Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 5. febrúar 2026 08:22 Marius Borg Høiby og mamma hans Mette-Marit krónprinsessa árið 2016. Getty/Julian Parker Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, sagðist fyrir rétti í Osló í gær ekki muna eftir að hafa tekið myndir og myndbönd sem eru meðal gagna málsins gegn honum. Myndefnið fannst í síma Høiby sjálfs, og tengist meintu broti hans gegn konu morguninn eftir partý í Skaugum árið 2018. Høiby brast í grát í dómsal í gær og kvartaði sáran yfir veru fjölmiðla í salnum og umfjöllunar þeirra um hans mál. Það hafi reynst honum erfitt að vera þekktur fyrir að vera sonur móður sinnar.
Høiby sætir ákæru í 38 liðum, meðal annars fyrir alvarlegt kynferðisofbeldi gegn nokkrum konum, en hann hefur neitað sök í alvarlegustu ákæruliðunum. Þriðji dagur réttarhaldanna yfir bónusprinsinum, eins og hann er stundum kallaður, er í dag. Sýnd fjögur myndbönd og tíu ljósmyndir frá því milli klukkan 07:12 til 07:17 desembermorgun nokkurn árið 2018 sem Høiby var spurður út í í gær. Innan þessa fimm mínútna tímaramma vill ákæruvaldið meina að Høiby hafi brotið gegn ónefndri konu. Myndefnið var sýnt fyrir luktum dyrum í réttarsal, en Høiby hefur neitað því að hafa brotið á konunni, og einnig þremur öðrum konum sem hann er ákærður fyrir að brjóta gegn. „Ég man ekki eftir því sjálfur að hafa tekið þær,“ sagði Høiby þegar hann var spurður um myndirnar fyrir rétti í gær samkvæmt umfjöllun NRK. Samkvæmt ákæru er Høiby grunaður um að nauðga fjórum konum sem hafi ekki getað komið við vörnum þar sem þær voru ekki vakandi. Teikning af Mariusi Borg Høiby úr réttarsal í gær, en þar eru myndatökur bannaðar.AP/Ane Hem Konan úr partýinu í Skaugum kom einnig fyrir réttinn í gær og verjandi hennar segir að það hafi reynst henni mjög erfitt að sjá Høiby í réttarsal. Frásagnir hans og konunnar af atburðunum eftir samkvæmið í Skaugum eru ólíkar, en konan segist hafa verið án meðvitundar á meðan Høiby segist ekki hafa „stundað kynlíf“ með einhverjum sem var sofandi. Sjálfur segir hann að kvöldið sem þau hittust hafi verið í fyrsta sinn sem hann hafi prófað kókaín. Sjálfur átti Høiby mjög erfitt með sig eftir að hann settist í vitnastúkuna í gær. „Mér finnst fáránlega erfitt að tala fyrir framan svona marga,“ sagði Høiby um leið og röddin brast og hann grét, samkvæmt umfjöllun VG. „Fjölmiðlar hafa fylgt mér eftir síðan ég var þriggja ára,“ bætti hann við og vísaði þannig til fjölmiðlafólksins í salnum sem hann var mjög óánægður með að væru viðstaddir. Hann lýsti einnig partýstandi sínu og drykkju, og sagðist ekki gera ráð fyrir að margir aðrir í salnum gætu skilið eða tengt við það hvernig líf hans hafi verið. „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu. Ekkert annað. Ég hef haft mikla þörf fyrir staðfestingu,“ sagði Høiby ennfremur. Þá þvertók hann jafnframt fyrir að móðir hans Mette-Marit hafi með nokkrum hætti átt við símann hans áður en hann var afhentur lögreglu. Það sé af og frá að mamma hans krónprinsessan hafi tekið símkortið úr símanum. Áður höfðu verið sagðar fréttir af því að þegar Høiby var fyrst handtekinn árið 2024 hafi hann afhent lögreglu farsíma sem var án símkorts og búið var að eiga við. Í framhaldi af þessu hafi samsæriskenningar farið af stað um að mamma hans hafi tekið kortið úr símanum sem Høiby segir með öllu ósannar.
Noregur Mál Mariusar Borg Høiby Kóngafólk Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira