Leitin að Magnúsi Kristni

Lögregla skoðar að senda fulltrúa út
Lögreglan á von á skýrslu frá lögreglunni í Dóminíska lýðveldinu í næstu viku er varðar rannsókn þeirra á hvarfi Magnúsar Kristins Magnússonar í Dóminíska lýðveldinu í september á þessu ári. Ekkert hefur heyrst frá Magnúsi síðan í september.

Sannfærð um að hún eigi ekki eftir að sjá Magnús aftur
Enn hefur ekkert spurts til Magnúsar Kristins Magnússonar sem týndist í Dóminíska Lýðveldinu fyrir rúmum mánuði. Bróðir hans kom heim í gær eftir árangurslausa ferð út í leit að svörum. Systir Magnúsar gagnrýnir sinnuleysi og hægagang yfirvalda hér á landi. Hún á ekki von á því að sjá bróður sinn á ný.

Bróðir Magnúsar á leið út og farangurinn á leið heim
Ekkert hefur enn spurst til Magnúsar Kristins í Dóminíska lýðveldinu. Bróðir hans er nú á leið út en fyrir fjölskylduna starfar nú innlendur lögmaður. Hluti af farangri Magnúsar er á leið til landsins.

„Þessi óvissa er algjör martröð“
Enn hefur ekkert spurst til Magnúsar Kristins Magnússonar, 36 ára,sem hvarf í Dóminíska Lýðveldinu fyrir tæpum tveimur vikum. Systir hans segir vonina um góðar fréttir minnka með hverjum degi.

Rannsókn á hvarfi Magnúsar heldur áfram
Rannsókn lögreglu á máli Magnúsar Kristins Magnússonar, sem leitað er í Dóminíska lýðveldinu, heldur áfram.

Útskýrir hvað gerist þegar Íslendingur týnist erlendis
Það eru ekki margir Íslendingar sem týnast á erlendri grundu, en þó koma upp nokkur slík mál á ári hverju, að sögn Karls Steinars Valssonar yfirlögregluþjónar hjá Ríkislögreglustjóra. Hann ræddi um mannshvörf Íslendinga erlendis í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Óttast að andleg veikindi hafi tekið sig upp á ný
Systir Magnúsar Kristins Magnússonar, sem leitað er í Dóminíska lýðveldinu, segir hann hafa glímt við andleg veikindi fyrir nokkrum árum. Hún óttast að veikindin hafi hugsanlega tekið sig upp á ný og hann sé á slæmum stað andlega. Fjölskyldan sé örmagna en reyni að einbeita sér að leitinni auk þess að hlúa að ungum syni Magnúsar og fóstursyni.

Ekkert bendi til þess að Magnús hafi verið flæktur í eitthvað ólöglegt
Fjölskylda Magnúsar Kristins Magnússonar íhugar nú að fara út til Dóminíska lýðveldisins til að halda áfram leit að honum. Hann hefur nú verið týndur í viku. Systir hans segir ekkert benda til ólöglegs athæfis.

Íslenskur karlmaður týndur í Dóminíska lýðveldinu
Íslenskur karlmaður á fertugsaldri hefur ekki skilað sér heim frá Dóminíska lýðveldinu. Hann átti flug heim fyrir tæpri viku síðan. Systir mannsins biðlar til almennings um aðstoð.