Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran

Fréttamynd

Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu

Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Þrír banda­rískir her­menn fallnir í á­tökum við Íran

Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila.

Erlent
Fréttamynd

Ís­lendingar óska eftir að­stoð

Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hefur nokkur fjöldi íslenskra ríkisborgara á áhrifasvæðum í Miðausturlöndum haft samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins. Þeim hafi verið veittar upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni.

Innlent
Fréttamynd

Gerir stólpa­grín að Von der Leyen

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gerir stólpagrín að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem tilkynnti í gær að hún hefði boðað til fundar í öryggisráði ESB.

Erlent
Fréttamynd

Hefja skot­hríð á „hjarta“ Teheran

Ísraelsher segist aftur hafa hafið loftárás á skotmörk djúpt inni í írönsku höfuðborginni Teheran, rúmum sólarhringi eftir að herinn felldi æðstaklerk Írans í samvinnu með Bandaríkjunum. Íranir hafa skotið flugskeytum í átt að nágrannaríkjum í nótt til að hefna æðstaklerksins.

Erlent
Fréttamynd

Klerkurinn felldur í fyrstu lotu

Íranir heita hefndum eftir að fjöldi háttsettra manna, þar á meðal æðsti leiðtogi landsins, var felldur í árásum Ísraels og Bandaríkjanna í gær. Ísraelsmenn segjast hafa drepið æðstaklerkinn í fyrstu sprengjuhríðinni í gær, sem lagði aðsetur hans í eyði. 

Erlent
Fréttamynd

Stríðið muni halda á­fram út vikuna

Þrátt fyrir að æðstiklerkur Írans sé sagður látinn hyggjast Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn halda árásum á Íran áfram í einhverja daga. Meint andlát Ayatollah Ali Khamenei þarf ekki að jafngilda hreinum stjórnarskiptum í Íran. En hver tekur þá við?

Erlent
Fréttamynd

Trump: Khamenei látinn

Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Þetta segir Bandaríkjaforseti en aðsetur Khamenei í Teheran var lagt í rúst í árásunum í dag.

Erlent
Fréttamynd

Segir á­hyggju­efni að leik­reglur séu virtar að vettugi

Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, setur spurningamerki við réttlætingu Bandaríkjanna og Ísrael fyrir árásum á Íran. Það séu vonbrigði að farið sé á svig við alþjóðalög og erfitt sé að ráða í umfang og árangur aðgerðanna á þessum tímapunkti, svo stuttu eftir að þær hófust. Íranski herinn hefur sagst ætla að kenna Bandaríkjunum og Ísrael „sögulega lexíu“ en Erlingur segir eftir að koma betur í ljós hver viðbrögð Írana verða með gagnárásum.

Innlent
Fréttamynd

Ísrael og Banda­ríkin ráðast á Íran

Hið minnsta tvö hundruð eru taldir látnir eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu árás á Íran í morgun. Ísraelsríki segir árásina fyrirbyggjandi og Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að æðstiklerkur Írana hafi verið felldur. Vísir færir ykkur nýjustu fréttir í vaktinni hér að neðan.

Erlent
Fréttamynd

Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir

Steve Witkoff, sérlegur sendifulltrúi Donald Trump Bandaríkjaforseta, segir forsetann ekkert botna í því hvers vegna Íranir hafa ekki gefið eftir í samningaviðræðum við Bandaríkjamenn, þrátt fyrir þann hernaðarmátt sem Bandaríkin hafa byggt upp á svæðinu á síðastliðnum vikum.

Erlent
Fréttamynd

Við­búnaðurinn ekki verið eins mikill frá inn­rásinni í Írak

Bandaríkjamenn hafa ekki haft jafn mikinn viðbúnað í háloftunum og getu til loftárása í Mið-Austurlöndum frá árinu 2003, þegar innrás var gerð í Írak. Búið er að senda gífurlegan fjölda herþota og stuðningsflugvéla á svæðið, auk tveggja flugmóðurskipa og fjölda annarra herskipa.

Erlent
Fréttamynd

„Stjórinn“ að fá nóg og líkur á á­rásum

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er líklegri en ekki til að hefja stríð gegn klerkastjórninni í Íran og slíkt stríð gæti hafist á næstunni. Árásir yrðu umfangsmiklar og stæðu líklega yfir í að minnsta kosti nokkrar vikur. Trump er sagður vera að missa þolinmæðina gagnvart klerkastjórninni.

Erlent
Fréttamynd

Skutu eld­flaugum á Hormuz-sund þegar við­ræður hófust

Yfirvöld í Íran tilkynntu í dag að Homuz-sundi hafi verið lokað og það yrði lokað í nokkrar klukkustundir vegna heræfinga. Eldflaugum hefur verið skotið út á sundið í þessum æfingum, sem eru haldnar á sama tíma og bandarískir og íranskir erindrekar funda í Genf. Bandaríkjamenn hafa hótað árásum á Íran, semji klerkastjórnin ekki um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni.

Erlent
Fréttamynd

Reyna að stöðva ein á­tök og koma í veg fyrir önnur

Úkraínskir, bandarískir og rússneskir embættismenn eiga að hittast í Genf í Sviss í dag og ræða mögulega leið að friði. Ekki eru þó miklar væntingar á kreiki um að fundurinn muni reynast afdrifaríkur en þetta er í þriðja sinn sem erindrekar ríkjanna þriggja koma saman á þremur vikum.

Erlent
Fréttamynd

Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda

Bandaríkin eru að senda stærsta flugmóðurskip heimsins aftur til Mið-Austurlanda. Þá verða tvö slík skip og öflugir fylgiflotar þeirra á svæðinu á sama tíma og Donald Trump er að reyna að þvinga klerkastjórn Íran til að semja um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni.

Erlent