt er að svifryksmengun minnki á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi í dag þegar fer að snjóa. Styrkur svifryks hefur mælst langt yfir heilsuverndarmörkum á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Í hádeginu í gær sýndi loftmælistöð á Grensásvegi að styrkur þess nam 178,9 míkrógrömmum á rúmmetra sem er rúmlega þrefalt yfir heilsuverndarmörkum. 

Innlent