Vance biðlar til ungra reiðra manna Samúel Karl Ólason skrifar 9. október 2026 19:42 JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur gerður út af örkinni til að ná til ungra manna í Bandaríkjunum, sem eru margir reiðir ríkisstjórn Trumps. AP/Sameul Corum Af þeim hópum kjósenda sem skiptu hvað mestu máli við að koma Donald Trump aftur til valda voru ungir menn meðal þeirra áhrifamestu. Margir þeirra segjast hins vegar hafa snúið baki við Trump og hafa lýst yfir reiði í garð ríkisstjórnar hans vegna stríðsins gegn Íran, hækkandi verðlags og annarra atriða. Repúblikanar telja þó að hægt sé að ná til þeirra og að gífurlega mikilvægt sé að ná þeim aftur á kjörstað í þingkosningunum í næsta mánuði.
Miklu púðri hefur að undanförnu verið varið í að ná til ungra bandarískra manna og hefur JD Vance varaforseti verið fenginn sérstaklega í það verkefni. Undanfarna daga hefur Vance meðal annars stært sig af árangri ríkisstjórnarinnar í að berjast gegn því sem hann hefur kallað kerfisbundna mismunun gegn ungum hvítum mönnum í Bandaríkjunum, farið í hlaðvarp Joe Rogan og talað um blandaðar bardagalistir og einnig reynt að sefja reiði fólks með því að vísa til Charlies Kirk sem dæmi um mann sem sagði sig ekki frá pólitík þó hann hafi verið á móti aðgerðum ríkisstjórnarinnar gegn Íran, eins og farið er yfir í grein Politico. Það hvort Vance takist ætlunarverk sitt er talið skipta gífurlegu máli fyrir Repúblikana og þá sérstaklega í ríkjum þar sem kannanir benda til harðrar keppni um öldungadeildarsæti í kosningunum. Á það sérstaklega við í ríkjum eins og Alaska og Texas. Kannanir benda til þess að naumur munur sé á frambjóðendum í þeim ríkjum og þar að auki eru þau meðal yngstu ríkja Bandaríkjanna. Þetta skiptir Vance sjálfan einnig máli en hann er einnig að leggja grunninn að sínu eigin forsetaframboði í kosningunum 2028. Politico hefur eftir nokkrum aðilum innan ríkisstjórnarinnar að þeir efist um að Vance muni hafa það mikil áhrif að það skipti máli fyrir Repúblikanaflokkinn. Reiðin í garð ríkisstjórnarinnar sé það mikil meðal ungra manna. „En hann getur samt reynt það, ekki satt?“ sagði einn. Sá benti á að varaforsetinn gæti hjálpað til en í senn væri hann að auka eigið vægi í stjórnmálunum vestanhafs og skapa sér stærri sess í hugum kjósenda. Einn heimildarmaður miðilsins benti þó á að kannanir sýndu að Marco Rubio, utanríkisráðherra og væntanlegur mótframbjóðandi Vance í baráttunni um tilnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar, njóti töluvert meira fylgis meðal manna sem eru yngri en þrítugir. Kjósendur Trumps ólíklegri til að mæta Sterk hefð er fyrir því að flokkur þess forseta sem er við völd komi illa út úr þingkosningum á miðju forsetakjörtímabili. Aðstæður virðast þó sérstaklega slæmar fyrir Repúblikana þetta árið, ef marka má kannanir. Trump mælist sögulega óvinsæll en Demókratar þykja sérstaklega líklegir til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni og gætu jafnvel náð einnig meirihluta í öldungadeildinni, fari allt á besta veg fyrir þá. Til þessa þykja sigrar í Alaska og Texas sérstaklega mikilvægir. Reuters gerði nýlega könnun sem sýndi að kjósendur sem kusu Trump árið 2024 segjast mun ólíklegri til að fara á kjörstað en kjósendur sem kusu Kamölu Harris. Einungis þrjátíu prósent þeirra sem sögðust hafa kosið Trump síðast sögðust „mjög spenntir“ fyrir því að kjósa þann 3. nóvember næstkomandi. Hjá þeim sem kusu Harris síðast var hlutfallið hins vegar 48 prósent. Þá benda niðurstöður könnunarinnar til þess að karlar séu bæði líklegri til að kjósa en konur og hafi færst nær Demókrataflokknum. Heilt yfir segir í grein Reuters að þeir sem kusu Trump séu mun líklegri til að kjósa Repúblikana í þingkosningunum og kjósendur Harris séu mun líklegri til að kjósa Demókrata. Niðurstöðurnar benda þó til þess að áhuginn sé meiri hjá þeim sem hyggjast kjósa Demókrata. „Þetta er innan skekkjumarka“ Þó kannanir hafi á undanförnum vikum gefið til kynna að aðstæður séu sérstaklega góðar fyrir Demókrata hafa þær reynst nokkuð óáreiðanlegar á undanförnum árum. Staðan gæti ekki verið eins björt og Demókratar vonast eftir. Fyrr í vikunni sagði Barack Obama, fyrrverandi forseti Demókrataflokksins, að í mörgum ríkjum og kjördæmum mældist forskot Demókrata einungis tvö til þrjú prósentustig. „Við gætum endað á því að tapa öllum þessum sætum með tveimur stigum,“ sagði Obama á fjáröflun á miðvikudaginn samkvæmt frétt New York Times. „Þetta er innan skekkjumarka.“ Kjördæmastríðið svokallaða, þegar Repúblikanar byrjuðu að endurteikna kjördæmi víða í Bandaríkjunum þar sem þeir ráða ríkjum, hafði líka töluverð áhrif. Yfirlýst markmið Repúblikana var að bæta stöðu þeirra fyrir komandi kosningar og reyndu Demókratar að svara fyrir sig í ríkjum sem þeir stjórna. Það skilaði þó ekki jafn góðum árangri og viðleitni Repúblikana, sem tókst að bæta stöðu sína töluvert. Þá hafa Repúblikanar gífurlegt forskot þegar kemur að peningum og hafa burði til að kaupa gífurlegt magn auglýsinga í aðdraganda kosninganna.
Bandaríkin Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Fleiri fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Sjá meira