Skroll-Lífið

25 ára afmæli Cosmo
Eins og sjá má á myndunum leiddist engum í 25 ára afmæli tískuverslunarinnar Cosmo...

Stuð í Nike teiti
Ragnhildur Steinunn fjölmiðlakona var kynnir...

Frægir fjölmenntu á Frost
Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga mættu á frumsýningu kvikmyndarinnar Frost í leikstjórn Reynis Lyngdal í Sambíó Egilshöll i gærkvöldi. Eins og sjá má skein gleðin úr hverju andliti. Frost fjallar um ungt par, Öglu, sem er jöklafræðingur, og Gunnar, kvikmyndagerðarmann, sem koma að mannlausum rannsóknarbúðum á hálendi Íslands. Leiðangursmenn virðast hafa horfið á dularfullan hátt og Agla og Gunnar standa frammi fyrir óþekktu og banvænu afli. Með aðalhlutverkin fara Björn Thors, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Helgi Björnsson, Hilmar Jónsson, Valur Freyr Einarsson og eiginkona Reynis, Elma Lísa Gunnarsdóttir.

Tuttugu ára afmæli Tanna fagnað
„Tanni er í dag 10 manna fyrirtæki og veltan um 150 miljónir krónur á ári“ segir Guðjón Sigurbjartsson framkvæmdastjóri en Guðjón og Guðrún Barbara Tryggvadóttir kona hans hafa staðið bak við Tanna sem er tuttugu ára gamalt fyrirtæki sem einblínir á auglýsingavörur eins og fatnað, penna, derhúfur og fleira sem er merkt með lógóum og ýmsum skilaboðum. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Tanni fagnaði 20 ára afmæli á dögunum.

Frægir fjölmenna á sýningu Errós
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í gær við opnun á sýningunni Erró - Grafíkverk...

Líf og fjör í Borgarleikhúsinu í dag
Gestgjafarnir Skoppa og Skrítla, Gói og Þröstur og Gulleyjusjóræningjarnir tóku á móti fjölda gesta í Borgarleikhúsinu í dag...

Átakið Á allra vörum formlega hafið
Meðfylgjandi myndir voru teknar á hótel Marina við Mýrargötu í dag í tilefni af því að söfnunarátakið Á allra vörum leggur nú af stað í sína fimmtu landssöfnun...

Ásdís Rán fær ekki frið
Meðfylgjandi má sjá myndir af Ásdísi Rán og...

Stuð á Skuggabar
Meðfylgjandi myndir voru teknar á Skuggabarnum síðustu helgi þar sem fögur fljóð kvöddu sumarið með bros á vör....

Fjölmenni á Ávaxtakörfunni
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í Smárabíó í kvöld var fjölmenni á forsýningu kvikmyndarinnar Ávaxtakarfan eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur...

Rosalega sátt með formið mitt í dag
"Þetta var alveg svakalega upplifun. Og að keppa í annað sinn á svona stóru og sterku móti er alveg risastórt skref fyrir mig og ekkert smá mikill heiður...

Sýndu samstöðu með systrum sínum í Afganistan
Búðareigendur á Laugaveginum hlýddu kalli og skreyttu hjá sér verslunarglugga með appelsínugula litnum. Fjölmargir gangandi vegfarendur skreyttu sig með appelsínugulu sem er litur sköpunar, krafts og hlýju.

Lag Ellýjar Vilhjálms endurútgefið
Meðfylgjandi myndir voru teknar í upptökuverinu Stúdíó Sýrland í gær þar sem úrvalshópur söngvara tók upp glænýja útgáfu af lagi...

Á allra vörum undirbúningur hafinn
Það var frábær stemning á meðal kvennanna sem komu saman til að merkja Dior-glossin í söfnunarátakinu Á allra vörum síðustu helgi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum...

Lét drauminn rætast með Radísu
Meðfylgjandi myndir voru teknar á dögunum þegar verslunin Radísa opnaði í miðbæ Hafnarfjarðar...

Patti Smith tróð upp með Russell Crowe
Russell Crowe hélt tónleika í portinu á vak við Ellefuna ásamt hljómsveit á Menningarnæturtónleikum X-977 í kvöld. Ekki nóg með að leikarinn dásamaði land og þjóð heldur birtist vinkona hans, söngkonan Patti Smith á sviðinu öllum að óvörum og söng lagið Because the night við gríðarlegan fögnuð viðstaddra.

Frægir á hlaupum
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var...

Megastuð hjá Mörtu Maríu í Mjóddinni
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var megastuð þegar Marta María ritstýra hélt opnunarteiti í Gleraugnabúðinni í Mjódd í kvöld...

Málar þú þig eins og Kim?
Skoðaðu myndirnar og finndu út hver af stjörnunum málar sig eins og þú?

Fjölmenni á frumsýningu Ragnhildar Steinunnar
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var fullt út úr dyrum í Bíó Paradís á frumsýningu heimildarmyndar Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur, Hrafnhildur, sem fjallar um Hrafnhildi sem fór í kynleiðréttingu. Ragnhildur Steinunn prýðir forsíðu Lífsins, fylgiblað Fréttablaðsins, á morgun föstudag.

Hátíska í bland við ódýran gæðafatnað
Á annað hundruð manns komu saman í tískuversluninni GK í vikunni. Tilefnið var frumsýning þriggja nýrra hátískumerkja; Stella McCartney, mcq frá Alexander McQueen og mm6 by Maison Martin Margiela.

Vala Matt fagnar útkomu sælkerabókar
Vala Matt hélt upp á útkomu stórglæsilegrar sælkerabókar á veitingastaðnum RUB23 í Reykjavík á dögunum en verkefnið hefur átt hug og hjarta Völu undanfarna mánuði.

Tinna trónir á toppnum
Tinna Gunnlaugsdóttir Þjóðleikhússtjóri er tekjuhæsta listakonan í hópi leik- og söngkvenna á síðasta ári, samkvæmt tölum Frjálsrar verslunar. Hún var með 721 þúsund krónur í mánaðarlaun samkvæmt blaðinu. Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona var í öðru sæti með 570 þúsund krónur. Ilmur Kristjánsdóttir leikkona er þriðja í röðinni en hún var með 534 þúsund krónur í mánaðarlaun.

Arna Schram tekjuhæsta fjölmiðlakonan
Arna Schram upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar er tekjuhæsta fjölmiðlakonan á síðasta ári, samkvæmt tölum Frjálsrar verslunar. Hún var með 984 þúsund krónur í mánaðarlaun samkvæmt blaðinu. Agnes Guðrún Bragadóttir blaðamaður Morgunblaðsins var í öðru sæti með 888 þúsund krónur. Sigrún Stefánsdóttir dagskrárstjóri RÚV er þriðja í röðinni en hún var með tvö þúsund krónum lægri mánaðarlaun en Agnes...

Æðisleg stemning á Landsmóti
Veðrið lék við gesti Landsmótsins hestamanna í Víðidalnum í gær þegar hátíðleg setningarathöfn fór fram. Hópreiðin var mögnuð í alla staði þar sem hópur knapa á öllum aldri setti mótið á eftirminnilegan hátt...

Fjör í Hestamiðstöðinni á Landsmóti
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Hestamiðstöðinni á hesthúsasvæði Fáks í Víðidal á hestamannamótinu í gærkvöldi...

Kátar konur á Kjarvalsstöðum
Glæsileikinn var allsráðandi á Kjarvalsstöðum á dögunum þar sem hinn frægi förðunarfræðingur Claude Defresne hjá Clarins kynnti nokkur förðunarráð og sýndi létta sumarförðun...

Á annað hundrað manns dönsuðu Zumba á Spot
Á annað hundrað manns mættu í Zumba partý síðastliðinn þriðjudag á skemmtistaðnum Spot og dönsuðu Zumba...

Bak við tjöldin með Unni Birnu
Unnur B. Vilhjálmsdóttir prýðir forsíðu Lífsins á morgun föstudag...

Opnun Signatures of Nature í Smáralind
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar verslunin Signatures of Nature var opnuð á nýjum stað í Smáralind...