Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ Eiður Þór Árnason skrifar 14. júní 2026 20:11 Trump hefur ítrekað lýst því yfir að samkomulag sé svo gott sem í höfn. Getty/Samuel Corum „Af hverju í andskotanum þurfti Bibi að gera árás? Ég varð svo brjálaður. Ég lét hann vita af því. Hann hefur enga helvítis dómgreind. Ég sagði honum það.“ Þetta segir Donald Trump Bandaríkjaforseti um árás Ísraelshers á Líbanon í dag og samtal sem hann átti við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í kjölfarið.
Árásin hefur flækt friðarviðræður Íran og Bandaríkjanna en Trump fullyrðir að áfram sé stefnt að því að skrifa undir samkomulag í dag. Þrír eru sagðir látnir og fimmtán særðir í úthverfum Beirút, höfuðborgar Líbanon, eftir árás Ísraels sem Bandaríkjaforseti segir hafa komið klukkutíma áður en til stóð að undirrita friðarsamkomulag. Þetta kemur fram í frétt Axios. Trump er nú sagður keppast við að bjarga viðræðunum sem voru settar í uppnám með árás Ísraels, að sögn fulltrúa Íran. Íran hefur nú hótað hefndum. Verði ekki liðið Ritari æðstu öryggisstofnunar Íran hefur sagt að viðbrögð þeirra við árás Ísraels á suðurhluta Beirút „séu yfirvofandi“. Í yfirlýsingu sem íranskir fjölmiðlar birta kallar Mohammad Bagher Zolghadr, fulltrúi þjóðaröryggisráðs landsins, Líbanon „lífæð“ Íran og segir að „brot á rauðum línum Íslamska lýðveldisins verði ekki liðin“. BBC greinir frá þessu. Íran hefur ítrekað haldið því fram að hvers kyns samningur við Bandaríkin verði einnig að fela í sér endalok stríðsins í Líbanon. Á sama tíma hafa yfirvöld í Ísrael sagt þetta aðskilin átök og vilja halda áfram árásum á Hezbollah sem nýtur stuðnings Íran. Bandaríkin beri einnig ábyrgð á árásinni Íran hefur sagt í kjölfar árásar Ísraels á Beirút að Bandaríkin beri „beina ábyrgð“ á þeim „glæpum“ sem Ísrael fremji. Utanríkisráðuneyti Íran segir í yfirlýsingu að það „fordæmi harðlega“ árásina, sem sé „augljóst brot á fullveldi Líbanons“. Það bætir við að árásin sé „gróft brot“ á vopnahléssamkomulaginu milli Írans og Bandaríkjanna, að því er fram kemur í umfjöllun BBC. Bandaríkin eru sögð bera beina ábyrgð á „vopnahlésbrotum“ Ísraels og utanríkisráðuneyti Íran „ítrekar að það er staðráðið í að grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að nýta rétt sinn til lögmætrar sjálfsvarnar“. Ísrael hefur sagt að árásin hafi beinst að stjórnstöð Hezbollah í líbönsku höfuðborginni. Trump í áfalli Trump sagðist hafa orðið fyrir áfalli þegar ráðgjafar hans hringdu til að upplýsa hann um árás Ísraels í Beirút og hann hafi verið ævareiður út í forsætisráðherra Ísraels, að sögn Axios. „Þetta er svo slæmt – ég trúði þessu ekki. Klukkutíma áður en við áttum að undirrita samninginn.“ Trump tekur undir með Ísrael að Hezbollah í Líbanon hafi fyrst ráðist á Ísrael en lagði áherslu á að sú árás hefði ekki valdið neinum skemmdum eða orðið neinum að bana. „Þetta hristi upp í hlutunum. Þetta seinkaði undirrituninni um nokkra klukkutíma. Hún átti að vera núna. Nú er hún áætluð eftir nokkra klukkutíma,“ sagði Trump í samtali við fréttamann Axios. Fréttin hefur verið uppfærð.
Íran Bandaríkin Ísrael Líbanon Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Tengdar fréttir Friðarviðræður sagðar í uppnámi Aðalsamningamaður Íran sagði friðarviðræður við Bandaríkin í uppnámi eftir nýjustu loftárás Ísraela á Beirút, höfuðborg Líbanon. Þrír eru látnir og fimmtán særðir í úthverfum borgarinnar eftir árásina, að sögn yfirvalda í Líbanon. Þá hafa byggingar og verslanir orðið fyrir umtalsverðum skemmdum. 14. júní 2026 17:04 Vonast til þess að fá friðarsamkomulag í afmælisgjöf Donald Trump, Bandaríkjaforseti og afmælisbarn dagsins, segir að samkomulag um endalok átaka Bandaríkjanna og Írans verði undirritað í dag en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma. 14. júní 2026 12:40 „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 13. júní 2026 12:38 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira
Friðarviðræður sagðar í uppnámi Aðalsamningamaður Íran sagði friðarviðræður við Bandaríkin í uppnámi eftir nýjustu loftárás Ísraela á Beirút, höfuðborg Líbanon. Þrír eru látnir og fimmtán særðir í úthverfum borgarinnar eftir árásina, að sögn yfirvalda í Líbanon. Þá hafa byggingar og verslanir orðið fyrir umtalsverðum skemmdum. 14. júní 2026 17:04
Vonast til þess að fá friðarsamkomulag í afmælisgjöf Donald Trump, Bandaríkjaforseti og afmælisbarn dagsins, segir að samkomulag um endalok átaka Bandaríkjanna og Írans verði undirritað í dag en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma. 14. júní 2026 12:40
„Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 13. júní 2026 12:38