Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. september 2026 23:50 Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, segir ljóst að ríkissjóður búi yfir takmörkuðum fjármunum. Vísir/Vilhelm Ný fjárframlög vöktu upp blendnar tilfinningar hjá Runólfi Pálssyni, forstjóri Landspítalans. Óumdeilt sé að fjárframlög spítalans hafi ekki haldið í við þjónustuaukningu.
Þetta kemur fram í grein Runólfs í Spítalapúlsinum. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti nýtt fjárlagafrumvarp fyrir komandi ár fyrr í mánuðinum. „Svo virðist sem herða eigi áfram aðhaldsaðgerðir á opinberar stofnanir og er spítalinn ekki undanskilinn því. Ég óttast að þessi ráðstöfun muni hefta nauðsynlega framþróun innan Landspítala og þannig óhjákvæmilega leiða til stöðnunar,“ segir Runólfur. Nú þegar standi Landspítalinn höllum fæti í samanburði við háskólasjúkrahúsin á Norðurlöndunum og sjái hann fram á að dragast enn frekar aftur úr ef heldur sem horfir. Það sé varhugaverð staða fyrir eina háskólasjúkrahús landsins. Brýnt að skoða nýtingu fjármuna „Ljóst er að fjármögnun á grundvelli þjónustutengdrar fjármögnunar hefur ekki verið í samræmi við veitta þjónustu, líkt og slíkri fjármögnun er ætlað, og því má segja að raunveruleiki fastrar fjármögnunar sé enn við lýði,“ segir Runólfur. Fengi spítalinn greitt fyrir unnin verk líkt og þjónustutengd fjármögnun gerir ráð fyrir stæði rekstur spítalans vel. Staðan er ekki sú. „Leita þarf allra mögulegra leiða til að standa betur að þróun Landspítala til framtíðar.“ Þrátt fyrir að nýr meðferðarkjarni og rannsóknarhús rísi óðum við Hringbraut telur hann það ekki duga til þess að Landspítalinn verði öflugt háskólasjúkrahús í framtíðinni. Sýna þurfi því skilning að ríkissjóður búi yfir takmörkuðum fjármunum. „Af þeim sökum er brýnt að skoða nýtingu allra þeirra fjármuna sem veittir eru til heilbrigðisþjónustunnar og meta hvort tækifæri séu til hagræðingar sem gæti komið að notum fyrir Landspítala því þótt skórinn kreppi víða þá er nauðsynlegt að standa vörð um þjónustu eina háskólasjúkrahúss þjóðarinnar,“ segir Runólfur. „Í því skyni verður að leggja höfuðáherslu á að efla skipulag þjónustu og nýtingu mannauðs þvert á heilbrigðisþjónustuna með hliðsjón af forgangsröðun verkefna.“ Bjartar hliðar á slæmri stöðu Þrátt fyrir að rekstrarstaðan sé líkt og Runólfur lýsir sé það kærkomin breyting að betri staða sé komin á bráðaþjónustu spítalans. Einnig sé fækkun sjúklinga með samþykkt færni- og heilsumat mikilvægur og langþráður áfangi. Ný bráðamatsdeild var sömuleiðis opnuð í dag og á henni eru tuttugu legurými. Bundnar eru vonir við að vinnan sem farið hefur í endurskipulagningu bráðaþjónustunnar skili tilætluðum árangri. „Þrátt fyrir erfiða rekstrarstöðu er tilefni til að minna á og lyfta fram því gríðarlega góða starfi sem unnið er á Landspítalanum á hverjum degi. Afburðastarfsfólk er ekki með hugann við áskoranir í rekstri þegar það sinnir sjúkum og slösuðum. Þvert á móti eru umhyggja og fagmennska jafnan leiðarljós í þeim störfum og segja má að þar liggi sérstaðan í starfsemi spítalans,“ segir Runólfur. „Starfsfólk Landspítala er einstakt og er samfélaginu ómetanlegt. Því megum við sjálf ekki gleyma.“
Landspítalinn Fjárlagafrumvarp 2027 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira