Allt að nítján stiga hiti í dag Lovísa Arnardóttir skrifar 17. ágúst 2026 11:24 Bjart með köflum og væta suðaustanlands. Vísir/Vilhelm Milt veður í dag en möguleg bleyta á Austfjörðum og Suðausturlandi. Lægð nálgast landið sem nær þó ekki inn á land og lítil úrkoma á suðaustanverðu landinu.
Í dag er spáð austan 5-10 m/s, en 10-15 syðst á landinu. Bjart með köflum norðan- og vestanlands, en dálítil rigning suðaustantil. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast á Norðurlandi. Austlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun, en 8-13 við suðausturströndina. Lítilsháttar væta á Austfjörðum og Suðausturlandi, annars bjart að mestu. Hiti víða 13 til 18 stig, en svalara við austurströndina. Lægð nálgast Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að lægð nálgist landið úr suðvestri en að skil hennar nái ekki inn á land og því megi búast við lítilli úrkomu í dag sem verði nánast eingöngu bundin við suðaustanvert landið. „Lægðin nær þó að bæta í vindinn hjá okkur miðað við hægviðrið um helgina. Þegar kemur fram á daginn má búast við austan 5-10 m/s nokkuð víða og 10-15 syðst á landinu. Þokkalega hlýtt í dag og væntanlega hlýjast á Norðurlandi, eða 19-20 stig þar sem best lætur,“ segir í hugleiðingum. Ekki sama veðurblíða á menningarnótt Þar segir að á morgun fjarlægist lægðin og dragi aftur úr vindi. Þá láti lítilsháttar væta líklega á sér kræla á Austfjörðum og Suðausturlandi, en aðrir landshlutar ættu að verða bjartir að mestu. Hiti yfirleitt á bilinu 13 til 18 stig yfir daginn, en svalara við austurströndina. „Ef við gægjumst lengra fram í tímann þá er útlit fyrir rólegt veður á miðvikudag og fimmtudag, yfirleitt þurrt og milt. Um næstu helgi virðast síðan lægðir eiga að vera á sveimi við landið og bætir þá í vind með rigningu. Það er því ekki útlit fyrir sömu veðurblíðu um næstu helgi og var á þeirri sem nú er nýliðin,“ segir hann að lokum. Víðast hvar um landið er greiðfært en þó víða framkvæmdir. Gott er að fylgjast með tilkynningum um umferð á vef Vegagerðar og veðri á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en 8-13 við suðausturströndina. Lítilsháttar væta á Austfjörðum og Suðausturlandi, annars bjart að mestu. Hiti 12 til 18 stig, en svalara við austurströndina. Á miðvikudag og fimmtudag: Fremur hæg vestlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en skýjað að mestu á vestanverðu landinu. Hiti yfirleitt á bilinu 10 til 16 stig yfir daginn. Á föstudag og laugardag: Suðvestan- og sunnanátt með vætu, en þurrt að kalla norðaustan- og austanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi. Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt og rigning um tíma í flestum landshlutum. Kólnar í veðri.
Veður Færð á vegum Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira