Þingkosningar í Bandaríkjunum
1 2 3 4 5 6 … 10 ›
Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Enn er óljóst með hvor flokkurinn, Repúblikanar eða Demókratar, muni vera með meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Mikil spenna ríkir í síðustu kjördæmunum þar sem úrslit liggja ekki fyrir en gífurlega mikið er í húfi. Erlent 7.11.2024 23:01
Repúblikanar ná meirihluta í öldungadeildinni Repúblikanar hafa tryggt sér meirihluta í öldungadeild Bandaríkjanna, þar sem Demókratar hafa verið með nauman meirihluta undanfarin fjögur ár. Ljóst er að Repúblikanar hafa tryggt sér að minnsta kosti 51 sæti af hundrað. Erlent 6.11.2024 06:29
Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Clay Higgins, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Louisiana birti í gær tíst sem innihélt rasísk ummæli um innflytjendur frá Haítí. Þar endurtók hann lygar Donalds Trump um fólkið um að það væri að éta gæludýr fólks og sagði þeim meðal annars að „drulla sér“ úr Bandaríkjunum. Erlent 26.9.2024 15:18
Erfiðir dagar í vændum á óreiðukenndu þingi Bandarískir þingmenn snúa aftur úr tveggja vikna páskafríi í dag, þriðjudag, en þeir standa frammi fyrir þó nokkrum umdeildum og erfiðum málum. Óreiða hefur einkennt þingið þetta kjörtímabil og þá sérstaklega í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem Repúblikanaflokkurinn hefur haft nauman og minnkandi meirihluta. Erlent 9.4.2024 08:00
Hættir óvænt á þingi: „Þessi staður snýst um deilur og vitleysu“ Ken Buck, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Colorado, tilkynnti óvænt í gærkvöldi að hann ætlaði að hætta á þingi þann 22. mars. Í viðtali í kjölfar yfirlýsingarinnar hefur hann farið hörðum orðum um Repúblikana og segir þingið hafa snúist upp í deilur og vitleysu. Erlent 13.3.2024 11:41
McConnell lætur gott heita Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ætlar ekki að gefa kost á sér aftur í leiðtogasætið eftir kosningarnar í nóvember. Enginn hefur setið lengur í embættinu en hann og hefur hann haft gífurleg áhrif á líf Bandaríkjamanna á undanförnum áratugum. Erlent 28.2.2024 18:08
Tókst að ákæra Mayorkas í annarri tilraun Repúblikönum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings tókst í gær að ákæra Alejandro N. Mayorkas, yfirmann heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, fyrir meint embættisbrot. Þetta var í annað sinn sem þeir greiddu atkvæði um ákæru og var hún samþykkt með einu atkvæði. Erlent 14.2.2024 14:13
Demókrati nældi í þingsæti Santos Demókratinn Tom Suozzi bar sigur úr býtum í baráttu um þingsæti í New York og minnkaði þar með meirihluti Repúblikana í fulltrúadeildinni enn meira. Áður hafði George Santos setið í þingsætinu en honum var vikið af þingi í byrjun desember. Erlent 14.2.2024 11:08
Óreiðan á þingi nær nýjum hæðum Óreiðan á bandaríska þinginu náði nýjum hæðum í gær. Á meðan Repúblikanar í öldungadeildinni gerðu útaf við samkomulag um hernaðaraðstoð og aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, samkomulag sem þeir höfðu krafist um mánaða skeið, guldu Repúblikanar afhroð í tveimur atkvæðagreiðslum í fulltrúadeildinni. Erlent 7.2.2024 11:49
Samkomulag loks í höfn en lokun stofnana enn möguleg Leiðtogar fulltrúa- og öldungadeildar Bandaríkjaþings lýstu því yfir í gærkvöldi að samkomulag hefði náðst um fjárlög ársins 2024. Minna en tvær vikur eru í stöðvun reksturs opinberra stofnana, verði fjárlög ekki samþykkt og er ekki ljóst hvort hægt verði að ljúka viðræðunum og samþykkja frumvarp fyrir þann tíma. Erlent 8.1.2024 11:27
Umdeild þingkona skiptir um kjördæmi Lauren Boebert, umdeild þingkona Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur lýst því yfir að hún ætli að bjóða sig fram í öðru kjördæmi á næsta ári. Andstæðingur hennar í hennar núverandi kjördæmi, Demókratinn Adam Frisch, hefur safnað mun meira fé en hún hingað til. Erlent 28.12.2023 09:53
Lygna þingmanninum sparkað af þingi Bandarískir þingmenn hafa samþykkt að víkja Repúblikananum George Santos, sem gjarnan er kallaður „lygni þingmaðurinn“ af þingi. Hann hefur verið ákærður fyrir fjársvik og fyrir að ljúga að þinginu. Erlent 1.12.2023 16:33
Vilja auka lögmæti rannsóknarinnar á Biden Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings íhuga að halda formlega atkvæðagreiðslu í næsta mánuði um rannsókn á meintum embættisbrotum Joe Biden, forseta Bandaríkjanna. Með því eru þeir sagðir vilja festa rannsóknir þeirra á forsetanum og fjölskyldu hans í sessi og gefa henni meira lögmæti. Erlent 1.12.2023 08:01
Sagður nota hvert tækifæri til að auðgast persónulega Bandaríski þingmaðurinn George Santos, sem gjarnan er kallaður „lygni þingmaðurinn“ vegna ítrekaðra og umfangsmikilla lyga hans, tilkynnti í gær að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri í forsetakosningunum á næsta ári. Það gerði hann í kjölfar þess að siðferðisnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings birti harðorða skýrslu um hann. Erlent 17.11.2023 13:01
Þingmaður reyndi að slást við nefndargest Markwayne Mullin, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá Oklahoma, reyndi í gær að fá Sean O‘Brien, forstöðumann stórs verkalýðsfélags í Bandaríkjunum, til að slást við sig á nefndarfundi. Mennirnir tveir vörðu um sex mínútum í að móðga hvern annan á meðan Bernie Sanders, formaður þingnefndarinnar, reyndi að fá þá til að hætta. Erlent 15.11.2023 11:31
Hefur lengi barist gegn réttindum „ónáttúrulegs“ hinsegin fólks Mike Johnson, nýr forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, mun koma að því að staðfesta úrslit forsetakosninga sem haldnar verða í nóvember á næsta ári. Það er þrátt fyrir að hann hafi hjálpað til við að reyna að snúa úrslitum síðustu forsetakosninga. Erlent 27.10.2023 11:15
Tilnefndu tvo á einungis tíu tímum Þingflokkur Repúblikanaflokksins hefur á einungis tíu klukkustundum tilnefnt tvo menn til embættis þingforseta fulltrúadeildarinnar. Tom Emmer var kjörinn úr hópi níu frambjóðenda í gær en hann hætti við framboðið eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseti og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, gagnrýndi hann opinberlega. Erlent 25.10.2023 12:00
Morðhótunum rignir yfir leiðtogalausa Repúblikana Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings greiddu í dag atkvæði gegn því að gera Jim Jordan að þingforseta. Þetta var í þriðja sinn sem þingmenn höfnuðu honum og lá í raun fyrir áður en atkvæðagreiðslan fór fram að hann yrði ekki þingforseti. Erlent 20.10.2023 15:20
Fékk færri atkvæði í seinna skiptið en vill reyna aftur, aftur Hinn umdeildi bandaríski þingmaður Jim Jordan gerði aðra atrennu að embætti forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær. Hann fékk þó færri atkvæði en í fyrstu atkvæðagreiðslunni og þrátt fyrir það vill hann reyna aftur. Erlent 19.10.2023 11:09
Tuttugu Repúblikanar greiddu atkvæði gegn Jordan Tuttugu þingmenn Repúblikanaflokksins greiddu í gær atkvæði gegn því að Jim Jordan yrði næsti forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Jordan er þó borubrattur og stefnir á aðra atkvæðagreiðslu seinna í dag. Erlent 18.10.2023 12:10
Bein útsending: Jordan gerir atrennu að embætti þingforseta Þingmenn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings greiða í dag atkvæði um hvort Jim Jorda, Repúblikani, verði næsti forseti fulltrúadeildarinnar. Útlit er fyrir að Jordan hafi ekki tekist að tryggja sér nægilega mörg atkvæði úr eigin þingflokki. Erlent 17.10.2023 15:01
Tilnefna Steve Scalise Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa tilnefnt Steve Scalise til embættis þingforseta. Þingmaðurinn Jim Jordan, sem einnig sóttist eftir embættinu, hefur lýst yfir stuðningi við Scalise. Erlent 11.10.2023 19:00
Sundraðir Repúblikanar gefa sér viku Átta Repúblikanar, af 220 í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, veltu Kevin McCarthy, fyrrverandi forseta fulltrúadeildarinnar, úr sessi í gærkvöldi. Þetta eru margir af sömu þingmönnunum og komu lengi í veg fyrir að hann yrði forseti í upphafi kjörtímabilsins. Erlent 4.10.2023 13:32
McCarthy steypt af stóli í sögulegri atkvæðagreiðslu Kevin McCarthy, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur verið vikið úr embætti sínu eftir atkvæðagreiðslu sem fram fór í dag í kjölfar vantrauststillögu sem lögð var fram á hendur honum í gær. Erlent 3.10.2023 22:32
Örlög McCarthy ráðast líklega í dag Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sagði þingflokki Repúblikanaflokksins í dag að atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu gegn honum fari fram seinnipartinn. Greiði allir Demókratar atkvæði með tillögunni geta einungis fimm Repúblikanar velt McCarthy úr sessi. Erlent 3.10.2023 15:30
Lokun stofnana vestanhafs virðist óhjákvæmileg Ekkert virðist geta komið í veg fyrir lokun opinberra stofnana í Bandaríkjunum. Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildarinnar, þvertekur fyrir að frumvarp frá öldungadeildinni um fjármögnun ríkisrekstursins verði tekið fyrir í fulltrúadeildinni en harðlínumenn í Repúblikanaflokknum eru sagðir ætla sér að velta McCarthy úr sessi. Erlent 29.9.2023 15:59
Dianne Feinstein, elsti öldungadeilarþingmaðurinn, er látin Dianne Feinstein, elsti öldungadeildarþingmaður Bandaríkjanna, er látin. Feinstein ruddi marga múra niður fyrir konur á sínum langa ferli í stjórnmálum en hún var níutíu ára gömul og hafði glímt við veikindi. Hún er sögð hafa dáið á heimili sínu í gærkvöldi. Erlent 29.9.2023 14:48
Lítið nýtt á „hörmulegum“ fundi um Biden Repúblikanar héldu í gær fyrsta nefndarfundinn um rannsókn þeirra á Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, varðandi mögulega ákæru fyrir embættisbrot. Fundurinn stóð yfir í rúma sex tíma en ekkert nýtt kom fram sem gaf til kynna að Biden hefði brotið af sér í starfi eða væri sekur um spillingu. Erlent 29.9.2023 11:04
McCarthy enn í gíslingu uppreisnarmanna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings er enn lömuð vegna uppreisnar hóps fjar-hægri þingmanna Repúblikanaflokksins. Einungis fimm dagar eru í að stöðva þarf rekstur ríkisins, finnist ekki samkomulag um fjárlagafrumvarp. Erlent 26.9.2023 10:04
McCarthy í basli og þingið lamað Kevin McCarthy, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, mistókst í gær að koma frumvarpi um fjárveitingar til varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna í gegnum þingið. Hópur öfgafullra þingmanna Repúblikanaflokksins kom í veg fyrir að frumvarpið yrði tekið til umræðu og er útlit fyrir algera lömun á þingi. Erlent 20.9.2023 13:53