
Mál Mariusar Borg Høiby

Høiby í vikulangt gæsluvarðhald
Héraðsdómur Óslór hefur úrskurðað Marius Borg Høiby í vikulangt gæsluvarðhald vegna rannsóknar á ofbeldisbrotum sem hann á að hafa framið gegn konum. Hann er ákærður fyrir tvær nauðganir.

Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum
Lögreglan í Noregi hefur farið fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir Mariusi Borg Høiby, stjúpsyni Hákonar krónprins. Høiby var handtekinn á mánudagskvöld en tvær nauðganir eru nú til rannsóknar í máli hans.

Stjúpsonur norska krónprinsins aftur handtekinn
Lögregla í norsku höfuðborginni Osló handtók í gær Marius Borg Høiby, stjúpson Hákonar krónprins, á ný, nú vegna vegna gruns um nauðgun.

Stjúpsonur norska prinsins handtekinn um helgina
Marius Borg Høiby stjúpsonur Hákonar krónprins af Noregi var handtekinn um helgina vegna líkamsárásar og skemmdarverka sem áttu sér stað síðastliðinn laugardag. Samkvæmt upplýsingum norskra fjölmiðla þekkir Høiby þann sem varð fyrir árásinni.