Stj.mál

Fréttamynd

Kjósendur velji lista

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á flokkstjórnarfundinum í gær að það væri sérstakt hlutverk hreyfingar jafnaðarmanna að bregðast við því sem hann kallaði "lýðræðislega firringu" eða áhuga- og þátttökuleysi almennings í stjórnmálum.

Innlent
Fréttamynd

Össur gagnrýnir aðgerðarleysi

Sjálfstæðisflokkurinn er að notfæra sér verkfallið til að ýta undir hugmyndir um einkavæðingu skólakerfisins að sögn Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðismenn nota verkfallið

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir Sjálfstæðisflokkinn vera að notfæra sér verkfall grunnskólakennara til að ýta undir hugmyndir um einkavæðingu skólakerfisins. Það sé ástæða þess að flokkurinn þráast gegn því að ríkisstjórnin komi að lausn deilunnar.

Innlent
Fréttamynd

Samskráning heimiluð

Geir H. Haarde fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi í gær um breytingu á lögum um virðisaukaskatt sem heimilar skattstjóra að samskrá tvö eða fleiri skráningarskyld hlutafélög og einkahlutafélög á virðisaukaskattsskrá.

Innlent
Fréttamynd

Kerry og brjálaður klikkhaus

  Vika er langur tími í pólítik. En ef smellt er á flipann "samþykkt lagafrumvörp" á 31. löggjafarþingi Íslendinga á Althingi.is kemur í ljós að eftir tveggja vikna löggjafarstarf liggur ekkert eftir Alþingi.

Innlent
Fréttamynd

Áræði og metnaður í alþjóðamálum

Á næstu fjórum árum munu íslensk stjórnvöld safna atkvæðum meðal aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna vegna framboðs Íslands til setu í Öryggisráðinu. Verkefnið er í senn umfangsmikið og metnaðarfullt en óvíst er hvort markmiðið náist. Ávinningur Íslands af setu í ráðinu yrði mikill.</font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Gjöld til félagsmála hækka

Gjöld ríkissjóðs vegna félagsmála hækkuðu um 11,5 milljarða á milli ára og mest allra málaflokka, en um tveir þriðju hlutar allra útgjalda ríkisins fara til félagsmála.

Innlent
Fréttamynd

Skatttekjur aukast um tíund

Skatttekjur ríkisins fyrstu átta mánuði ársins voru 170 milljarðar sem er um tólf prósentum meira en á sama tímabili í fyrra. Innheimtir skattar á tekjur og hagnað einstaklinga og lögaðila námu 53,4 milljörðum króna og hækkuðu um 10,4% frá sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í Vefriti fjármálaráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Viljum aftur í skólann

Sex börn úr Lækjarskóla tóku sér stöðu við Alþingishúsið í gær með einfalda kröfu að vopni: "Við viljum aftur í skólann".

Innlent
Fréttamynd

Hissa á fjárfestingum Símans

Landssíminn ræður nú rúmum helmingshlut í sjónvarpsstöðinni Skjá einum. Allt er enn óljóst um hvort Síminn verður seldur á næstunni. Þingflokksformaður Framsóknar segist enn sem fyrr hissa á fjárfestingum Símans. Formaður Samfylkingar segir Sjálfstæðisflokkinn misnota aðstöðu sína til að ná undirtökunum á fjölmiðlamarkaði.

Innlent
Fréttamynd

Eign í stað skulda

Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, leggur til að ungt fólk geti nýtt lífeyrissparnað sinn við 25 ára aldur til húsnæðiskaupa. Ekki er um skyldusparnað að ræða heldur lífeyrisgreiðslur sem þegar eru inntar af hendi. Samhliða leggur hann til að vaxtabótakerfið verði afnumið. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Fagnar nýhugsun

Ég sé ekki betur en það sé verið að leggja til að dregið verði úr opinberum stuðningi með þessu móti en menn látnir styðja sjálfa sig þess í stað," segir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna um þær hugmyndir að ungt fólk geti notað lífeyrissparnað til húsnæðiskaupa og vaxtabótakerfið verði aflagt.

Innlent
Fréttamynd

Geðdeildum fyrir hundruð lokað

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, alþingismaður Samfylkingarinnar sagði í utandagskrárumræðum um stöðu geðfatlaðra á Alþingi í gær að geðdeildum með á annað hundrað rúmum hefði verið lokað á Landspítalanum á síðustu átta árum: "Ekkert hefur komið í staðinn til þess að mæta umönnunar- og þjónustuþörf mikið veikra sjúklinga."

Innlent
Fréttamynd

Lágtekjufólk greiðir tvo milljarða

Tuttugu og níu þúsund einstaklingar sem eru með hundrað þúsund krónur eða minna í tekjur á mánuði greiða rúma tvo milljarða í skatta á þessu ári, fyrir utan óbeina skatta. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni að þetta fólk fái lítið sem ekkert úr skattalækkun ríkisstjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Samskráning í virðisaukaskattsskrá

Geir H. Haarde fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi í gær um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Frumvarpið heimilar skattstjóra að samskrá tvö eða fleiri skráningarskyld hlutafélög og einkahlutafélög á virðisaukaskattsskrá.

Innlent
Fréttamynd

Sendiráð ESB til Íslands

Lögð hefur verið fram þingsályktunartillaga á Alþingi um að utanríkisráðherra verði falið að óska eftir við Evrópusambandið að "sendiráð" þess verði flutt til Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt ráðuneyti

Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram á Alþingi frumvarp sem gerir ráð fyrir að stofna nýtt atvinnumálaráðuneyti sem komi í stað þriggja annara, það er sjávarútvegs landbúnaðar-, sjávarútvegs-, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta.

Innlent
Fréttamynd

11 milljarðar af barnafólki

Hart var tekist á í umræðum á Alþingi í gær um barnabætur og frammistöðu Framsóknarflokksins í þeim málaflokki. Össur Skarphéðinsson, Samfylkingunni sagði að frá því Framsóknarflokkurinn settist í ríkisstjórn og til 2003 hefðu ellefu milljarðar verið "plokkaðir af

Innlent
Fréttamynd

Framsókn norður vill úr R-listanum

Félagar í Framsóknarflokknum í Reykjavík virðast í auknum mæli vilja framboð B-lista í næstu borgarstjórnarkosningum. Forystumaður vill ekki framboð undir merkjum Reykjavíkurlista.

Innlent
Fréttamynd

Skattur úr 10 í 19%

Ögmundur Jónasson, vinstri-grænum mælti í fyrradag fyrir frumvarpi til laga sem gerir ráð fyrir að fjármagnstekjuskattur hækki úr tíu í átján prósent.

Innlent
Fréttamynd

Aukin eignamyndun af hinu góða

Hugmyndin er mjög góð því hún leiðréttir þá mismunun sem námsmenn hafa búið við og felur í sér aukna eignamyndun hjá ungu fólki," segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, um þá hugmynd að ungt fólk muni geti nýtt lífeyrissparnað sinn við 25 ára aldur til íbúðakaupa.

Innlent
Fréttamynd

Kennarar læri af verkafólki

"Þeir sem standa þessa dagana í samningaviðræðum og heyja kjarabaráttu sem um margt minnir á fyrri tíma gætu lært af mönnum eins og Halldóri Björnssyni, fráfarandi formanni Starfsgreinasambandsins." Þetta sagði Árni Magnússon félagsmálaráðherra á ársfundi Starfsgreinasambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Útsvar hækki um 1%

Þingflokkur vinstri-grænna hefur lagt fram frumvarp sem felur í sér heimild til sveitarfélaga til að hækka útsvar um eitt prósentustig úr 13,03% í 14,03%.

Innlent
Fréttamynd

18 ára kaupi bjór og léttvín

Tuttugu og þrír alþingismenn úr öllum stjórnmálaflokkum hafa lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að áfengiskaupaaldur verði lækkaður úr 20 ár í 18 en þó aðeins þegar um léttvín eða bjór er að ræða

Innlent
Fréttamynd

Óréttlát stimpilgjöld

Margret Frímannsdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar lagði fram fyrirspurn til fjármálaráðherra á Alþingi í gær þar sem hún spurði um álit ráðherrans á lækkun eða afnámi stimpilgjalda. Í máli þingmannsins kom fram að Samfylkingin teldi að almenningur nyti ekki vaxtalækkunar á húsnæðislánum sem skyldi vegna "óréttlátrar skattlagningar í formi stimpilgjalda".

Innlent
Fréttamynd

Steingrímur krefst upplýsinga

Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna krafðist þess á fundi utanríkismálanefndar í gær að íslensk stjórnvöld skýrðu nefndinni frá því hvaða samtöl og eða bréfaskriftir áttu sér stað á milli íslenskra ráðuneyta og erlendra ríkisstjórna áður en ákvörðun var tekin um að Ísland yrði á lista yfir "hinar viljugu þjóðir" sem studdu innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak.

Erlent
Fréttamynd

Rússarnir ræddir í nefndinni

Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkismálaráðuneytinu, var kallaður á fund utanríkismálanefndar Alþingis sem hófst klukkan ellefu til að skýra samskipti ráðuneytisins við rússnesk stjórnvöld vegna rússnesku herskipanna á Þistilfjarðargrunni.

Innlent
Fréttamynd

Barnabætur breytast ekki

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að ekki sé gert ráð fyrir að barnabætur verði hækkaðar á næsta ári. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar, segir að forsætisráðherrann hafi síðast í fyrradag boðað slíka hækkun 2005. Alþýðusambandið segist undrandi á afstöðu Halldórs.

Innlent
Fréttamynd

Vilja landið af viljuga listanum

Þjóðarhreyfingin - með lýðræði segir Alþingi hafa verið sýnd óvirðing með ákvörðun forsætis- og utanríkisráðherra um að setja Ísland á lista stuðningsþjóða innrásarinnar í Írak án þess að ákvörðunin væri borin undir utanríkismálanefnd Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Stimpilgjöld felld niður?

Geir Haarde fjármálaráðherra segist reiðubúinn að endurskoða hvort lækka eigi eða jafnvel fella niður stimpilgjöld vegna endurfjármögnunar lána. Hann segir núverandi fyrirkomulag geta mismunað fjármálafyrirtækjum.

Innlent