Chelsea FC

Chelsea FC

Fréttir af enska fótboltaliðinu Chelsea FC frá London.

Fréttamynd

Ó­hugnan­legt at­vik á Brúnni

Jes­se Derry, leik­maður enska úr­vals­deildar­félagsins Chelsea er á bata­vegi eftir að hafa hlotið þungt höfuðhögg í leik gegn Notting­ham For­est í dag og í kjölfarið fluttur á sjúkra­hús.

Enski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Forest skellti Chelsea

Nottingham Forest fór langt með að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni með 1-3 útisigri á Chelsea í dag. Forest er sex stigum frá fallsæti þegar þremur umferðum er ólokið. Chelsea hefur tapað sex deildarleikjum í röð.

Enski boltinn
Fréttamynd

„Hann var grátandi í hálf­leik“

Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði frá því að Brasilíumaðurinn Estevao hefði verið í tárum í hálfleik eftir að hafa neyðst til að fara af velli vegna meiðsla snemma í tapi liðsins gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á laugardagskvöldið.

Enski boltinn
Fréttamynd

„Ég elska það sem ég er að gera“

Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, var himinlifandi með 1-0 útisigur á Chelsea í kvöld en eftir hann er United tíu stigum fyrir ofan sjötta sætið og steig því með þessum þremur stigum risaskref í átt að Meistaradeildarsæti á næstu leiktíð.

Enski boltinn
Fréttamynd

Chelsea flaug á­fram í undan­úr­slit

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea átti ekki í vandræðum með C-deildar lið Port Vale er liðin mættust í átta liða úrslitum enska bikarsins í dag. Lokatölur urðu 7-0 Chelsea í vil. Lærisveinar Liam Rosenior eru komnir áfram í undanúrslit bikarsins. 

Enski boltinn
Fréttamynd

Verður Kepa aftur skúrkurinn?

„Ég hefði tekið hann út af með handafli,“ sagði John Terry, fyrrverandi fyrirliði Chelsea, í setti Sky Sports eftir tap Chelsea fyrir Manchester City í úrslitum deildabikarsins árið 2019. Þar er rætt um Kepa Arrizabalaga, þáverandi markvörð Chelsea, sem var skúrkurinn í þeim leik . Hann mætir City aftur í dag í úrslitaleik keppninnar.

Enski boltinn