Stj.mál

Fréttamynd

Kosið um 16 sameiningartillögur

Kosningar um sameiningu 61 sveitarfélags hér á landi fara fram næstkomandi laugardag. Kosið er um 16 sameiningartillögur en tillögurnar varða um 96 þúsund manns vítt og breitt um landið. Á kjörskrá eru 69.144. Fæstir eru á kjörskrá í Mjóafjarðarhreppi, eða 32, en flestir í Hafnarfirði, eða 15.570.

Innlent
Fréttamynd

Neitar lögum um meðferð fanga

George Bush Bandaríkjaforseti hyggst beita neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að lög sem fjalla um meðferð stríðsfanga taki gildi. Í brýnu gæti slegið með honum og Bandaríkjaþingi í kjölfar þess að þingið samþykkti lögin í gær.

Innlent
Fréttamynd

Tillögu um uppsögn frestað

Tillögu um að segja Ársæli Guðmundssyni, sveitarstjóra Skagafjarðar, upp störfum sem bera átti upp á sveitarstjórnarfundi í dag var frestað til næsta fundar. Að sögn Gísla Gunnarssonar, forseta sveitarstjórnar, sem hugðist bera fram tillöguna, náðist sátt um þetta eftir að Ársæll Guðmundsson, sem er fulltrúi vinstri - grænna, baðst afsökunar á orðum sínum í garð Gísla og annarra sveitarstjórnarmanna í tengslum við deilur um það að Ársæli var synjað um ferðastyrk til þess að sækja sveitarstjórnarráðstefnu í Brussel.

Innlent
Fréttamynd

Ráðherra til fundar um bensínstyrk

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að funda með forystumönnum Öryrkjabandalagsins um afnám bensínstyrks til hreyfihamlaðra öryrkja og ellilífeyrisþega eftir helgi. >

Innlent
Fréttamynd

Tekur fyrir uppsagnartillöguna

Sveitarstjórn Skagafjarðar mun í dag taka afstöðu til tillögu sem Gísli Gunnarsson, oddviti sveitarstjórnar, hyggst leggja fram um uppsögn Ársæls Guðmundssonar, sveitarstjóra Skagafjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Áreiðanleikakönnun fylgi fjárlögum

Óskað var eftir því að fjármálaráðherra pantaði áreiðanleikakönnun til að framvísa með fjárlagafrumvarpinu á Alþingi í dag og bent var á að forsendur fjárlagafrumvarpa stæðust iðulega ekki skoðun. Þá var ráðherra sakaður um auglýsingamennsku við kynningu frumvarpsins.

Innlent
Fréttamynd

Keppst um 1. sætið hjá Framsókn

Enn bætist á lista þeirra sem stefna á 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Linda Bentsdóttir, forstöðumaður hjá Frjálsa fjárfestingabankanum, hefur nú ákveðið að gefa kost á sér í sætið en hún hefur undanfarin ár starfað inna flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Ársæli verður líklega sagt upp

Allt útlit er fyrir að Ársæli Guðmundssyni, vinstri - grænum, verði sagt upp störfum sem sveitarstjóra Skagafjarðar á fundi sveitarstjórnar sem hófst upp úr klukkan fjögur.

Innlent
Fréttamynd

Bort á lyfjalögum líðst ekki

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra kvaðst líta málið mjög alvarlegum augum væri það rétt hjá landlækni að menn væru að fara á svig við lyfjalög. „Það verður ekki þolað. Við höfum haft áhyggjur af þessu í ráðuneytinu um hríð sem og landlæknisembættið og lyfjastofnun." >

Innlent
Fréttamynd

Heimildir aukist um 16 milljarða

Í frumvarpi til fjáraukalaga er lagt til að fjárheimildir ríkissjóðs verði auknar um tæpa sextán milljarða vegna ársins 2005. Þar af eru tæpir ellefu milljarðar hjá fjármálaráðuneytinu vegna fjármagnstekjukatts sem ríkissjóður greiðir og fjórir milljarðar vegna endurskoðaðrar áætlunar um afskrifaðar skattkröfur.

Innlent
Fréttamynd

Aðrar leiðir en innrás hugsanlegar

Hollenski utanríkisráðherrann, Bernard Bot, viðurkenndi í dag að hugsanlega hefði verið hægt að leysa Íraksmálið með öðrum leiðum en að senda bandarískar hersveitir í landið. Hollensk stjórnvöld studdu innrás Bandaríkjahers.

Innlent
Fréttamynd

Sumir borga en meira en aðrir

Í umræðum um frumvarp forsætisráðherra um ráðstöfun söluandvirðis Símans spurði Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hvernig og hvort ætlunin væri að innheimta veggjald af öðrum áfanga Sundabrautar. >

Innlent
Fréttamynd

Kynna tillögur vegna fuglaflensu

Tillögur að viðbrögðum íslenska ríkisins vegna hættu á að fuglaflensan verði að heimsfaraldri verða kynntar í ríkisstjórn á næstu dögum. Kostnaður við að hrinda tillögunum í framkvæmd gæti orðið á annað hundrað milljóna króna. Spánska veikin sem geisaði hér árið 1918, var fuglaflensa sem stökkbreyttist og barst í menn.

Innlent
Fréttamynd

Sameining ólíkleg á Suðurlandi

Ellefu þúsund manna sveitarfélag getur orðið til á Suðurlandi ef sex sveitarfélög í Ölfusi og Flóa ákveða að sameinast. Líkurnar á sameiningu eru þó taldar litlar.

Innlent
Fréttamynd

Tyrkir svartsýnir varðandi ESB

Þriðjungur Tyrkja er sannfærður um að landið verði aldrei samþykkt sem aðili að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í könnun sem birtist í nýjasta tímariti <em>Time</em>. Þá eru einnig færri Tyrkir á því að landinu sé betur borgið innan sambandsins nú en fyrir ári síðan.

Erlent
Fréttamynd

Reyna að liðsinna Aroni Pálma

Geir Haarde utanríkisráðherra segir að stjórnvöld ætli að skoða frekar hvað hægt verði að gera til að liðsinna Aroni Pálma Ágústssyni. Forstöðumaður Barnaverndarstofu telur að barátta stuðningsmanna Arons hér á landi hafi lítil áhrif og segir að varlega þurfi að fara að ríkisstjóranum í Texas.

Innlent
Fréttamynd

Ný stjórn hjá VGR

Ný stjórn var kjörin í Reykjavíkurfélagi Vinstri - grænna á aðalfundi félagsins í gærkvöld. Þorleifur Gunnlaugsson er formaður félagsins og með honum í stjórn eru þau Auður Lilja Erlingsdóttir, Gérard Lemarquis, Guðlaug Teitsdóttir, Guðný Hildur Magnúsdóttir, Hrafnkell Tumi Kolbeinsson og Sigríður Kristinsdóttir.

Innlent
Fréttamynd

Öryggisráðið eins og handboltamót?

Ungir Vinstri grænir hvetja til þess að framboð Íslands til Öryggsiráðs Sameinuðu þjóðanna verði dregið til baka. Þetta kemur fram í ályktun sem ungliðahreyfingin sendi frá sér í gærkvöld. Í ályktuninni segir að svo virðist sem Halldór Ásgrímsson leggi framboðið að jöfnu við þátttöku í alþjóðlegu handboltamóti.

Innlent
Fréttamynd

Skattalækkun betri en launahækkun

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir engar forsendur fyrir því að segja upp samningum á vinnumarkaði. Hann segir kaupmátt hafa aukist um 60 prósent á tíu árum og séu skattalækkanir miklu meiri kjarabót en almennar launahækkanir.

Innlent
Fréttamynd

Segir hervæðingu óskiljanlega

Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir hervæðingu Íslands með öllu óskiljanlega. Meðan skortur sé á almennri löggæslu og sakamál séu látin klúðrast vegna manneklu sé verið að eyða á annað hundrað milljónum króna í að efla sérsveitina og kaupa vopn.

Innlent
Fréttamynd

Kosið um 23 þúsund manna byggð

Í sameiningarkosningunum á laugardag taka íbúar við Eyjafjörð afstöðu til þess hvort tímabært sé að sameina öll sveitarfélögin á svæðinu, að undanskildum Grímseyjarhreppi. Þar með yrði til ríflega 23 þúsund manna samfélag við Eyjarfjörð þar sem um 70 prósent íbúanna búa á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Bæjarstjórn Bolungarvíkur klofin

Bæjarstjórn Bolungarvíkur er klofin í afstöðu sinni til vegbóta á veginum um Óshlíð. Meirihluti stjórnarinnar lagði fram bókun á fundi bæjarstjórnar í vikunni þar sem ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá því nýverið, um að hefja rannsóknarvinnu vegna jarðganga um Óshlíðarveg, er fagnað. Minnihluti bæjarstjórnar tók ekki undir þessa bókun.

Innlent
Fréttamynd

Vonbrigði yfir fjárlagafrumvarpi

Miðstjórn ASÍ lýsir yfir vonbrigðum með þá efnahags-, atvinnu- og félagsmálastefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar í ályktun sem hún sendi frá sér í dag.

Innlent
Fréttamynd

Sveitarstjóra verði sagt upp

Tillaga um að Ársæli Guðmundssyni, sveitarstjóra Skagafjarðar, verði sagt upp störfum verður lögð fram á sveitarstjórnarfundi á morgun, en það er Gísli Gunnarsson, forseti sveitarstjórnar, sem ber fram tillöguna.

Innlent
Fréttamynd

Hjalti Þór sækist eftir 1. sæti

Hjalti Þór Björnsson, dagskrárstjóri hjá SÁÁ og varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti framboðslista Framsóknarflokksins við sveitarstjórnarkosningar næstkomandi vor. Hann mun því etja kappi við Unu Maríu Óskarsdóttur sem þegar hefur boðist til að leiða lista framsóknarmanna í Kópavogi í kosningunum.

Innlent
Fréttamynd

Fjárlagafrumvarp fær falleinkunn

Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands eru sammála um að forsendur kjarasamninga séu brostnar. Framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands gefur fjárlagafrumvarpinu falleinkunn.

Innlent
Fréttamynd

Hótanirnar ganga á víxl

Hótanirnar ganga á víxl á milli stóru flokkanna í Þýskalandi. Forsvarsmenn þeirra gera nú þriðju tilraun til að ná samkomulagi um samsteypustjórn en hvorki gengur né rekur. Búist er við að viðræðurnar dragist fram í nóvember.

Innlent
Fréttamynd

Engar forsendur til uppsagnar

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir engar forsendur til að segja upp samningum á vinnumarkaði. Kaupmáttur hafi aukist um 60 prósent á tíu árum. Skattalækkanir séu miklu meiri kjarabót en almennar launahækkanir. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar mótmæltu því harðlega að allt væri í kaldakoli í efnahagsmálunum við utandagskrárumræðu í þinginu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Talaði ekki um ógn verðbólgunnar

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöldi að aukning verðbólgu umfram spár mætti alfarið rekja til hækkunar á fasteignaverði og olíuverði. Hann vék hins vegar ekki að því að verðbólgan ógnar nú vinnufriði í landinu.

Innlent