Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Fréttamynd

Segja boltann hjá stjórn­völdum

Á meðan fulltrúar verkalýðsfélaga bíða eftir að Samtök atvinnulífsins mæti á sinn fund bíða fulltrúar SA eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum. Framkvæmdastjóri SA segir deiluna stranda á nýju forsenduákvæði.

Innlent
Fréttamynd

Greinir skýran vilja til meira sam­starfs

Ráðamenn vestanhafs hafa sýnt skýran vilja til að efla samstarf Bandaríkjanna og Íslands enn frekar. Þetta segist Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hafa fundið vel eftir fundi hennar með Donald Trump, forseta, og Marco Rubio, utanríkisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Hafnar sæl­gætis- og fæðingar­or­lofsmálum sem rökum fyrir bókun 35

Dómsmál um fæðingarorlof og skaðlegt sælgæti hafa verið notuð með villandi hætti til að rökstyðja innleiðingu bókunar 35, að mati Sigríðar Andersen, þingflokksformanns Miðflokksins. Hún sakaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um hálfsannleik og blekkingar í umræðum á Alþingi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Barnaspítalabindi Billy stal senunni

William „Billy“ Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var meðal þeirra sem tóku á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann lenti á Íslandi í gær og fylgdu honum af landi brott síðdegis í dag. Athygli vakti að sendiherrann bar enn einu sinni óvenjulegt og litríkt bindi sem virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá honum og á sér fallega sögu.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Hafi þegar tryggt fjár­mögnun varamótoranna

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að gert sé ráð fyrir kaupum á varamótorum í ferjuna Herjólf í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Rekstrarfélag Herjólfs óskaði í gær eftir 65 milljónum króna til að geta keypt tvo varamótora í ferjuna.

Innlent
Fréttamynd

„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að full­veldi Ís­lands“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum.

Innlent
Fréttamynd

Leit að eftir­manni Harðar hefði hafist í haust eða vetur

Leit að eftirmanni Harðar Arnarsonar í starfi forstjóra Landsvirkjunar hefði hafist í haust eða vetur, að sögn Brynju Baldursdóttur stjórnarformanns. Hún segir næsta forstjóra þurfa að vera öflugan leiðtoga með reynslu af stjórnun og stórum verkefnum.

Innlent
Fréttamynd

Rubio: Ís­land í miðjunni

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Safnahúsinu. Lega Íslands skipti miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum og sagði ráðherrann mörg tækifæri fyrir frekara samstarfi á sviði öryggis- og efnahagsmála. Hann vildi ekki svara spurningu um samfélagsmiðlafærslur Bandaríkjaforseta og segir enga hernaðaruppbyggingu munu eiga sér stað á Íslandi án samþykkis Íslendinga.

Innlent
Fréttamynd

Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu

Rekstrarfélag Herjólfs segist verða að hætta við kaup á tveimur varamótorum fyrir ferjuna ef ríkið tryggir ekki fjármögnun þeirra. Samkvæmt félaginu hafa mótorarnir þegar verið pantaðir og þrjátíu prósent kaupverðsins greidd en það segist ekki eiga fyrir eftirstöðvunum.

Innlent
Fréttamynd

Vill að þak verði sett á á­lagningu olíu­fé­laga

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, kallar eftir því að olíufélögin lækki álagningu sína og að stjórnvöld stígi sömuleiðis inn með því að lækka virðisaukaskatt á ný. Bensínlítri kostar nú 253 krónur á höfuðborgarsvæðinu en víða á landsbyggðinni allt að 274 krónur samkvæmt vef Gasvaktarinnar. Lítri af dísilolíu kostar nú víðast hvar um 300 krónur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Marco Rubio heim­sækir Ís­land

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á Íslandi og fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Fylgst var með heimsókn hans hér á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Aug­lýsinga­tekjur Rúv undir fyrir­huguðu þaki þrjú ár í röð

Auglýsingatekjur RÚV hefðu farið yfir fyrirhugað 2,8 milljarða króna mark aðeins einu sinni á síðustu fjórum árum, samkvæmt samanburði Vísis á tölum ráðuneytisins. Það var árið 2022. Í skriflegu svari til Vísis segir ráðuneytið að mun meira muni um tíu prósenta lækkun á framlagi ríkisins til RÚV en um tekjuþakið.

Innlent
Fréttamynd

Rubio spenntur að hitta Þor­gerði

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segist spenntur fyrir Íslandsheimsókn sinni. Ísland sé góður vinur Bandaríkjanna og einn af stofnmeðlimum Nato.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar segir íslensk stjórnvöld vilja innleiða bókun 35 til að tryggja að íslenskir borgarar og fyrirtæki fái fullan rétt sem EES-samningurinn færir þeim. Sigríður Á. Andersen, þingkona Miðflokksins, telur að íslenska ríkið eigi að láta reyna á dómsmál fyrir EFTA-dómstólnum um innleiðingu EES-löggjafar á Íslandi áður en þingið tekur bókun 35 til umræðu. Komist dómstóllinn að því að íslenska ríkið hafi brotið á EES-samningnum sé komin upp önnur staða og þá þurfi að ræða það sérstaklega.

Innlent
Fréttamynd

Halda 25 pró­senta bónusþaki þrátt fyrir mun rýmri reglur á Norður­löndum

Stjórnvöld hafa fallið frá fyrri áformum um að tvöfalda hámark breytilegra launa hjá verðbréfafyrirtækjum og leggja þess í stað til að 25 prósenta þak verði áfram við lýði hjá þeim félögum sem falla undir strangari kröfur. Takmörkunin verður því enn mun meiri en þekkist annars staðar á Norðurlöndum, þótt samhliða sé lagt til að regluverk íslenskra verðbréfafyrirtækja verði almennt einfaldað verulega og reglubyrði þeirra minnkuð.

Innherji
Fréttamynd

Ekki á­taka­laust að breyta rót­grónu fé­lagi

Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður.

Lífið
Fréttamynd

Mildum höggið

Við í Framsókn styðjum markmiðið um hallalaus fjárlög, en það má ekki vera sama hvað það kostar. Fjárlögin þurfa að byggjast á raunhæfum forsendum og meta þarf hvað leiðin að hallalausum ríkisrekstri þýðir fyrir fjölskyldur í landinu.

Skoðun
Fréttamynd

„Okkur finnst við vera undan­skilin“

Sú staðreynd að Austurland leggi meira til ríkissjóðs en það fær til baka sýnir með skýrum hætti hversu mikilvægt atvinnulíf og verðmætasköpun á svæðinu er. Því þurfi ríkið að fjárfesta í þeim innviðum sem gera fólki og fyrirtækjum kleift að búa og starfa á svæðinu. Þetta segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

Innlent
Fréttamynd

„Of margar sögur af vondri með­ferð“

Dómsmálaráðherra segir að verkalýðshreyfingin hafi kallað eftir því að lokað yrði á dvalarleyfi fyrir svokallaðar au pair frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins. „Það eru of margar sögur af vondri meðferð þannig að ég er að stíga þetta skref,“ segir hann meðal annars. 

Innlent
Fréttamynd

Minni gjaldahækkanir kosti ríkis­sjóð 2,5 milljarða

Það myndi kosta ríkissjóð um tvo og hálfan milljarð króna að lækka fyrirhugaðar gjaldahækkanir úr 5,2 prósentum í 2,5 prósent, að sögn fjármálaráðherra. Hann segir svigrúm til þess í fjárlagafrumvarpinu og markmið um hallalaus fjárlög standi áfram.

Innlent
Fréttamynd

Geri málið tor­tryggi­legt að neita að svara

Almannatengill og ráðgjafi segir framkomu formanns Flokks fólksins í umdeildu fréttamáli óvenjulega. Það geri málið tortryggilegt að neita að svara fréttamönnum auk þess sem það sé vanvirðing við fjölmiðla og þjóðina að segjast ekki hafa tíma til að ræða stórt fréttamál á sama tíma og formaðurinn veiti ítarlegt viðtal um tísku.

Innlent
Fréttamynd

Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, hefur minnkað áfengisneyslu sína til muna og segir kílóin hafa fylgt með. Hún hafi alla tíð verið grönn en byrjað að bæta á sig um fimmtugt. Inga þáði boð Smartlandsins þar sem hún var gerð fín og flott, klædd í alls konar föt frá aðilum sem auglýsa í blaðinu og spurð spjörunum úr.

Lífið
Fréttamynd

Stefna á þrjú þúsund hektara en endur­heimtu þrettán

Seinagangur í skipulagskerfinu og áhugaleysi landeigenda eru meðal ástæðna þess að mun hægar hefur gengið að endurheimta votlendi en stjórnvöld stefndu að. Aðeins þrettán hektarar voru endurheimtir í fyrra en stjórnvöld stefna á þrjú þúsund á ári til 2031.

Innlent
Fréttamynd

Hvað þýðir sjö í nýju náms­mati?

Mennta- og barnamálaráðuneytið segir markmið fyrirhugaðra breytinga á námsmati við lok grunnskóla að gera framsetningu einkunna skýrari og samræmdari og þannig stuðla að auknu jafnræði nemenda, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu en þar er einnig farið ítarlega yfir merkingu hverrar einkunnar fyrir sig.

Innlent
Fréttamynd

Reglur um dvalar­leyfi hertar og filipps­eyskar au pair úr sögunni

Erlendir ríkisborgarar munu almennt þurfa að dvelja á Íslandi í sex ár í stað fjögurra áður en þeir öðlast rétt á ótímabundnu dvalarleyfi ef frumvarpsdrög dómsmálaráðherra ná fram að ganga. Þá verður hætt að veita dvalarleyfi til au pair sem koma utan Evrópska efnahagssvæðisins. Einnig er lagt til að skilyrði fjölskyldusameininga verði þrengd og dvalarleyfi veitt til þolenda vinnumarkaðsbrota.

Innlent
Fréttamynd

Leggur til að þing­menn verði 85 í stað 63

Þóroddur Bjarnason, prófessor á félagsvísindasviði Háskóla Íslands, segir að með því að fjölga þingmönnum úr 63 í 85 til að fjöldi kjósenda að baki hverjum þingmanni yrði sambærilegur í öllum kjördæmum. Þannig sé betur hægt að jafna atkvæðavægi og tryggja jafnræði án ofríkis meirihlutans.

Innlent