Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Fréttamynd

Ráð­gjöf Heiðu Kristínar kostaði fjór­tán milljónir

Utanríkisráðuneytið greiddi félagi Heiðu Kristínar Helgadóttur og eiginmanns hennar alls fjórtán milljónir króna vegna sérlegrar ráðgjafar hennar við utanríkisráðherra í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún starfaði fyrir ráðuneytið í sex mánuði.

Innlent
Fréttamynd

„Sorg­legt að þetta sé staðan“

Dómsmálaráðherra segir hótanir í garð ráðamanna vera ömurlegt frávik frá því sem að öðru leyti einkenni íslenskt samfélag. Hún sé sjálf meðal þeirra ráðamanna sem hafi borist hótanir. 

Innlent
Fréttamynd

Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í ein­kunn

Grunnskólakennari spyr í hvaða vitleysu einkunnakerfi hérlendis séu stödd. Reglugerð um nýja einkunnagjöf sem eigi að vera innleidd í vor sé ekki úthugsuð en það þurfi fyrst að breyta aðalnámskrá og því næst eigi að setja upp kvarða sem passi fyrir þá aðalnámskrá. Það sé skammsýni að telja að nýr kvarði verði breyting til hins betra.

Innlent
Fréttamynd

Gagn­rýna harð­lega fyrir­hugaðar skatta- og gjaldahækkanir

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur skilað umsögn um frumvarp vegna fjárlaga 2027 en þar gagnrýnir sambandið harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir stjórnvalda. Sambandið geti með engu móti stutt það óbreytt og telur að „stjórnvöld þurfi að horfast í augu við eigin ábyrgð á verðbólguþróuninni“.

Innlent
Fréttamynd

Ekki á­kveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endur­flutt

Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort lagareldisfrumvarpið verði lagt fram að nýju. Frumvarpið er ekki á dagskrá yfirstandandi löggjafarþings, þótt í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar hafi verið stefnt að lagasetningu um bæði sjókvíaeldi og landeldi vorið 2026.

Innlent
Fréttamynd

Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir

Það væri undarleg taktík að boða 5,2 prósenta gjaldahækkanir til að fá sveitarfélög, atvinnurekendur og verkalýðsfélög að samningaborðinu um minni hækkanir, að mati Almars Guðmundssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann vill að ríkið fylgi fordæmi sveitarfélaganna og takmarki hækkanirnar við 2,5 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Harðari tónn en áður hafi verið sleginn

Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem hún beindi spjótum sínum að Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur vakið mikla athygli. Stjórnmálafræðingur segir ræðuna í takti við íslenska utanríkisstefnu, þó í henni megi finna harðari tón en áður hafi verið sleginn.

Innlent
Fréttamynd

„Að­gerða­leysið og getu­leysið er al­gjört hjá stjórn­völdum“

Hrannar Björn Arnarsson, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna og Bóas Valdórsson, varaformaður samtakanna og framkvæmdastjóri Sjónarhóls, ráðgjafamiðstöðvar, kalla eftir viðbrögðum og plani frá stjórnvöldum til að bregðast við löngum biðlistum barna eftir greiningu vegna ADHD. Þúsundir barna og fullorðinna bíða og vandinn þyngist bara á meðan biðin lengist.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðarsjúkrahúsið seinkar

Við Hringbraut rís eitt stærsta hús landsins. Útveggir eru komnir. Innri vinna stendur yfir. Tugir milljarða hafa þegar verið lagðir í verkefnið og enn stærri fjárhæðir eru fram undan.

Skoðun
Fréttamynd

Stutt geti verið í kosningar

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins telur að ríkisstjórnin eigi ekki langt eftir og að stutt geti verið í alþingiskosningar.

Innlent
Fréttamynd

Segir merki­legt að einkaskilaboð séu rædd á Al­þingi

Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að svara verði því í hvaða umboði fyrrverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga hafi sent skilaboðin umdeildu þar sem honum voru gefnir tveir kostir, afsögn eða stríð. Þingmaður Samfylkingarinnar segir merkilegt að einkaskilaboð milli fólks séu til umræðu í pontu Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skaut föstum skotum að leiðtogum sem virða alþjóðalög að vettugi í ávarpi Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Hún beindi orðum sínum jafnframt sérstaklega að Benjamín Netanjahú og ummælum hans um „siðferðislega hugleysingja“ og sagði þá nafnbót frekar eiga við leiðtoga sem neita að semja um frið, hindra mannúðaraðstoð og gera lítið úr alþjóðalögum.

Innlent
Fréttamynd

Daði spreytir sig í Gettu betur

Fjármálaráðherra, rektor Háskóla Íslands og útvarpsstjóri etja kappi við sigurlið MH í Gettu betur í dag. Viðureignin er hluti af hátíðardagskrá í tilefni sextíu ára afmælis Menntaskólans við Hamrahlíð.

Innlent
Fréttamynd

Ráð­herra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“

Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi frambjóðandi til formanns VR, sakar Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, um að hafa hrakið hana úr starfi eftir að þau tókust á um formannsembætti VR árið 2023. Hún gleymi aldrei svip Ragnars þegar hún tilkynnti honum um framboðið en hatur hafi skinið úr andliti hans. Ragnar og stuðningsmenn hans hafi gert allt til að sverta mannorð hennar og var það ekki hennar ákvörðun að segja skilið við VR eftir sigur Ragnars.

Innlent
Fréttamynd

Um­dæmin mishrifin af fækkun em­bætta

Þrátt fyrir að ákall um fækkun lögregluumdæma hafi ekki komið af öllu landinu telur formaður að breytingarnar séu til góða. Dómsmálaráðherra kynnti tillöguna í vikunni.

Innlent
Fréttamynd

Eftir­litið fellur á herðar for­eldra

Samfélagsmiðlafyrirtækjum verður ekki gert skylt að hafa sérstakt eftirlit með aldri íslenskra barna sem nota miðlana samkvæmt nýjum drögum að frumvarpi mennta- og barnamálaráðherra. Eftirlitið fellur á herðar foreldra.

Innlent
Fréttamynd

PISA-skellur en hvað svo?

Niðurstöður alþjóðlegu PISA-könnunarinnar 2025 liggja fyrir. Ísland kemur vel út hvaða suma þætti varðar en annað er verulegt áhyggjuefni. Það er börnunum okkar fyrir bestu að niðurstöðurnar verði ræddar af hreinskilni og heiðarleika og verkin verði látin tala til að ná betri árangri.

Skoðun
Fréttamynd

Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá

Allar tekjur sem Ríkisútvarpið hefur af auglýsingasölu umfram 2,8 milljarða verða dregnar frá útvarpsgjaldi fjölmiðilsins verði af nýju frumvarpi ráðherra. Hann leggur til breytingar á lögum um ríkismiðilinn en ætlar ríkinu sömuleiðis að taka á sig fjögurra milljarða skuld.

Innlent
Fréttamynd

Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, segist ekki hafa talið sig eiga neitt val um afsögn þar sem hann hafði ekki heilsu til þess að berjast fyrir embætti sínu eftir aðgerð. Hann eigi í dag engin samskipti við Ingu Sæland, sem hafi eytt honum af vinalista sínum á Facebook.

Innlent
Fréttamynd

Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta?

Í skilaboðum sem Guðmundur Ingi Kristinsson fékk fyrir afsögn sína var honum sagt að leiðtogar ríkisstjórnarinnar hefðu tekið ákvörðunina um brotthvarf hans. Sömu skilaboðum fylgdi tillaga að yfirlýsingu um að hann hefði sjálfur ákveðið að hætta.

Innlent
Fréttamynd

„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í dag ályktun um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Ályktunin var lögð fram af formanni sambandsins, Almari Guðmundssyni.

Innlent
Fréttamynd

Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal

Guðmundur Ingi Kristinsson segir Ingu Sæland hafa vitnað í ráðherrasamtal sem um gildi trúnaður í ræðustól Alþingis í gær. Honum segist létt eftir að hafa birt skilaboð frá fyrrverandi aðstoðarkonu. Sannleikurinn sé staðreynd en ekki upplifun.

Innlent
Fréttamynd

Veita ekki við­töl eftir ríkis­stjórnar­fund

Ráðherrar munu ekki veita viðtöl að loknum ríkisstjórnarfundi í dag, líkt og venjan er, þar sem þeir þurfa að þjóta á aðra fundi. Fyrrverandi ráðherra ríkisstjórnarinnar hefur sakað aðra ráðherra um lygar í tengslum við afsögn hans. 

Innlent
Fréttamynd

Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum

Tilraunir með svokallaðan kosningahermi benda til þess að með núverandi kosningakerfi náist ekki fullur jöfnuður milli þingflokka í um öðrum hverjum kosningum. Þorkell Helgason stærðfræðingur segir kjördæmissætin oft hafa verið of mörg og jöfnunarsætin of fá.

Innlent
Fréttamynd

Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt al­veg rétt frá

Birgir Guðmundsson, prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri, segir umræðu í kringum afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar óheppilega fyrir Ingu Sæland, Flokk fólksins og ríkisstjórnina í heild. Kjarni málsins sé að Inga Sæland hafi ekki sagt alveg satt og rétt frá og það geti rýrt traust. Rætt var við Birgi í Bítinu á Bylgjunni um málið.

Innlent