Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024)
26 27 28 29 30 31 32 33 34 … 40 ›
Ríkisstjórnin hafi sett efnahag venjulegs fólks á hvolf Formaður Samfylkingarinnar heitir því að flokkurinn muni endurheimta og tryggja efnahagslegan stöðugleika á Íslandi, nái flokkurinn í ríkisstjórn. Í eldhúsdagsræðu sinni í kvöld sagði hún ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafa sett efnahag venjulegs fólks á hvolf, en Samfylkingin hafi getuna til að rétta úr kútnum. Innlent 12.6.2024 19:59
„Það að sá sem fer með fjárveitingarvaldið standi að þessu er sérstaklega ámælisvert“ Framkvæmdastjóri netverslunar með áfengi segir óeðlilegt að pólitískir valdhafar reyni að hafa áhrif á sakamálarannsóknir og vitnar þar í bréf sem fjármálaráðherra sendi lögreglu í gær. Dómsmálaráðherra sendir fjármálaráðherra kaldar kveðjur vegna málsins. Innlent 12.6.2024 19:31
Guðrún vill lagabreytingar ekki pólitísk afskipti Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir mjög mikilvægt og hollt að minna stjórnmálamenn og alla sem vinna í stjórnmálum á það að meðferð sakamála geti aldrei lotið pólitískum afskiptum. Það segir Guðrún um yfirlýsingu sína sem birtist á vef stjórnarráðsins um það sama. Innlent 12.6.2024 19:22
Biðla til stjórnvalda að klára málið Konur segja stjórnvöld hafa sýnt þeim algjört tómlæti í næstum tvö ár þrátt fyrir að opinber greinargerð sýni að þær voru beittar alvarlegu ofbeldi á meðferðarstofnun sem unglingar. Þær segja að vistin þar hafi skilið eftir djúp sár og margar þeirra glími enn við afleiðingarnar. Stjórnvöld þurfi að viðurkenna mistökin og bera ábyrgð. Innlent 12.6.2024 19:00
Fjármálaráðherra segist ekki hafa hvatt til sakamálarannsóknar Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra segist ekki vera að hvetja til sakamálarannsóknar á fyrirtækjum sem flytji inn áfengi og selji á Netinu, með bréfi sínu til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Dómsmálaráðherra gefur í skyn að með bréfinu hafi Sigurður Ingi haft pólitísk afskipti af störfum lögreglunnar. Innlent 12.6.2024 17:46
Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Almennar stjórnmálaumræður, svokallaðar eldhúsdagsumræður, fara fram á Alþingi í kvöld og hefjast klukkan 19:40. Innlent 12.6.2024 17:30
Pólitísk afskipti ráðherra tilefni til alvarlegra áhyggja Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir aðgerðir Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra og Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra gagnvart íslenskum fyrirtækjum tilefni til mikilla áhyggja. Innlent 12.6.2024 16:54
Dómsmálaráðherra skammar fjármálaráðherra fyrir afskipti Dómsmálaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu á vef stjórnarráðsins þar sem kemur fram að ráðuneyti stjórnarráðsins og ráðherrar ríkisstjórnarinnar eigi ekki að hafa afskipti af því hvort eða hvernig mál séu tekin til rannsóknar sem sakamál. Innlent 12.6.2024 15:08
Áfengissalar kvarta undan afskiptum ráðherra af lögreglu Sante ehf., sem heldur úti netverslun með áfengi, hefur sent kvörtun til Umboðsmanns Alþingis þar sem kvartað er undan „óeðlilegum pólitískum afskiptum“ fjármála- og efnahagsráðherra af lögreglurannsókn. Innlent 12.6.2024 14:06
Leyfið til að drepa langreyði - óforsvaranleg ákvörðun Þann 1. júní var gert opinbert að skýrsla MAST yfir hvalveiðitímabilið 2023 sýndi ekki fram á tölfræðilega marktækan mun frá árinu 2022 þegar dauðatími hvala var metinn „óásættanlegur“ og fagráð um velferð dýra sem starfar á vegum MAST komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri til mannúðleg leið til að drepa stórhveli. Það hefði átt að vera nóg til að binda enda á alla von um endurnýjað veiðileyfi. Skoðun 12.6.2024 14:01
Bjarkey verði að sæta ábyrgð Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir matvælaráðherra hafa viljandi gert Hval hf. ókleift að veiða langreyðar í sumar. Hún telur að fyrirtækið fari í mál við ríkið og að borgarar megi ekki sætta sig við það að ráðherrar brjóti lög. Innlent 12.6.2024 13:23
Á þriðja tug mála bíða afgreiðslu og óvissa um frestun þingfunda Forseti Alþingis er vongóður um að samkomulag takist á næstu sólarhringum um afgreiðslu mála fyrir þingfrestun. Rúmlega tuttugu mál væru það langt komin að þau ættu að ná afgreiðslu. Hins vegar væri ekkert því til fyrirstöðu að funda lengra inn í júnímánuð ef á þyrfti að halda. Innlent 12.6.2024 11:52
Forsendur ríkisstjórnarinnar hafi verið slegnar af borðinu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir endurnýjaða ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafa lagt áherslu á mál sem Miðflokkurinn hafi verið búinn að hamast á þar á undan. Ríkistjórnin sé síðan ekki búin að gera neitt í þessum málum. Innlent 12.6.2024 09:08
Yrðu stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum ef VG dytti út af þingi Ólafur Þ. Harðarson prófessor emiritus í stjórnmálafræði segir miklu líklegra að Vinstri græn komist yfir fimm prósenta þröskuldinn í næstu kosningum en að þau geri það ekki. Í nýjustu könnunum mældist flokkurinn með sögulega lágt fylgi. Tilkynnt var fyrir helgi að flýta ætti landsfundi flokksins. Ólafur fór yfir stöðuna í stjórnmálum á Íslandi í Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 11.6.2024 23:39
Bjarni ferðaðist um Malaví með vélinni sem fórst Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir það óhugnanlega tilfinningu að hugsa til þess að hann hafi aðeins fyrir nokkrum vikum ferðast innanlands í Malaví í sömu flugvél og varaforseti landsins, Saulos Chilima, var í þegar hann, og níu aðrir, létust í flugslysi í gær. Innlent 11.6.2024 22:47
„Þetta eru engar eðlilegar eða venjulegar dýraveiðar“ Matvælaráðherra hefur sætt gagnrýni fyrir ákvörðun sína um að heimila hvalveiðar úr mörgum ólíkum áttum. Sigursteinn Másson stjórnarmaður í Dýraverndarsambandi Íslands og Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins fóru yfir málið í Kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 11.6.2024 21:01
Ráðherra sendir lögreglu erindi vegna netsölu áfengis Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sent lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu erindi vegna netsölu áfengis til neytenda hér á landi. Málið var til umræðu á Alþingi í dag. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins líkti heimsendingu á Brennivíni eins og hún er framkvæmd í dag við nútíma sprúttsölu. Innlent 11.6.2024 18:19
Auka framlag Íslands til UNRWA um hundrað milljónir Ísland eykur framlag sitt til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) um hundrað milljónir. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti um framlagið á ráðstefnu sem hann sótti fyrir hönd forsætisráðherra í Jórdaníu. Samanlagt munu stjórnvöld þá hafa lagt til UNRWA 290 milljónir á þessu ári. Innlent 11.6.2024 17:33
Kári Stefánsson formaður í nýjum starfshóp Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að gera tillögur um hvernig staðið skuli að einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu hér á landi. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er formaður hópsins. Innlent 11.6.2024 15:33
„Ég kem ekki nálægt þessum málum aftur“ Henry Alexander Henrysson segir ákvörðun matvælaráðherra, um að leyfa hvalveiðar til eins árs, einfaldlega ranga. Hann kveðst ekki ætla að koma nánar að hvalveiðimálum innan stjórnsýslunnar. Innlent 11.6.2024 15:32
Ólíðandi misbeiting matvælaráðherra á valdi Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir blasa við að málsmeðferð matvælaráðherra í hvalveiðimálinu sé engan veginn í samræmi við lög eða stjórnarskrá landsins. Rökin sem ráðherrann færi fyrir langdreginni málsmeðferð standist enga skoðun. Innlent 11.6.2024 14:36
Ákvörðunin skref í rétta átt Í dag var Hval hf. veit leyfi til að veiða 128 langreyðar við Íslandsstrendur í ár. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir innihald leyfisins skref í rétta átt þrátt fyrir að hann hafi viljað að veiðarnar yrðu bannaðar alfarið. Innlent 11.6.2024 12:07
Bjarkey veitir Hval leyfi til að veiða 128 langreyðar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur veitt Hval hf. veiðileyfi til veiða á langreyðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælaráðuneytinu. Innlent 11.6.2024 11:35
Vaktin: Bjarkey gefur grænt ljós á hvalveiðar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á 128 langreyðum. Bjarkey kynnti ákvörðun sína á ríkisstjórnarfundi í morgun og ræddi að því loknu við fjölmiðla. Innlent 11.6.2024 10:19
Kosningastjóri og áhrifavaldur aðstoða Bjarkeyju Fyrrverandi kosningastjóri Vinstri grænna í norðvesturkjördæmi og samfélagsmiðlaáhrifavaldur hafa verið ráðnir aðstoðarmenn Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur, matvælaráðherra. Bjarkey tók við embætti í apríl. Innlent 11.6.2024 09:31
Inga vill helst fjármálaráðuneytið Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að hún myndi helst vilja fara í fjármálaráðuneytið fengi hún að velja á milli allra mögulegra ráðuneyta. Innlent 11.6.2024 09:02
Allt það helsta með einum smelli Við höfum ekki þolinmæði eða tíma fyrir seinagang og flækjur. Við viljum að þjónusta sé einum smelli frá, hvort sem viðkemur matarkaupum eða við leit að upplýsingum. Við gerum þessar kröfur til einkageirans og ekki síður til hins opinbera, sérstaklega í heimi nýsköpunar. Þessum kröfum þurfum við að mæta og veita hraða, skilvirka og aðgengilega þjónustu. Skoðun 11.6.2024 08:31
„Þessi kostnaður hverfur ekki“ Fyrstu umræðu um fjórðu fjáraukalög ríkisstjórnarinnar lauk á ellefta tímanum á Alþingi í kvöld. Frumvarpið fer nú í aðra umræðu og aftur til fjárlaganefndar. Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu óvæntan kostnað og afleiðingar aukinna útgjalda í ræðum sínum á þingi í kvöld. Ráðherra vísaði í svörum sínum til ófyrirsjáanlegra aðstæðna vegna náttúruhamfara. Innlent 10.6.2024 23:42
Þrettán ungliðahreyfingar fordæma breytingar á útlendingalögum Þrettán íslenskar ungliðahreyfingar krefjast þess að ný útlendingalög verði samin í samráði við sérfræðinga í málaflokknum, mannréttindasamtök og hagsmunaaðila. Þau fordæma breytingarnar sem á að gera á útlendingalögunum og krefjast þess að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Innlent 10.6.2024 22:27
Fjárlaganefnd leggur til opnun sendiráðs á Spáni Fjárlaganefnd hefur lagt til opnun sendiráðs Íslands á Spáni í nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um fjármálálaáætlun næstu fimm ár. Hingað til hefur Spánn verið umdæmisland sendiráðsins í París. Innlent 10.6.2024 19:36