Fjárlagafrumvarp 2027 „
Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Gunnar Helgason rithöfundur segir að það sé verið að búa til „samfélag hálfvita“ þegar framlög til Bókasafnssjóðs séu skorin niður. Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi verður Bókasafnssjóður skorinn niður úr 224,5 milljónum í 142,3. Hann segir þetta koma niður á barnabókahöfundum sérstaklega en þeir standi aðeins jafnfætis öðrum höfundum þegar kemur að greiðslum úr sjóðnum. Innlent 8.9.2026 09:35
„Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir boðuð fjárlög ekki senda góð skilaboð inn í kjaraviðræður. Þungt hljóð sé í atvinnurekendum vegna efnahagsástandsins og boðaðar skattahækkanir hjálpi ekki til. Innlent 7.9.2026 21:28
„Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Rithöfundar og listamenn eru hvumsa yfir því að gert sé ráð fyrir því að framlög til bókasafnssjóðs verði skorin niður samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Formaður Rithöfundasambands Íslands segir þetta munu bitna mest á viðkvæmasta hópi rithöfunda. Innlent 7.9.2026 18:33
Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Frábært hjá ríkinu að ætla að skila hallalausum fjárlögum, það er löngu tímabært og núllið á spjaldinu var flott sjónvarpsefni. En til að núllið gangi upp, á nú að sækja 9 milljarða til viðbótar í ferðaþjónustuna, og þegar hækkun kílómetragjalds er talin með er reikningurinn nær 10 til 11 milljörðum. Um helmingur allrar nýrrar tekjuöflunar frumvarpsins er þannig sóttur í eina atvinnugrein. Skoðun 7.9.2026 18:00
Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Ríkisstjórnin leggur til að 21 milljarður króna fari í barnabætur árið 2027, sömu fjárhæð og í ár. Á sama tíma á að hækka ýmis krónutölugjöld ríkisins um 5,2 prósent. Innlent 7.9.2026 16:58
Klórar sér í kollinum Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands segist klóra sér í kollinum yfir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Hann segir að við fyrstu sýn virðist frumvarpið gera lítið fyrir kjomandi kjaraviðræður, áhrif á persónuafslátt og barnabætur séu sérlega vond. Innlent 7.9.2026 15:35
Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkissjóður fær 3,1 milljarði króna meira í tekjuskatt árið 2027 en ef núverandi regla héldi sér. Innlent 7.9.2026 14:54
Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárlagafrumvarpið þegar hafa haft áhrif á skuldabréfamarkaðinn. Fjárfestar verðleggi nú meiri verðbólgu á næsta ári en fyrir helgi. Gjaldahækkanir ríkisins valdi vonbrigðum og sendi röng skilaboð þegar kjarasamningar eru til endurskoðunar. Viðskipti innlent 7.9.2026 14:14
Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Framkvæmdastjóri Samtaka í ferðaþjónustu segir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár fela í sér reiðarslag fyrir ferðaþjónustu á Íslandi en stór hluti tekjuaukningar ríkisins kemur frá ferðaþjónustunni. Aukin skattheimta séu gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí,“ sem nemi helmingi heildarafkomu greinarinnar árið 2024. Viðskipti innlent 7.9.2026 14:03
Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða Dregið verður úr framlögum til Loftslags- og orkusjóðs um 3,2 milljarða króna á næsta ári ef fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar verður samþykkt óbreytt. Niðurskurðurinn nemur ríflega helmingi þeirra rafbílastyrkja sem sjóðurinn útdeildi í fyrra. Innlent 7.9.2026 13:24
„Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár fela í sér þyngri byrðar á bæði fjölskyldur og fyrirtæki. Hærri álögur komi ekki í stað varanlegs aðhalds í ríkisrekstri. Innlent 7.9.2026 13:21
„Hvar ætla þau þá að spara?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja jákvætt að ríkisstjórnin stefni að hallalausum ríkisrekstri en segja að það hangi á bláþræði hvort það muni takast og óttast að áætlanir muni ekki halda. Þá segist þingmaður Miðflokksins óljóst hvar skera eigi niður á meðan þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir bankaskatt eiga eftir að bitna mest á skuldurum. Innlent 7.9.2026 12:58
Fjárfestar veðja á meiri verðbólgu en áður eftir kynningu á fjárlagafrumvarpi Þrátt fyrir áform um hallalausfjárlög á komandi ári, sem nemur 0,1 prósenti af landsframleiðslu, hafa skuldabréfafjárfestar tekið fremur illa í fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar en verðbólguvæntingar á markaði hafa hækkað umtalsvert í morgun. Fjármálaráðherra boðar að aðhaldsstig ríkisfjármálanna, sem er áætlað lítillega neikvætt á þessu ári, verði „allnokkuð“ en samhliða því er útlit fyrir að hreinn lánsfjárjöfnuður batni umtalsvert á árinu 2027. Innherji 7.9.2026 12:43
Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Uppstilling ríkisstjórnarinnar við kynningu fjárlagafrumvarpsins í morgun var nánast eftirmynd af uppátæki sem Bill Clinton bauð upp á í Hvíta húsinu fyrir 28 árum. Innlent 7.9.2026 12:14
Flokkur fólksins og fjárlögin Það er mikið fagnaðarefni að okkar ágæti fjármálaráðherra Daði Már Kristófersson skuli nú leggja fram frumvarp til fjárlaga með fimm milljarða króna afgangi. Þetta er liðlega 30 milljarða viðsnúningur frá fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram fyrir ári. Skoðun 7.9.2026 11:30
Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Ríkisstjórnin hyggst kynna nýja gjaldtöku á ferðamannastöðum sem felur í sér að ferðamenn verða rukkaðir um sérstakan aðgöngumiða. Fjármálaráðherra segir um að ræða fyrirkomulag sem þekkist víða annars staðar en með þessu á að afla fimm milljarða króna til ríkissjóðs. Viðskipti innlent 7.9.2026 10:52
Fær að setja þessar fasteignir á sölu Nýtt fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra veitir honum heimild til að selja fjölda fasteigna, þar á meðal húsnæði lögreglunnar við Hverfisgötu, húsnæði Listaháskólans og Tollhúsið. Innlent 7.9.2026 10:30
Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Áformað er að hækka bankaskatt úr 0,145 prósentum í 0,254 prósent eða því sem nemur rúmlega 75 prósenta hækkun í nýju fjárlagafrumvarpi. Með þessu er áformað að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs. Viðskipti innlent 7.9.2026 10:27
Kílómetragjaldið hækkar Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti. Innlent 7.9.2026 10:15
Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Fjármála- og efnahagsráðherra boðar jákvæða afkomu upp á fimm milljarða í nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027. Viðskipti innlent 7.9.2026 09:22
Halla boðar til ríkisráðsfundar Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til fundar á Bessastöðum í dag venju samkvæmt. Alþingi verður sett á ný á morgun. Innlent 7.9.2026 08:28
Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár í beinni útsendingu. Útsendinguna auk textalýsingar frá fundinum má finna neðst í fréttinni. Innlent 7.9.2026 08:01