Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar
Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að svara verði því í hvaða umboði fyrrverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga hafi sent skilaboðin umdeildu þar sem honum voru gefnir tveir kostir, afsögn eða stríð. Þingmaður Samfylkingarinnar segir merkilegt að einkaskilaboð milli fólks séu til umræðu í pontu Alþingis. Innlent 27.9.2026 12:08
Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi frambjóðandi til formanns VR, sakar Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, um að hafa hrakið hana úr starfi eftir að þau tókust á um formannsembætti VR árið 2023. Hún gleymi aldrei svip Ragnars þegar hún tilkynnti honum um framboðið en hatur hafi skinið úr andliti hans. Ragnar og stuðningsmenn hans hafi gert allt til að sverta mannorð hennar og var það ekki hennar ákvörðun að segja skilið við VR eftir sigur Ragnars. Innlent 26.9.2026 14:27
„Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir ráðherra ríkisstjórnarinnar fyrir að vilja ekki ræða við fjölmiðla. Hún líkir þeim við Bandaríkjaforseta sem er ekki mikill vinur fjölmiðlafrelsis. Innlent 25.9.2026 23:17
Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Í skilaboðum sem Guðmundur Ingi Kristinsson fékk fyrir afsögn sína var honum sagt að leiðtogar ríkisstjórnarinnar hefðu tekið ákvörðunina um brotthvarf hans. Sömu skilaboðum fylgdi tillaga að yfirlýsingu um að hann hefði sjálfur ákveðið að hætta. Innlent 25.9.2026 16:04
Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Guðmundur Ingi Kristinsson segir Ingu Sæland hafa vitnað í ráðherrasamtal sem um gildi trúnaður í ræðustól Alþingis í gær. Honum segist létt eftir að hafa birt skilaboð frá fyrrverandi aðstoðarkonu. Sannleikurinn sé staðreynd en ekki upplifun. Innlent 25.9.2026 11:54
Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Ráðherrar munu ekki veita viðtöl að loknum ríkisstjórnarfundi í dag, líkt og venjan er, þar sem þeir þurfa að þjóta á aðra fundi. Fyrrverandi ráðherra ríkisstjórnarinnar hefur sakað aðra ráðherra um lygar í tengslum við afsögn hans. Innlent 25.9.2026 10:17
Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Birgir Guðmundsson, prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri, segir umræðu í kringum afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar óheppilega fyrir Ingu Sæland, Flokk fólksins og ríkisstjórnina í heild. Kjarni málsins sé að Inga Sæland hafi ekki sagt alveg satt og rétt frá og það geti rýrt traust. Rætt var við Birgi í Bítinu á Bylgjunni um málið. Innlent 25.9.2026 08:45
„Mistök að fela honum forystu“ Guðmundur Ingi Þóroddsson segir að það hafi verið mistök að fela nafna sínum, Guðmundi Inga Kristinssyni, forystu í mennta- og barnamálum. Hann telur rétt hafa verið að skipta um ráðherra en segir að það breyti því ekki að gagnrýna megi hvernig staðið var að brotthvarfi hans úr ríkisstjórn. Innlent 24.9.2026 19:41
„Þetta var rétt ákvörðun“ „Það eru auðvitað tvær hliðar á öllum svona málum. Guðmundur Ingi tók sjálfur þá ákvörðun að segja af sér sem ráðherra. Hann tilkynnti þetta, hann sagði frá þessu sjálfur og komst að þeirri niðurstöðu með hliðsjón af heilsufari sínu. Auðvitað segir það sig sjálft að svona ákvarðanir eru ekki teknar í tómarúmi.“ Innlent 24.9.2026 16:59
Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir orð Ingu Sæland, starfandi forsætisráðherra, sem sagði henni að „stíga í eigin skítapott“, lýsa skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar. Viðbrögðin komu henni ekki á óvart. Innlent 24.9.2026 16:52
Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Allt ætlaði um koll að keyra í þinginu þegar Inga Sæland var spurð út í aðdraganda þess að Guðmundur Ingi Kristinsson sagði af sér embætti mennta- og barnamálaráðherra. „Ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér fram með dylgjur og ósannindi,“ sagði Inga meðal annars við formann Sjálfstæðisflokksins. Innlent 24.9.2026 14:09
Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata telur engan vafa á leika að Guðmundur Ingi Kristinsson hafi verið beittur ofbeldi í aðdraganda þess að hann sagði sig frá menntamálaráðuneytinu. Innlent 24.9.2026 13:38
Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Guðmundur Ingi Kristinsson fyrrverandi ráðherra opnar sig um samskipti sín við Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur þáverandi aðstoðarmann sinn og eiginkonu Ragnars Þórs Ingólfssonar eftirmanns hans í ráðherraembætti frá því í janúar þar sem honum var tjáð að tveir kostir væru í stöðinni, uppsögn eða stríð. Guðmundur segir svíða mest að fjölskylda hans hafi verið dregin inn í málið. Innlent 24.9.2026 11:59
„Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Formaður Flokks fólksins hafnar því alfarið að hún hafi reynt að „bola“ sér inn á sjúkrastofu þar sem þáverandi mennta- og barnamálaráðherra lá eftir hjartaaðgerð í desember. Upplifun hans sé gjörólík upplifun hennar og annarra í Flokki fólksins. Innlent 17.9.2026 19:07
Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra segir að formaður Flokks fólksins hafi verið ágeng á meðan hann jafnaði sig á sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð. Hún hafi krafist þess að komast inn á sjúkrastofu hans til að segja honum að hann þyrfti að hætta sem ráðherra. Það gerði hann skömmu síðar og sagði sig í kjölfarið úr flokknum. Innlent 17.9.2026 16:45
Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi þingmaður Flokks fólksins, hefur tekið sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, tveimur dögum eftir að hann tók við sæti í umhverfis- og samgöngunefnd. Innlent 17.4.2026 11:51
Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki vita hvaða persónulegu trúnaðarbrestir urðu til þess að Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður flokksins og fyrrverandi ráðherra hans, sagði sig úr flokknum. Innlent 13.4.2026 18:58
Fyrsta skref Guðbjargar að taka sér frí Hreiðar Ingi Eðvarðsson verður Ragnari Þór Ingólfssyni félagsmálaráðherra til aðstoðar. Sigurjón Arnórsson og Ágúst Ólafur Ágústsson verða aðstoðarmenn Ingu Sæland en eins og kunnugt er skipti hún um ráðuneyti, fór úr félags og húsnæðismálaráðuneytinu og tók við mennta- og barnamálaráðuneytinu. Innlent 12.1.2026 11:47
Vonast til stöðugleika eftir mikið umrótarár í ráðuneytinu Formaður Kennarasambandsins hvetur nýjan menntamálaráðherra til að líta heildstætt á skólamálin frekar en að kenna einni ákveðinni kennsluaðferð um skólavandann. Hann vonar að nú skapist stöðugleiki í ráðuneytinu eftir mikið rót undanfarna tólf mánuði. Innlent 10.1.2026 12:27
Skortur á húsnæði fyrsta verkefnið Ragnar Þór Ingólfsson mun taka við embætti félags- og húsnæðismálaráðherra í kjölfar afsagnar Guðmundar Inga Kristinssonar sem mennta- og barnamálaráðherra. Hann telur fyrri störf sín innan verkalýðshreyfingarinnar hafa veitt sér góða þekkingu á málefnum ráðuneytisins. Meðal fyrstu verkefna verður að taka á skorti á hagkvæmu húsnæði fyrir ungt fólk og tekjulága. Innlent 9.1.2026 12:12
„Hér er amma komin upp á dekk og ég ætla að leggja mig alla fram“ Inga Sæland kveðst full tilhlökkunar að taka við embætti mennta- og barnamálaráðherra. Henni sé mjög umhugað um að bæta læsi grunnskólabarna, einkum drengja, og að huga vel að andlegri heilsu og líðan barna og ungmenna. Henni þyki ekki skrýtið að verða nú beinn yfirmaður Ársæls Guðmundssonar, skólameistara í Borgarholtsskóla, enda hugsi hún aðeins með hlýju til Ársæls. Innlent 9.1.2026 09:01
Brösug og stutt ráðherratíð Guðmundar Inga Eftir tæplega tíu mánaða embættisferil sem einkenndist meðal annars af óheppilegum ummælum, umdeildum embættisfærslum og upplýsingastríði við Moggann hefur Guðmundur Ingi Kristinsson sagt af sér sem mennta- og barnamálaráðherra vegna veikinda. Hann gekkst undir hjartaaðgerð fyrir áramót og kveðst nú á batavegi. Innlent 9.1.2026 06:00
Ragnar Þór verður ráðherra Inga Sæland formaður Flokks fólksins tekur við af Guðmundi Inga Kristinssyni sem mennta- og barnamálaráðherra eftir afsögn Guðmundar. Þá verður Ragnar Þór Ingólfsson þingflokksformaður Flokks fólksins félags- og húsnæðismálaráðherra. Innlent 8.1.2026 18:57
Guðmundur Ingi segir af sér Guðmundur Ingi Kristinsson hefur tilkynnt að hann muni segja af sér sem mennta- og barnamálaráðherra vegna veikinda. Hann mun halda áfram sem þingmaður Flokks fólksins. Innlent 8.1.2026 18:14
Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Óvíst er hvort Guðmundur Ingi Kristinsson menntamálaráðherra muni snúa aftur til starfa í menntamálaráðuneytið eftir að veikindaleyfi hans nú lýkur. Hann er á leið í opna hjartaskurðaðgerð og tíminn þarf að leiða í ljós hvernig bataferli hans verður. Innlent 15.12.2025 22:40