Kosningar 2009
1 2 3 4 5 6 … 16 ›
Lúðvík Geirsson: Ég er Samúel Örn þessara kosninga „Ég er svona Samúel Örn þessara kosninga,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar sem segir það ekki sáluhjálparatriði hvort hann detti inn sem jöfnunarþingmaður eða einhver annar Samfylkingarmaður. Hann telur gott gengi Samfylkingarinnar útskýrast á evrópustefnu flokksins. Innlent 26.4.2009 05:30
Lokatölur í Suðurkjördæmi - Borgarahreyfingin fær mann kjörinn Borgarahreyfingin kemur inn manni í Suðurkjördæmi þegar að lokatölur hafa verið kynntar. Samfylkingin fær flest greidd atkvæði í kjördæminu en Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn fá hins vegar báðir 3 menn kjörna. Innlent 26.4.2009 05:29
Samfylkingin hagnast á uppbótarþingsætum Alls eru níu þingmenn komnir inn vegna uppbótarþingsæta. Ástæðan fyrir uppbótarþingsætum er vegna þess að niðurstöður kosninga, sætanna það er að segja, er skipt á milli kjördæma til þess að jafna atkvæðavægi. Innlent 26.4.2009 05:21
Ekki stærsti sigur Samfylkingarinnar Samfylkingin nær ekki því kjörfylgi sem flokkurinn hafði árið 2003 ef niðurstöður verða þær sömu þegar búið er að telja öll atkvæði og þau eru núna. Árið 2003 hlaut flokkurinn 31% atkvæða. Eins og staðan er núna er flokkurinn með tæplega 30% atkvæða. Flokkurinn var hins vegar með heldur minna fylgi fyrst þegar Samfylkingin bauð fram árið 1999 og árið 2007, en þá var fylgið 26,8%. Innlent 26.4.2009 05:16
Gríðarlegar sviptingar hjá þingmönnum Nokkuð hefur breyst síðan Vísir sagði frá því að þingmenn væru að detta út fyrr í nótt. Formaður þingflokks Sjálfstæðismanna, Arnbjörg Sveinsdóttir, er dottinn inn sem jöfnunarþingmaður í norðausturkjördæmi. Þá er Birgir Ármannsson kominn á þing á ný sem jöfnunarþingmaður. Innlent 26.4.2009 04:39
Fimm fjölmiðlamenn í hópi nýrra þingmanna Samfylkingarinnar Í hópi nýrra þingmanna Samfylkingarinnar eru fimm þingmenn sem hafa starfað á fjölmiðlum. Innlent 26.4.2009 04:15
Lokatölur Rn - Sigurður Kári og Ásta Möller atvinnulaus Sigurður Kári Kristjánsson er dottin út af þingi þegar að lokatölur úr Reykjavíkurkjördæmi norður hafa verið talin. Innlent 26.4.2009 04:02
27 nýir þingmenn Samkvæmt nýjustu tölum eru tuttugu og sjö nýir þingmenn að fara hefja sitt fyrsta kjörtímabil á Alþingi. Flestir þeirra tilheyra Samfylkingunni, eða níu þingmenn. Samfylkingin er jafnframt með mestu endurnýjunina. Það koma hinsvegar fæstir nýjir þingmenn frá Sjálfstæðisflokknum og því endurnýjun flokksins minnst. Innlent 26.4.2009 03:53
Lokatölur úr Reykjavík suður Lokatölur úr Reykjavíkurkjördæmi suður voru lesnar upp á fjórða tímanum. Samkvæmt þeim er Birgir Ármannssson með þingsæti. Lokatölur eru annars eftirfarandi. Innlent 26.4.2009 03:45
Sigurður Kári dottinn út af þingi Þingmaðurinn Sigurður Kári Kristjánsson er dottinn út af þingi en hann var jöfnunarmaður í Reykjavík suður. Hann var þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins en Ásta Möller einnig dottinn út af þingi. Innlent 26.4.2009 03:23
Óvíst um áhrif af umræðu um Drekasvæðið og Icelandair Það er erfitt að segja til um það hvort umræða um Icelandair Group og olíuvinnslu á Drekasvæðinu hafi haft áhrif á fylgi Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins. Innlent 26.4.2009 02:57
Þau eru að missa vinnuna Töluvert af sitjandi þingmönnum eru að detta út, þar af eru fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þar á meðal þingflokksformaðurinn. Það eru Arnbjörg Sveinsdóttir, Birgir Ármannsson, Ásta Möller og svo Jón Gunnarsson. Varaþingmaðurinn Erla Ósk Ásgeirsdóttir er ekki heldur inni á þingi. Innlent 26.4.2009 02:28
Þingflokksformaður ekki inn á þingi Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Arnbjörg Sveinsdóttir er ekki inni á þingi samkvæmt nýjustu tölum úr norðaustukjördæmi. Sjálfstæðisflokkurinn tapar talsvert í kjördæminu. Þingmaðurinn Kristján Þór Júlíusson og svo Tryggvi Þór Herbertsson eru öruggir inn. Innlent 26.4.2009 01:55
Sigmundur hlakkar til að taka til starfa „Jú, ég er bara farinn að hlakka til að taka til starfa á nýjum vettvangi," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson nýr þingmaður Samfylkingarinnar í samtali við fréttastofuna. Það er búið að vera sérstakt að horfa á Innlent 26.4.2009 01:51
Kemur vel til greina að hafa utanþingsráðherra áfram Þau Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir segja bæði vel koma til greina að halda áfram með utanþingsráðherra. Þau voru spurð að þessu í formannaspjalli á Ríkisútvarpinu. Þau sögðu bæði ákaflega góða reynslu af því að fá þau Gylfa Magnússon viðskiptaráðherra og Rögnu Árnadóttur til liðs við ríkisstjórnina þrátt fyrir að þau sitji ekki á þingi. Innlent 26.4.2009 01:37
Davíð eyðilagði landsfund Sjálfstæðisflokksins Davíð Oddsson eyðilagði landsfund Sjálfstæðisflokksins með ræðu sinni á fundinum, segir Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og formaður Endurreisnarnefndar flokksins. Innlent 26.4.2009 01:33
Þorgerður Katrín: Þetta er grautfúlt „Þetta er grautfúlt," sagði þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður sjálfstæðisflokksins um afhroð Sjálfstæðisflokksins í kosningunum í viðtali á RÚV. Hún sagði að flokkurinn þyrfti að halda áfram, ekki mætti dvelja í fortíðinni heldur horfa fram á við og læra af reynslunni: „Eins og ég segi alltaf, það er eitt skref til hægri og ekkert til vinstri." Innlent 26.4.2009 01:14
Kosningaskýring: Samfylkingin komin í lykilstöðu Meginniðurstaða kosninganna er sú að Samfylkingin hefur tekið við lykilstöðu Sjálfstæðisflokksins sem stærsti flokkur landsins. Þetta gerir það að verkum að Samfylkingin hefur nú möguleika á því að mynda meirihluta með einum flokki hvort sem er til vinstri eða hægri við sig. Innlent 26.4.2009 01:00
Samfylkingin að stíga á sviðið sem kjölfestuflokkur Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að Samfylkingin sé með kosningunum nú að stíga á sviðið sem kjölfestuflokkur í íslenskum stjórnmálum. Þetta kom fram í viðtali við hann í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins. Innlent 26.4.2009 00:51
Ögmundur nær kjöri samkvæmt nýjustu tölum Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra nær kjöri sem þingmaður samkvæmt nýjustu tölum. Ögmundur er í öðru sæti á lista Vinstri grænna í Innlent 26.4.2009 00:50
Krefst afsagnar formanns Frjálslynda flokksins „Ég tel að formaðurinn hafi keyrt flokkinn í þrot og hann eigi að segja sér sem og öll stjórnin," segir Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins og fyrrum varaformaður hans en honum er brugðið vegna slæmrar útreiðar flokksins í kosningunum. Innlent 26.4.2009 00:47
Jóhanna segir Evrópumálin eiga þátt í sigri Samfylkingarinnar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist telja að Evrópumálin eigi verulegan þátt í sigri Samfylkingarinnar í kosningunum. Jóhanna sagði í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 að Samfylkingin hafi lagt verulega áherslu á evrópumálin. Það sé sannfæring flokksins að sú stefna sé leiðin út úr vandræðunum. Hún segist telja að fólkið vilji fá að kjósa um þá kosti sem séu til staðar varðandi Evrópusambandið. Innlent 26.4.2009 00:29
Möguleiki á þremur stjórnarmeirihlutum Samfylkingarinnar Samfylkingin hefur möguleika á því að mynda þrennskonar ríkisstjórnir miðað við hvernig fylgið lítur út núna. Í fyrsta lagi getur Samfylkingin endurnýjað samstarfið við Vinstri hreyfinguna grænt framboð. Í öðru lagi getur flokkurinn myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Í þriðja lagi getur flokkurinn myndað þriggja flokka meirihluta með Borgarahreyfingunni og Framsóknarflokknum. Innlent 26.4.2009 00:16
Talningu lokið Nú er talningu lokið í Alþingiskosningunum. 193.934 greiddu atkvæði en síðustu tölur komu frá Norðausturkjördæmi. Úrslit kosninganna eru á þann veg að Sjálfstæðisflokkurinn missir níu þingmenn á landsvísu, með 22.9 prósent og fá þeir 16 þingmenn kjörna. Innlent 25.4.2009 22:50
71,2 prósenta kjörsókn í Suðvesturkjördæmi Kjörsókn í Suðvesturkjördæmi klukkan átta var 71,2 prósent. Þá höfðu 41.462 manns kosið. Í samanburði við síðustu kosningar er þetta betri kjörsókn en árið 2007 þegar 36.490 manns höfðu kosið eða 66,9 prósent. Innlent 25.4.2009 20:24
Jóhanna þurfti túlk Fjölmenni var á blaðamannafundi forsætisráðherra fyrir erlenda fréttamenn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Erlendir miðlar hafa vikum saman reynt að ná tali að ráðherra og fengu í dag að spyrja hana spurninga með aðstoð túlks. Innlent 25.4.2009 18:22
Liðlega 50% kjörsókn í Kópavogsbæ Kópavogsbær birtir á klukkustundar fresti upplýsingar um kjörsókn á heimasíðu sinni www.kopavogur.is. Klukkan 17:00 hafði liðlega helmingur kjósenda á kjörskrá í Kópavogi neytt atkvæðisréttar síns í alþingiskosningunum eða 52,9%, 5.441 karl og 5.968 konur. Þetta er umtalsvert meiri kjörsókn en á sama tíma árið 2007. Þá höfðu 48,8% kjósenda kosið í Kópavogi. Aukningin nemur 8,4%. Innlent 25.4.2009 17:53
Var klukkutíma inni í kjörklefa „Eigum við ekki að segja að ég hafi beitt atkvæðaþófi gegn málþófi þingmanna gegn stjónlagaþingi, persónukjöri og það að koma auðlindunum í þjóðareigu,“ segir Þorvaldur Óttar Guðlaugsson kjósandi í Reykjavík. Segja má að Þorvaldur hafi vakið nokkra athygli í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag þar sem hann mætti með umferðarmerki sem merkir „Aðalbraut endar“. Innlent 25.4.2009 16:47
Kjörseðlarnir kláruðust í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi sér um utankjörstaðaatkvæðagreiðslu nú fyrir alþingiskosningarnar. Mikið af fólki dvelur í sumarbústöðum í grenndinni og kýs utankjörstaða í Borgarnesi. Það gerðist hinsvegar í dag að kjörseðlarnir kláruðust og var þónokkur fjöldi sem gat ekki kosið og þurfti að bíða eftir fleiri atkvæðaseðlum. Sækja þurfti þá í Búðardal. Innlent 25.4.2009 15:48
Kjörsókn í Reykjavík meiri nú en árið 2007 Kjósendur á höfuðborgarsvæðinu virðast sýna kosningunum mikinn áhuga samkvæmt tölum yfirkjörstjórna í báðum Reykjavíkurkjördæmunum. Í Reykjavík suður höfðu 19.738 kosið klukkan 16:00 sem er 45,12% kjörsókn. Það er þremur prósentum meira en í kosningunum árið 2007, en þá höfðu á sama tíma 41,89% kosið. Innlent 25.4.2009 14:55
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent