Kosningar 2007
5 6 7 8 9 ›
Fyrirspurnartími hjá ráðherrum á landsfundi Landsfundur sjálfstæðismanna hélt áfram í morgun með almennum umræðum. Eftir hádegishlé, um klukkan tvö, er svo komið að fyrirspurnartíma ráðherra flokksins en þar munu fimm ráðherrar svara spurningum landsfundargesta. Innlent 13.4.2007 13:13
Nærri tveir þriðju vilja atkvæðagreiðslu um frekar stóriðju Ríflega sex af hverjum tíu landsmönnum vilja að ákvarðanir um frekari stóriðju verði settar í þjóðaratkvæðagreiðslu samkvæmt nýrri könnun Gallup. Fram kemur á vef Ríkisútvarpsins að 38 prósent svarenda sögðust mjög hlynnt því og 22,8 prósent frekar hlynnt. Innlent 13.4.2007 12:31
Þrettán hundruð skráðir á landsfund Samfylkingarinnar Landsfundur Samfylkingarinnar hófst í Egilshöll í morgun og höfðu þá um þrettán hundruð manns skráð sig til þátttöku. Innlent 13.4.2007 11:55
Hjörleifur hvetur Íslandshreyfinguna til að hætta við framboð Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra hvetur Ómar Ragnarsson og félaga til að draga í land með framboð Íslandshreyfingarinnar. Þetta segir hann í grein í Fréttablaðinu í dag. Þar gagnrýnir hann einnig hugmyndafræði framboðs Ómars og segir það til þess fallið að framlengja líftíma ríkisstjórnarinnar. Innlent 13.4.2007 07:16
Landsfundur Samfylkingar hefst í dag Landsfundur Samfylkingarinnar hefst í dag í Egilshöll í Reykjavík. Fundurinn verður formlega settur klukkan fjögur síðdegis með stefnuræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns. Yfirskrift fundarins er Framtíð lands - framtíð þjóðar. Honum lýkur á morgun. Innlent 13.4.2007 07:11
Vill lækka skerðingar í tryggingakerfinu Geir Haarde forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins vill minnka almennar skerðingar í almannatryggingakerfinu úr 40 prósentum í 35. Þá vill hann að þeir sem orðnir eru sjötugir geti unnið launavinnu án þess að lífeyrir skerðist. Innlent 13.4.2007 07:09
Bein útsending frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var settur rétt í þessu. Geir H. Haarde, formaður flokksins, flytur ræðu sína og má nálgast beina útsendingu frá fundinum hér. Innlent 12.4.2007 17:37
Vilja stórátak í samgöngumálum og búsetumálum aldraðra Stórátak í samgöngumálum og í uppbyggingu búsetuúrræða fyrir aldraða, afnám launaleyndar og öflugt og traust atvinnulíf ásamt ábyrgri stjórn efnahagsmála er meðal þess er að finna í drögum að ályktunum sem lagðar verða fyrir landsfund Samfylkingarinnar sem fram fer á morgun og hinn. Innlent 12.4.2007 13:28
Stærstu flokkarnir með landsfundi um helgina Tveir stærstu stjórnmálaflokkarnir á Alþingi halda landsfundi sína um komandi helgi. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag og Samfylkingarinnar á morgun. Innlent 12.4.2007 10:55
Aðgerð gekk vel Björn Bjarnason dómsmálaráðherra gekkst í gær undir skurðaðgerð á brjóstholi. Hægra lunga hans var fallið saman í annað sinn á stuttum tíma. Aðgerðin gekk samvkæmt vonum og er búist við því að það taki Björn átta til tólf vikur að jafna sig. Innlent 12.4.2007 06:57
Tvöföldun á Suðurlands- og Vesturlandsvegi undirbúin Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur falið Vegagerðinni að hefja undirbúning að útboði á tvöföldun Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar út frá Reykjavík. Innlent 11.4.2007 15:43
Fjögur ár breyta miklu í fylgi flokkanna Töluverður munur er á fylgi flokkanna í skoðanakönnunum núna miðað við sama tíma fyrir fjórum árum. Eini flokkurinn sem fékk meira fylgi í síðustu alþingskosningum en skoðanakannanir á lokasprettinum gáfu til kynna, var Framsóknarflokkurinn. Innlent 10.4.2007 18:48
Boðar ekki til útgjaldaveislu Ekkert stopp og engar handbremsur í atvinnu- og efnahagsmálum, segja framsóknarmenn sem kynntu í dag stefnuskrá sína fyrir komandi þingkosningar. Flokkurinn leggur áherslu á velferðarmál en segist ekki boða til útgjaldaveislu með stefnumálum sínum. Innlent 10.4.2007 17:18
Áframhaldandi árangur en ekki stopp 12 mánaða fæðingarorlof, hækkun frítekjumarks á tekjur lífeyrisþega og lækkun virðisaukaskatts á lyfjum og barnavörum í sjö prósent er meðal þeirra stefnumála sem Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á á næsta kjörtímabili. Forystumenn flokksins kynntu stefnuskrána fyrir komandi þingkosningar á blaðamannafundi á Nordica-hótelinu í dag. Innlent 10.4.2007 12:34
Íslandshreyfingin kynnir stefnuyfirlýsingu sína Íslandshreyfingin - lifandi land hefur nú gert stefnuyfirlýsingu sína opinbera. Ábyrg umhverfisstefna og stóirðjustopp er þar efst á blaði. Hreyfingin vill að Ísland verði í fremstu röð frumkvöðla og nýsköpunar. Að komið verði á fót sveigjanlegu velferðarkerfi sem auki samfélagsþátttöku og lífsgæði. Skólastarf á öllum stigum verði eflt og litið verði á landið sem eina heild og eitt atvinnusvæði, svo stiklað sé á stóru. Innlent 5.4.2007 13:12
Ríkisstjórnin heldur velli Ríkisstjórnin heldur velli með 32 þingmenn samkvæmt skoðanakönnun Capacent Gallups fyrir Morgunblaðið og RÚV. Innlent 5.4.2007 11:53
Vinstri græn báðu Alcan um peninga Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, óskaði eftir að Alcan í Straumsvík styrkti flokkinn um þrjú hundruð þúsund krónur fyrir komandi alþingiskosningar. Innlent 4.4.2007 22:11
Vill einföld og skýr fjármál Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, er einn fjögurra ráðherra sem ekki hafa kreditkort ríkisins á sínu nafni. „Ég hef alla mína ráðherratíð komist af án greiðslukorts á vegum ríkisins og aldrei leitt hugann að því að óska eftir slíku korti,“ segir hann. Innlent 4.4.2007 22:11
Notar kortið ekki prívat Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir það augljóst að hann noti kreditkort ráðuneytisins, sem er á hans nafni, til að greiða þegar útgjöldin eru augljóslega á vegum ráðuneytisins. Innlent 4.4.2007 22:11
Framsókn tapar í norðaustri Framsóknarflokkurinn tapar tveimur þriðju af fylgi sínu í Norðausturkjördæmi en Sjálfstæðisflokkurinn eykur fylgi sitt um tæp níu prósent, samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir fréttastofu Stöðvar 2. Innlent 4.4.2007 22:11
Kaffibandalagið er ekki liðið undir lok Kaffibandalagið er ekki liðið undir lok að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. Hún á þó ekki von á að hún verði ráðherra í ríkisstjórn Steingríms J. Sigfússonar. Í dag var haldinn opinn fundur hjá forystu Samfylkingarinnar þar sem farið var yfir stjórnmálaástandið á kosningavori. Innlent 4.4.2007 19:59
Framsókn tapar þremur mönnum í Norðausturkjördæmi Framsóknarflokkurinn tapar tveimur þriðju af fylgi í Norðausturkjördæmi, en Sjálfstæðisflokkur bætir við sig um níu prósenta fylgi. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir fréttastofu Stöðvar 2 í Norðausturkjördæmi. Vinstri grænir auka fylgi sitt um átta prósent og Samfylkingin bætir við sig tveimur prósentum. Nýtt framboð og Íslandshreyfingin mælast með tæplega sex prósenta fylgi. Innlent 4.4.2007 19:00
Kaffibandalaginu ekki lokið Jón Magnússon, frambjóðandi Frjálslyndra, segir kaffibandalaginu ekki lokið en Vinstri grænir og Samfylking geti ekki rutt af borðinu, áherslum Frjálslyndra í innflytjendamálum, ætli þeir sér að fara í ríkisstjórnarsamstarf með þeim. Ekki megi halda að flokkurinn sé á móti innflytjendum þó hann vilji hefta innflutning þeirra til landsins. Innlent 3.4.2007 12:14
Svíar geti lært af Íslendingum í skattalækkunum Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir Svía geta tekið Íslendinga sér til fyrirmyndar í skattalækkunum. Hann segir Svíja hafa hagnast af inngöngunni í Evrópusambandið en vill ekki blanda sér í umræður um aðild Íslands að sambandinu. Innlent 2.4.2007 16:17
Kaffibandalagið sagt búið að vera Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent í stjórnmálafræði, segir að kaffibandalag Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra sé búið að vera. Nýlegar auglýsingar Frjálslyndra um að hefta innflutning erlends vinnuafls til landsins samræmist alls ekki stefnu Samfylkingar og Vinstri grænna. Innlent 2.4.2007 12:26
Málflutningur frjálslyndra sagður vera ógeðfelldur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir engar samfélagslegar aðstæður réttlæta að gripið sé til neyðarráðstafana vegna innflytjenda líkt og Frjálslyndi flokkurinn boðar. Steingrímur J. Sigfússon segir þessa stefnu Frjálslyndra geta haft áhrif á mögulegt stjórn Innlent 1.4.2007 22:08
Neita að upplýsa um kreditkort ráðherra Þó að Ríkisendurskoðun leggist gegn því eru átta ráðherrar með kreditkort á nafni ríkisins. Úttektarheimildin er 700 þúsund krónur sem ekki eru ætlaðar til persónulegra nota. Ráðuneytin neita að afhenda greiðsluyfirlitin. Innlent 1.4.2007 22:08
Straumsvíkurkosningin hefur ekkert gildi að lögum Iðnaðarráðherra segir engan hafa sigrað í atkvæðagreiðslunni um stækkun álversins í Straumsvík og að ákvörðunin hafi ekkert gildi að lögum. Steingrímur J. Sigfússon segir það valda stórstyrjöld ef menn ætli sér ekki að virða niðurstöðuna. Innlent 1.4.2007 22:08
Íslandshreyfingin sækir á á kostnað Vinstri grænna I-listi Íslandshreyfingarinnar fengi 5,2 prósent ef kosið yrði núna, samkvæmt könnun Capacent fyrir Morgunblaðið og RÚV sem gerð var dagana 21.-27. mars. Flokkurinn virðist sækja fylgi sitt í raðir Vinstri grænna sem tapa fylgi frá síðustu könnun en mælast samt næst stærsti flokkurinn með 24 prósenta fylgi. Innlent 31.3.2007 09:43
Kosningahegðun kvenna skiptir líklega sköpum í kosningunum „Mér finnst það algjörlega óviðunandi að tvær konur séu formenn í nefndum á vegum Alþingis,“ segir Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra um það að konur stýri nefndarstarfi í tveimur af tólf fastanefndum þingsins. Ítarlega er fjallað um stöðu og áhrif kvenna í íslenskum stjórnmálum í annarri kosningagreininni af átta í Fréttablaðinu í dag. Innlent 30.3.2007 22:28