Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Svíar og önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins tóku nýverið á móti úkraínskum drónaflugmönnum á æfingu á Gotlandi. Þar áttu úkraínsku hermennirnir að kynna Svía og aðra fyrir drónahernaði. Úkraínumennirnir stóðu sig svo vel að Svíarnir stöðvuðu æfinguna þrisvar sinnum til að hugsa sinn gang og reyna að breyta aðferðum sínum. Erlent 13.5.2026 14:47
Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Ráðamenn í bæði Rússlandi og í Úkraínu telja litlar líkur á því að hægt verði að endurlífga viðræðurnar þar sem Bandaríkjamenn hafa reynt að miðla málum þeirra á milli, jafnvel þegar stríði Bandaríkjanna gegn Íran lýkur. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er sagður staðráðinn í að leggja undir sig meira landsvæði í Úkraínu og þá sérstaklega Donbas-svæðið svokallaða. Erlent 13.5.2026 13:13
Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni „Sigurinn verður, og hefur alltaf verið, okkar,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti er hann flutti ræðu á Rauða torginu í Moskvu þar sem hersveitir höfðu stillt sér upp að tilefni Sigurdagsins svokallaða. Hersýningin var með breyttu sniði í ár, nánar til tekið smærri, þar sem flest þungavopn Rússa eru á víglínunni í Úkraínu um þessar mundir. Erlent 9.5.2026 22:13
Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Erlent 26.4.2026 11:53
Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Utanríkisráðherra Rússlands segir Vesturlönd hafa lýst Rússlandi stríði á hendur með Úkraínu í broddi fylkingar. Vestrænir leiðtogar tali opinskátt um fyrirætlaða styrjöld við Rússland og vilji nota „Kænugarðsstjórnina“ sem múrbrjót. Þetta er þrátt fyrir að Rússland hafi gert allsherjarinnrás í landið fyrir fjórum árum síðan og staðið í árásum á það í á annan áratug. Erlent 24. apríl 2026 18:30
Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Evrópusambandið gekk í gær frá 90 milljarða evra láni til Úkraínu, eftir að nýkjörinn stjórn í Ungverjalandi snéri ákvörðun Victor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra, um að beita neitunarvaldi gegn lánveitingunni. Erlent 24. apríl 2026 06:44
Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Að minnsta kosti sex létust eftir að maður hóf skothríð í höfuðborg Úkraínu í gær. Hann skaut að fólki úti á götu og tók síðan gísla í matvöruverslun. Erlent 19. apríl 2026 10:04
Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Minnst fimm eru látnir og enn fleiri særðir eftir skotárás í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, í dag. Árásarmaðurinn var ráðinn af dögum á vettvangi eftir skothríð gegn lögreglu í borginni. Erlent 18. apríl 2026 15:59
Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Rússar gerðu harðar árásir á Úkraínu í nótt og liggja að minnsta kosti fimmtán almennir borgarar í valnum og níutíu eru sárir. Erlent 16. apríl 2026 06:52
Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Rússneskir hermenn gáfust upp fyrir fjarstýrðum land- og flugdrónum þegar úkraínski herinn tók stöðu þeirra á vígvellinum. Forseti Úkraínu segir þetta í fyrsta skipti sem slíkur sigur náist á vígvellinum eingöngu með vélum. Erlent 14. apríl 2026 09:09
Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu. Erlent 10. apríl 2026 13:08
Bauð Pútín að vera „músin“ hans Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín. Erlent 8. apríl 2026 10:10
Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Rússneskur sjálfsprengidróni varð fimm mönnum að bana og særði 19 aðra í borginni Nikopol í austurhluta Úkraínu á laugardag en Rússar hafa hert árásir sínar að degi til í skugga stríðs Bandaríkjanna og Íran. Zelensky hefur boðið fram aðstoð vegna Hormússunds en hann segir Úkraínumenn hafa öðlast sérþekkingu í stríði sínu við Rússa. Erlent 4. apríl 2026 14:01
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Stríðið í Úkraínu hefur að miklu leyti fallið í skugga stríðs Bandaríkjanna og Íran gegn Ísrael, sem Rússar virðast græða töluvert á. Hermenn Rússlands sækja enn hægt áfram í austurhluta Úkraínu í kostnaðarsamri framsókn. Á sama tíma virðist sífellt færast meiri þungi á langdrægar árásir bæði Rússa en þó sérstaklega Úkraínumanna sem virðast hafa aukið framleiðslu á langdrægum drónum og stýriflaugum. Erlent 2. apríl 2026 09:01
Rýma svæði í Austur-Finnlandi vegna úkraínsks sprengjudróna Íbúum við stöðuvatn í Norður-Karelíu í austanverðu Finnland var skipað að yfirgefa heimili sín í gærkvöldi vegna úkraínsks dróna sem fannst á ísilögðu vatninu. Dróninn er talinn bera virkan sprengiodda. Erlent 1. apríl 2026 09:50
Úkraínskir drónar brotlentu í Finnlandi Tveir sjálfsprengidrónar, sem taldir eru frá Úkraínu, féllu til jarðar í Finnlandi í gærmorgun. Annar sprakk við lendingu en hinn mun hafa verið sprengdur í loft upp af sérfræðingum í morgun. Engan sakaði en talið er að drónarnir hafi verið notaðir til árása í Rússlandi, nærri landamærum Finnlands. Erlent 30. mars 2026 11:20
Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur beðið rússneska auðjöfra um að gefa peninga í ríkissjóð til að bæta fjárstöðu ríkisins. Á fundi með auðjöfrum í gær hét Pútín því að halda stríðinu í Úkraínu áfram, í það minnsta þar til Rússar hefðu náð stjórn á öllu Donbas-svæðinu svokallaða. Erlent 27. mars 2026 13:01
Norðurevrópskir bandamenn funda á Íslandi á næsta ári Leiðtogafundur svonefndra Sameiginlegra viðbragðssveita (JEF) verður haldinn á Íslandi í fyrsta skipta á næsta ári. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, lagði boðið fram og þekktust leiðtogar JEF-ríkjanna það á fundi í Helsinki í gær. Innlent 27. mars 2026 07:44
Forsætisráðherra á fundi bandamanna Úkraínu í Helsinki Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, tekur þátt í fundi svonefndrar sameiginlegrar viðbragðssveitar bandalagsríkja Úkraínu í Helsinki í Finnlandi í dag. Auk stuðningsins við Úkraínu ætla leiðtogarnir að ræða öryggismál í Evrópu almennt. Erlent 26. mars 2026 10:37
Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Ríkisstjórn Viktors Orbán í Ungverjalandi hefur ákveðið að skrúfa fyrir gasleiðslur til Úkraínu til þess að knýja á um að olíuleiðsla frá Rússlandi verði opnuð aftur. Orbán hefur tekið upp enn harðari stefnu gegn Úkraínu en áður í harðri kosningabaráttu sem hann háir heima fyrir. Erlent 25. mars 2026 11:44
Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Rússar gerðu á síðustu tveimur dögum umfangsmestu loftárásir á Úkraínu frá því innrásin hófst í febrúar 2022. Á 24 klukkustundum beindu Rússar 948 sjálfsprengidrónum að borgum og bæjum Úkraínu en í dag beindust árásirnar sérstaklega að vesturhluta Úkraínu og borgum eins og Lviv. Erlent 24. mars 2026 21:29
Eigandi OnlyFans látinn Leonid Radvinsky, eigandi OnlyFans, er látinn, 43 ára. Hann lést úr krabbameini. OnlyFans var stofnað 2016 og Radvinsky eignaðist móðurfélag þess, Fenix International Limited, árið 2018. Í frétt Reuters segir að hann hafi verið stjórnarformaður félagsins og meirihlutaeigandi. Erlent 23. mars 2026 13:31
Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur vakið mikla reiði meðal Evrópuleiðtoga eftir að hann gekk á bak orða sinna. Orbán hafði í desember sagst myndu samþykkja 90 milljarða evra lán til Úkraínu svo lengi sem Ungverjar yrðu ekki meðal lánveitenda en hefur nú dregið það til baka. Erlent 20. mars 2026 06:33
Færðu Penn Óskar fyrst hann missti af hátíðinni Yfirmaður úkraínska járnbrautarkerfisins færði leikaranum Sean Penn silfraðan Óskar úr lestarbraki. Penn hafði sleppt því að mæta á Óskarinn um helgina, þar sem hann var valinn besti leikarinn í aukahlutverki, til að heimsækja Úkraínu. Bíó og sjónvarp 18. mars 2026 13:19
Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Þróun Úkraínumanna og framleiðsla á eigin sjálfsprengidrónum felur í sér að þeir geta nú gert árásir á öll héruð Rússlands. Þetta sagði Sergei Shoigu, forseti þjóðaröryggisráðs Rússlands og fyrrverandi varnarmálaráðherra, á fundi með embættismönnum í dag, þar sem hann sagði að árásum Úkraínumanna á Rússland hefði fjölgað mjög. Erlent 17. mars 2026 16:59